Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1948, Page 4
210
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Allir lýðræðisunnandi íslendinoar
bera sjerstakan hlýhug til þessa frí-
dags verkámanna og honum fvlgja
frá þeirra hendi einlægar óskir um
það að hann megi verða v'erkamönn-
um til scm allra mestra heilla og
sóma. En til þess að slíkt gcti orðið,
þuría verkamenn að svipta þá póli-
tísku ævintýramenri, scm nú fara með
stjóm vei kalýðsmálanna, allri stjórn
og yfirráðum.
Engum lýðræðisunnandi íslending
blandast hugur um það að verkalýós-
samtök stofnuð á heiibrigðum grund-
velli, sem hrein, fagleg stjettarsam-
tök og rekin í fullu samræmi við þarf-
ir og heill þjóðfjelags heildarinnar,
eru nauðsynleg og sjálfsögð í hverju
þjóðfjelagi, því verður er verkamað-
urinn launanna, og betur er sú þjóð
á vegi stödd, sem hefur innan sinna
vjebanda frjáls, víðsýn og heilsteypt
verkalýðssamtök, heldur en sú, sem
leggur þau í læðing kúgunar og ein-
ræðis.
Undanfarin ár haía hátíðahöld 1.
maí borið á sjer hin sterku einkenni
allra vinnubragða kommúnista, sem
að líkum lætur, þar sem þeir hafa að
langmestu leyti verið einráðir með til-
högun og fyrirkomulag hátíðahald-
anna, og hefur dagurinn meira útlit
haft fyrir það að vera í smækkaðri
mynd rússneskur hersýningardagur
Rauða hersins, heldur en frídagur
verkamanna á íslandi. Dagurinn hef-
ur verið að mestu leyti gjörsneiddur
því að bera það íslenska, þjóðlega yfir
bragð, sem honum eðli sínu samkv.
ber að gjöra. En um áraraðir hefur
það verið ákveðin krafa megin-
þorra verkamanna, að dagurinn yrði
haldinn hátíðlegur sem stjettardagur,
algjörlega laus við allan pólitískan
svip og yfirbragð.
Hvernig slíkir dagar lita út mætti
þar til nefna sem dæmi og þá jafn-
framt taka til fyrirmyndar Sjómanna
daginn, sem haldinn hefur verið há-
tíðlegur um nokkurra ára skeið um
land allt og hafa þau hátíðahöld farið
■V,
fram með sjerstaklega virðulegum og
þjáðlegur hætti og hinum mesta glæsi
brag, algjörlega laus við allan póli-
tískan áróður, Slíkir dagar eru sam-
tökum verkalýðsins, sem og alþjóð til
hins mesta gagns og sóma.
Sjálfstæðisfjelögin í Reykjavík
hjeldu á árunum 1939 til 1942 1. mai
hátíðlegan með þeim hætti að haldinn
var útifundur á torginu við Varðar-
húsið, sem þá var samkomustaður
sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík. í>á
gengust þau einnig fyrir fjölmennum
samkomum í báðum kvikmyndahúsum
borgarinnar með vönduðum dag-
skrám, bæði fyrir börn og fullorðna.
Því næst voru um kvöldið haldnir
dansleikar að Hótel Borg og Odd-
fellow. Ennfremur voru merki Óðins
seld á götum borgarinnar og einnig
gefið út ritið Stjett með stjett, í til-
efni dagsins. öll þessi hátíðahöld
undir forustu Sjálfstæðisfjelaganna
tókust með afbrigðum vel og fóru
fram með hinum mesta glæsibrag, auk
þess sem þau settu menningar- og
þjóðlegan svip á daginn. Enda sýndi
það sig þá, að bæði á útifundunum,
sem og •innisamkomum, íjölmenntu
bæði verkamenn og aðrir íbúar
Reykjavíkur geisilega mikið og Ijetu
þar með ánægju sína í ljós með þessa
ráðstöfun Sjálfstæðisfjelaganna i
Reykjavík.
En aftur á móti var þannig ástatt
hjá rauðu flokkunum, sem einnig
hjeldu daginn hátíðlegan, að hjá þeim
var það fámennt, að þeir hurfu svo
gjörsamlega í skuggann af Sjálfstæð-
ismönnum.
Árið 1942 höfðu kommúnistar og
Alþýðuflokkurinn tekið höndum sam-
an um stjórn Dagsbrúnar undir því
yfirskyni að með því væri komin full-
komin eining á um stjóm verkalýðs-
málanna. Sjálfstæðismönnum þótti
rjett að gefa þeim tækifæri á þvi. að
sýna þá einingu í verki og höfðust
því ekkert að. En það kom brátt í ljós
hjá kommúnistum, eins og vænta
mátti, að slíkt var aldrei áform þeirra
að gjöra daginn ópólitískan, heldur
það eitt að nota hann sem mest í þágu
og þjónustu kommúnistaflokksins, og
hafa þeir verið einráðir um þessi 1.
maí hátíðahöld þar til nú, að Sjálí-
stæðismenn geta sóma síns vegna ekki
setið hjá og horft á það að dagurirn
sjc þannig misnotaður lengur. Sjálf-
stæðismenn munu nú hefja baráttu
íyrir því að nýu, að þessi hátíðisdag-
ur verkamanna verði ekki notaður
sem pólitískur áróðursdagur til )>css
eins að þröngva inn á íslenska verka-
menn þeim ógeðslegasta áróðri sem
eingöngu er ætlaður til þess eins að
efla og viðhalda hinni rússnesku of-
beldisstefnu, sem forsprökkum komm-
únista á íslandi er falið af húsbænd-
um sínum í Moskva, að koma hjer á.
Baráttu sjálfstæðisverkamanna fyr-
ir því að þessi . tilraun kommúnista
mistakist svo gjörsamlega hjer mun
verða haldið áfram af fullri djörfung
og festu þar til yfir lýkur með algjör-
um sigri þeirra.
Axel GuOmundsson.
V V V V
^JJuar er
AMERÍSKT blað lagði fyrir 50 les-
endur sina, valda af handahófi, þessa
spurningu: „Hvar hefur S.þ. aðsetur
sitt?“ Síðan birti það nokkur svörin
og voru þau á þessa leið:
1. Þar sem heimssýningin var haldin.
2. í París.
3. I Dumbarton Oaks.
4. Einhvers staðar á vatni — jeg
hefi heyrt nafnið, en man það
ekki.
5. í St. Francis hótelinu í San Franc
isco.
6. í Moskva — tvisvar á ári.
7. I Casablanca.
8. Eigið þjer við það ameríska eða
það rússneska?
9. Hingað og þangað auðvitað.
10. í Westbury.
11. Hvem varðar um það?