Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1949, Side 1
3. töiublað
XXIV. árgangur.
BlorðunlUníiáinö
Sunndagur 23. janúar 1949
FJÓRA
SÓLARHRINGA
DAGINN SEM Jóhann Krist-
mundsson bóndi í Goðdal var flutt-
ur hingað á Landsspítalann, kalinn
og meiddur úr snjóíljóðinu sem
fell á bæ hans, hitti jeg bróður
hans Bjarna að máli, og orðaði
það þá við hann, að mjer lieki
hugur á að hafa tal af Jóhanrá þeg-
ar hann væri orðinn málhress.
Á aðfangadag jóla leit jeg inn a
sjúkrastofuna í Landspítalanum
þar sem hann var. Ilafði jeg þa
fengið orð frá honum, að nú gæti
jeg komið til hans. Þá var hann
mjög reifaður á höfði og höndum
og þungt haldinn að mjer virtist,
enda með allmikinn sótthita frá
kalsárum sínum.
Við skulum bíða með allar frá-
sagnir sagði jeg við hann. Það
kóma vonandi dagar, sem við get-
um talað betur saman. Því hvað
sem þessu karlmenni leið, cr á
koddanum lá fyrir framan mig,
og hlotið hafði svo rnikil sár, lík-
amleg, og andleg margfalt meiri,
treysti jcg mjer ckki til þess á
helgum jólum, að gefa tilefni til
að hann lilyti að riíja það alt upp
fyrir sjer og segja rnjer.
Það er öllu óhætt, segir þá sjúk-
lingurinn. Jeg er ekkert taugaveikl-
aður. Jeg þoli vel að tala um alit
sem fyrir mig hefir komið.
Ilann hefir vissulega sýnt það,
hugsaði jeg með mjer,að honum er
í SNJÓFLÓÐI
Frásögn Jóhanns Krist-
m undssonar í Goðdal
+—— — ----------------—-—.— —.— —..—.—.►
1
Harmsagan írá Goðdal í B.jarnarlirði á Strönd-
um er mönnum í fersku minni, er snjóflóð fjell
á bæinn síðla dags sunnudaginn 12. dcs., en fólk
frá næstu bæjum varð ekki vart við hvað þar
hafði gerst, fyrr en síðari hluta dags á fimtu-
dag þ. 16. des., er piltur kom með póst að Goð-
dal. Þegar björgunarlið kom þangað, og fólkið
sem á bænum var, var grafið út, voru fjórir
heimilismanna örendir, Jónína Jóhannsdóttir,
75 ára, er lá í rúminu, þegar snjóflóðið kom,
var blind og heyrnarlaus, kona Jóhanns bónda í
Goðdal Svanborg Ingimundardóttir, 35 ára, Guð
rún Jóhannsdóttir 52 ára, og Ásdís dóttir hjón-
anna í Goðdal 2ja ára. En systir hennar átta ára,
Svanhildur, var með lífsmarki, og eins Jónas Sæ-
mundsson, sonur Guðrúnar. Sá eini sem koinst
lífs af, af heimilisfólkinu var Jóhann bóndi Krist
mundsson, en þrjú börn hans voru að heiman á
skólum, þegar slysið vildi til.
. ------------------------------------------------------"+