Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Page 3
LESBÖK MORGUNBLAÐSÍNS 49o Nikulásarkot os Klöpp. Jón Helgascm biskup, sem mundi eftir flestum torfbæunum, segir svo á einum stað: — Fæstir hinnar uppvaxandi kynslóðar vorra tíma gera sjer í hugarlund, hve ljeleg húsakynni voru gömlu reykvísku torfbæirnir í úthverfum bæjarins, eða „kotin“, eins og algengast var að nefna þessa mannabústaði. Torfið á þekj- unum reyndist alt annað en góð- ur regnvari, er til lengdar ljet. Snemma fór vætan að leita á cúð- ina undir torfinu og áður en menn vissu af, var hún orðin svört af sagga undan þekjunni. Og þá leið sjaldnast á löngu áður en lekinn, versti óvinur góðra húsmæðra, færi að gera vart við sig.--- Það varð löngum fangaráð hús- mæðranna að hengja bjór undir lekann og veita úr honum vatn- inu þannig, að það færi ekki nið- ur í rúmin. Annars höfðu þessir torfbæir þann stóra kost, að þeir voru hlýir þegar frost og hríðar gengu. Það næðir ekki í gegnum þykka moldarveggi nje þekjur, sem eru máske orðnar alt að því hálf alin á þykt vegna þess að altaf var verið að dytta að þeim og bæta torfi ofan á torf. Veðrátt- an hjer, umhleypingar og votviðri, hamlaði því að þekjur gæti orðið vallgrónar, og þess vegna var lek- inn og þess vegna þurfti altaf að vera að bæta nýu torfi utan á hið gamla. IIJER fer þá á eftir skrá Jóns prentara um torfbæina og í þeirri röð, sem hann telur þá. En innan sviga hefi jeg bætt við nokkrum upplýsingum um hvern bæ. Heíi jeg þar m. a. reynt að skýra frá því hvar hver bær stóð, svo að menn geti betur áttað sig á því hvernig bygðinni var skipað. llefi jeg við það notið aðstoðar Sigurð' ar Halldórssouar trjeamiðaj»eist- ara, sem er manna fróðastur í þeim efnum. Þess ber að geta, að bæirnir voru altaf að skifta um nöfn og hefir það valdið nokki'um erfiðleikum þeim, sem hafa viljað kynna sjer þróunarsögu Reykjavíkur. Jeg hefi haldið mjer við þau nöfn, er Jón prentari notar (og bætt inn í nöfn- um, þar sem hann hefir slept þeim), en auk þess reynt að láta hverjum bæ fylgja þau önnur nöfn, er hann hafði. Hefst svo skráin. AUSTURBÆR 1. Skuggi elsti bær í Skugga- hverfi. (Hann stóð rjett austan við þar sem „Völundur“ er nú. Þenn- an bæ reisti fyrst Jens nokkur Jensson um 1800). 2. Nikulásarkot, sem Gunnar Hafliðason á núna. (Þessi bær hjet upphaflega Nýibær, en var síðar kendur við Nikulás Erlendsson, föður Hafliða, föður Ólafar, móð- ur Bjarna Jónssonar dórnkirkju- prests. Gunnar Hafliðason var orð- lagt valmenni. Hann „stoppaði út“ fugla af mikilli list fyrir söfn og einstaklinga. Nikulásarkot stóð þar sem nú er Landsmiðjan). 3. Traðarkot. (Það stóð þar sem nú mætast Smiðjustígur og Ilverf- isgatat liar rjett íyrir vestan var grjótg^rður mikill á mörkum Arn- arhólstúns og Skuggahverfis í Traðarkoti var löngum tvíbýli. Þar bjó Þórður Stefánsson, sem var að nokkru leyti upp alinn hjá Steingrími biskupi. Hann var „tals- vert drykkfeldur, en varð einn af fyrstu góðtemplurum þessa bæ- ar, og varð það gæfuhlutskifti hans“). 4. Arnarholt (var neðst við Smiðjustíginn. Þar bjó lengi Ein- ar Þorsteinsson slátrari, hraust- menni mikið). 5. Vindheiinar (sá bær stóð þar sem nú er vörugeymsluhús Völ- undar. Þar bjó um eitt skeið Anton Magnússon, tengdasonur Ara í Skál holtskoti og faðir Ara B. Antons- sonar). 6. Steinsstaðir. (Þann bæ bygði fyrst Pjetur Sigurðsson, bróðir Vig fúsar halta, sem Vigfúsarkot er kent við. Kona hans hjet Jarþrúð- ur. Þótti hún kvenskörungur mikill og var því jafnan Rölluð Stálþrúð- ur. Sonur þeirra var Túnis, t'oð- ir Margrjetar konu Guðmundar Gissurarsopar fiskimatsmanns. Fvr ir framan Steinstaðabæinn var túnblettur og' þar stendur nú bú- staður danska sendiherrans). 7. Sölvahóll. (Þarna bjó Jón Snorrason frá Engey. Hann endur- bygði bæiun 1834 og.var hann þá talimi eimi aí þestu torfbæunum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.