Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 9
501 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS gFPTT* ' Göthús (úr bók Gaimards). En 1837 seldi ekkja hans Helga G. Thordarsen dómkirkjupresti. Bvgði hann þar timburhús austan við bæinn, en ljet hann standa. Þai bjó þá í nokkur ár frú Guðrún dótt- ir Stefáns Þórarinssonar amt- manns ásamt syni sínum Gísla Brynjólfssyni skáldi, er varð há- skólakennari í Kaupmannahöfn). 81. Fjárhús þar fyrir norðan, er nú rifið. (Það var einnig nefnc Fjárhúskot og stóð í Landakots- túni). 82. Skakkakot. Á Hlíðarhúsatúni var Skakkakot, er nú rifið. (Bcint norður af Landakoti, cn á Hlíðar- húsavelli, stóð upphaflega kot, sem Jaðar hjet. En á uppdrætti Lie- vogs af Reykjavík er það kallað Skakk eða Skakkakot og festisf það nafn við það. Það mun hafa verið rifið um 1870. Þar bjó Teitur fað- ir Helga hafnsögumanns). 83. Hali utast í túninu, stendur enn. (Þetta var gamalt býli og stóð á holti vestan við Landakct og Hlíðarhúsatúnin. Þar bjó semast Eyvindur Jó^sson, alkunnur ferða- garpur og fylgdarmaður út'end- inga. Sonur hans var Ólafur versl- unarmaður. seinast umsjónarmað ur í Landsbankanum). 84. Garðhús og tveir eða þrír bæir í Ánanaustum (Garðshús stóðu fvrir vestan mýrina sem var á milli Bakkastígs og Brunnstígs Þar bjó lengi Bjarni hafnsögumað- ur Oddsson). 85. —87. Ánanaust. (Þar voru þrir bæir og er ekki langt síðan að sá seinasti fell í valinn. Ána- naust var hjáleiga frá Hlíðarhús- um. Þar bjóð eitt sinn Pjetur Gísla- son faðir Gísla læknis á Húsavík og Eyrarbakka. Þarna reisti Alli- ance fiskverkunarstöð síðar). 88.—90. Götuhús. Á Götuhúsa- túninu, sem kaupm. G. Zoega á, stóðu 3 bæir, sem nú eru allir eyði- lagðir. (Götuhús, altaf kölluð Göt- hús, stóðu norður og vestur af þar sem nú er hús Geirs Zoega vega- málastjóra. Var það lengi hjáiciga frá Reykjavík, en lögð til innrjett- inganna. Á seinni hluta 18. sldar bjó þarna einn af merkustu mönn- um Reykjavíkur á seinni tíð, Sig- urður Erlendsson, Brandssonar lög sagnara Bjarnhjeðinssonar. Þarna bjó síðar um hríð Einar Jónssor. frá Dúki, faðir Bergþóru konu Ara Magnússonar í Skálholtskoti. Smám saman hnignaði Göthúsum, eirtkum eftir að jörðin var lögð til innrjettinganna. Eftir 1800 eign- aðist Petræus þau og þá munu hafa risið þar upp tvö tómthúsbýli í við- bót. En 1862 eignaðist Geir Zoége býlið. Þá bjuggu þar þrjár fátæk- ar fjölskyldur. Geir ljet rífa alla kofana og sljetta yfir rústirnar en girða landareignina. Var hún upp frá því kölluð Geirstún). 91.—93. Sauðagerði. Fyrir utan garðana voru 1830 tvö eða þrjú kot í Sauðagerði. (Sauðagerð’ var upphaílega beitarhús frá Hlíðar- húsum. En í byrjun 19. aldar risu þar upp nokkur býli í þjettri hvyrf- ing og hafa líklega öll verið köll- uð í Sauðagerði. Þar bjó eitt sinn Jón Þórarinsson, faðir Þórðar úr- smiðs og þeirra bræðra). 94. Þorgrímsstaðir (voru beint vestur af Landakoti, kendir við Þorgrím Evlífsson, föður Torfa prentara. Bærinn stóð um það bil þar sem Túngata og Bræðraborg- arstígur mætast). 95. Bráðræði (var uppliaflega hjáleiga frá Seli og bygðist um miðja 18. öld. Þótti það lítið kot og ljelegt. Seinast bjó þar Magn- ús Jónsson frá Ármóti, afi.Jóns Hj. Sigurðssonar læknis. Hann reif kot ið og bygði þar timburhús). 96. Sel (var áður kirkjujörð, en seld undan kirkjunni um miðja 19. öld. Þar bjó á síðari hluta 18. aldar Þorfinnur lögrjettumaður, er síðar bygði Þorfinnsbæ. Þá tók við sjera Brynjólfur Sigurðsson og bjó þar einn Reykjavíkurpresta. Þar bjó seinna Magnús Magnússon hreppstjóri, fyr á Lambastöðum, en mikil ætt er frá honum komin. Sonardóttir hans var Þóra, er lengi var ráðskona hjá prins Valdemar). 97. Stcinholt. (Þar bjó seinast Jónas Jónasson lögregluþjónn). 98. Litla-Sel. Það stóð í Selstúni og voru þar síðar þrjú býli: I.itla- sel, Miðsel og ívarsel. Kent við ívar nokkurn Jónatansson). 99. Pálshús (voru á milli Sels og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.