Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 12
504 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Eldsvoðar í sveitum Með vaxandi notkun rafmagns og allskonar vjela i sveitum landsins, má búast við því að eldsvoðar verði þar tiðari en áður hefur verið Hinni nýu tækni fylgja hættur, einkum ef skortir á nægilega gæslu Það getur því verið fróðlegt að heyra hvernig farið hefur fyrir bænd- um annars staðar. Af revnslu þeirra er hægt að varast vitin. í BANDARÍKJUNUM fóru bænd- ur fyrst fyrir alvöru að nota alls- konar rafmagnsvjelar og hrevfla við búskapinn að lokinni fyrri heimsstyrjöld. En þetta jókst þó stórkostlega í seinni heimsstyrj- öldinni. Þá var lagt fast að bænd- um að framleiða sem mest, og til þess þurfti að nota vjelar. Áiang- urinn varð sá, að framleiðsla land- búnaðarafurða þrefaldaðist í stríð- inu, þrátt fyrir minni vinnukraft en áður var. En þessum framförum hefur fylgt það, að eldsvoðum hefur far- ið ört fjölgandi. Stafar það mest af kæruleysi og hugsunarleysi, því að bændur kunna ekki enn að fara með þessar vjelar. í bændablaðinu „Agricultural Engineering“ segir nýlega frá því, toifbæirnir höfðu sína annm.arka. En þótt nútíma menningin fordæmi þá niður fyrir allar hellur, bá er ekki víst að þeir hafi verið verri mannabústaðir heldur en skúrarn- ir, braggarnir og kjallararnir eru nú á dögum. Það er að mmsta kosti víst, að fólkið, sem bjó í torfbæunum og ólst þar upp, var engu óhraustara nje kvellisjúkara en fólk er nú á dögum. Helsti munurinn á torfbæakynslóðinni og steinhúsakynslóðinni mun ven sá, að unglingar eru bráðgjörri nú en þá, en það stafar miklu fremur af bættu viðurværi heldur en bætt- um húsakynnum. Á. Ó. að eftirlitsmaður hefði farið um bygðir bænda í Minnesota til þess að athuga raflagnir á bæunum. Hann hafði komið á 200 bæi áður en hann fann raflögn, sem var ó- aðfinnanleg. Á undanförnum árum hafa eldsvoðar á sveitarbæjum, sem stafað hafa frá raflögnum, valdið 30 miljón dollara tjóni. Vá- tryggingarfjelögin segja að 90% af þessum eldsvoðum hafi verið sjálf- skaparvíti ,stafað af trassaskap og kæruleysi bænda í meðferð raf- magns. Algengt er það, þegar öryggi bila, að bændur setja smápening undir það. Þétta dugar í bili, en leiðir altaf til eldsvoða, máske eft- ir nokkra daga, máske ekki fyr en eftir nokkra mánuði. Margir bændur, sem hafa fengið raflögn í íbúðarhús sín, vilja einn- ig fá rafmagnsljós í hlöðurnar og gripahúsin. Máske þykist bóndi þurfa á auknu rafmagni að halda þar vegna þess að hann hefur feng- ið sjer mjaltavjel. Honum finst þetta ákaflega auðvelt. Ekki er annað en leggja streng frá íbúðar- húsinu í útihúsin og hleypa raf- straumnum á. En þessu fylgir fimm föld hætta: 1. Hann gætir þess máske ekki að hafa vírinn nógu hátt uppi, en það er nauðsynlegt, svo að ekkert geti rekist í hann. 2. Hann notar máske ekki vír af hæfilegum gildleika til þess að flytja strauminn. 3. Hann notar ekki einangraðan vír. 4. Hann tengir ekki hina nýu leiðslu rjett við gömlu leiðsluna. 5. Hann' gáir þess ekki að fult álag hefur þegar verið á leiðsl- unni, og með nýrri leiðslu verður álagið of mikið. Hættulegt er að fara með flytj- anleg rafljós um heyhlöður. Það er einnig stórhættulegt að hafa þar einhverjar rafmagnsvjelar, sem ekki eru jarðtengdar. Stórkostlegur munur er nú orð- inn á hve margskonar þægindi sveitarfólk hefur fram yfir forfeð- ur sína. Húsmæðurnar eru nú laus- ar við mörg erfið störf, svo sem þvotta og vatnsburð. Þær þurfa nú ekki að fara á fætur fyrir allar aldir til þess að taka upp eld. En jafnhliða þessu hefur eldhættan aukist að sama skapi. Nýustu framfarir í landbúnaði eru þær, að bændur þurfa nú ckki að bera hey sitt inn í hlöður. Þeir hafa fengið vjelar, sem saxa heyið og blása því upp í hlöðurnar. En ekki er þetta hættulaust. í heyinu geta verið smásteinar. Um leið og þeir koma við heysaxið getur hrokk ið af þeim neisti, sem kveikir í heyinu og svo er þessu blásið upp í stálið. Af slíkum íkveikjum hlaust 200.000 dollara tjón árið sem leið. Þá eru súgþurkunarvjelarnar ekki öruggar, margar hverjar. — Bændur hafa sjálfir verið að út- búa handa sjer súgþurkunarvjelar og margar þeirra eru þannig að neistar geta fylgt súgnum. Vátrvgg ingarfjelögin segja að ekki sje um það að tala hvort þessar súgþurk- anir geti kveikt í, heldur hvenær þær muni gera það. Svo viss eru þau um það að eldsvoði hljóti að stafa af þeim. Þess vegna eru þau nú hætt að vátryggja bóndabæi nema því aðeins að rækileg úttekt fari fram áður, og vottorð sje um það að farsvaranlega sje frá öllum vjelum gengið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.