Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1949, Qupperneq 4
600
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
jflK; *■» -«1'
hafði þetta mikla þýðingu fyrir mig
sjálfan.
Mjer bafði ekki komið til hugar
að jeg mundi vera með krabba-
mefn. Jeg helt að ekkert gengi að
mjer'ahnað en það, að hryggur-
inn’var brotinn. Það var ekki fyr
en seinna, þegar jeg ætlaði að fara
að skrifa þessa grein, og spurði
læknana enn ýtarlegar um lækn-
inguna> að jeg fekk að vita hið
rjett*;*y ;
VEIivINDIN í bakinu á mjer byrj-
uðu ipi£lu fyr en jeg hafði hald-
ið, og á alt öðrum stað í líkaman-
um^ Áljð 1933 hafði jeg fengið
bólguþrimil á hálsinn. Jeg fann
ekkerJ^U í honum og helt að þetta
væri SejJi. Það gerði mjer ekki ann-
að mein en það, að mjer gekk illa
að fá-g&yrtur með nógu víðu háls-
máli. Jeg ljet því lækni skera þetta
mein burt. En árið 1946 tók það
sig upp^aftur og aftur varð jeg
að látá lsekni nema það á burt.
En læknirinn tók að þessu sinni
dálíti4. aí þessu æxli og sendi til
ranÁsóknar. Úrskurður rannsókn-
arstoíunnar var sá, að jeg væri
með krarbbamein í skjaldkirtlinum.
En þettSí fekk jeg ekki að vita.
Þessi seinni uppskurður var
gerður of seint. Hann gat ekki
komið í veg fyrir það, að krabb-
inn festi rætur annars staðar í
líkama mínum. Krabbafrumur
höfðu borist með blóðinu og sest
að í hryggnum neðst. Þar átu þær
upp neðsta hryggjarliðinn svo að
ekki var annað en skelin eftir. Og
við áfallið þegar jeg datt í stigan-
um, hrökk þessi skel í sundur. Það
má því með sanni segja að þetta
óhapp bjargaði lífi mínu, þannig,
að það komst upp í tíma hvernig
var ástatt með mig.
Það er af einkennilegum ástæð-
um að jeg skyldi læknast. Það er
sem sje svo um skjaldkirtilinn, að
hann er jafn gráðugur í joð og barn
í sælgæti. Honum er alveg sama
hvort joðið er geislavirkt eða ekki,
hann sogar það í sig. Og það er
hreint og beint banatilræði við
krabbafrumurnar. Þær þola ekki
geislana. Þenna eiginleika skjald-
kirtilisins hafa læknarnir fært sjer
í nyt og látið menn drekka joð-
blöndu
Jeg er alveg sannfærður um, að
hið geislavirka joð hefir eigi að-
eins læknað mig, heldur einnig
yngt mig upp. Jeg er miklu ung-
legri útlits en jeg var áður og er
miklu ljettari í skapi en jeg var.
Jeg var áður hrukkóttur og tek-
inn í andliti, en nú er jeg fullur
að vóngum og húðin er sljett og
frískleg eins og á barni. Vinir okk-
ar óska Dorothy í gamni til ham-
ingju með „sinn unga mann“
Jeg hefi svo góða matarlyst að
jeg verð að gæta hófs, til þess að
fitna ekki um of. Jeg stunda at-
vinnu mína hvern dag, og jeg get
ekið í bíl allan daginn án þess að
finna til þreytu.
Læknarnir vilja ekki taka svo
djúpt í árinni að jeg sje albata af
krabbameininu. Þeir segja, að sjúk-
dómurinn hafi verið stöðvaður. en
mjer stendur þetta rjett á sama.
Jeg hefi tekið eftir því að læknar
eru tregir á að telja menn albata
af einhverjum sjúkdómi, fyr en
þeir þá deya úr einhverju öðru.
^ ^ ^ ^
HEFURÐU nokkurn tíma heyrt hvað
gerist í líkama þínum á sólarhring?
Hárið vex um 0.01714 þuml., neglurnar
um 0.000046 þuml. Líkaminn framleið-
ir orku, sem nægja mundi til þess að
lyfta 450 smálesta þunga um eitt fet.
Þú hreyfir 600 vöðva. Útgufun úr lík-
amanum er 1.43 peli. Þú andar að þjer
438 teningsfetum af lofti. Þú dregur
andann 23.040 sinnum. Blóðið í æðum
þinum fer 168.000.000 enskar mílur.
Hjartað slær 103.680 sinnum. Ef þú ert
karlmaður talarðu um 4.800 orð, en ef
þú ert kona, þá sennilega nokkuð
meira.
Bamahjal
Pabbi kom einu sinni heim með
ís, til þess að gæða konu sinni
og syni á honum. Rjett þegar þau
voru sest að borðum, var barið
að dyrum og pabbi bað son sinn
að skreppa fram og sjá hver væri
kominn. Rjett á eftir heyrir hann
að strákur segir fram í anddyri:
— Komdu sæll, afi. Viltu gera
svo vel að bíða hjerna dálitla
stund,' því að við erum vant við
• látin.
★
Einu sinni kom Benni brosandi
í skólann. Kennarinn gat ekki
setið á sjer að spyrja:
Nei, Benni, hvar fjekstu þetta
fallega bros?
Nú, brosið, sagði hann, jeg
vaknaði með það í morgun.
★
Bjössi kom heldur kampakát-
lir heim og sagði mömmu sinni
frá því að húsmóðir í næstu götu
hefði gefið sjer sætakökur og
límonaði. Mamma varð byrst:
— Hefi jeg ekki oft sagt þjer
það Bjössi, að þú mátt ekki fara
í önnur hús nema þú sjert boðinn
þangað?
— Jeg var boðinn, sagði Bjössi.
Jeg gekk þar að dyrunum og barJði
og þá sagði einhver: Kom inn