Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1949, Blaðsíða 5
601
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
Á LEIÐ MEÐ ÆRNAR MÍNAR TII SLÁTRUNAR
IIAUST/Ð 1949.
Um Brimnesskóg þokuna í læðing
leggur
frá lognsljettum bláum sæ;
haustfölva yfir mýri og móa
hún myrkþrungin dregur æ.
Þögnin hún ríkir, frá holtinu ei lengur
hreimurinn berst eður kvak;
síðasti farfugl floginn í suður,
fjarlægt hans vængja blak.
Hjer reikum við tveir, með hjörð yfir
haga
heimfúsa i suðurátt;
til Hlíðarfjallanna, og biómskrýdda
balans
að baki, skynjað er þrátt.
Hvert fótmál er færist nær sænum
er fastara sporað svið;
það er líkt og hjörðin mín dauðadæmda
dóminn sinn kannist við.
Eður skynjar hún eitthvað annað
yst við þokunnar dökka fald;
skrjáfar í laufi og lyngi
sem línserk meyjar við bænahald.
Reksturinn reikar af vegi
ráðvilt, um haglendin víð,
fyrir hálskornum dilkám í hópum
á heimleið í Blönduhlíð.
Nú er eg gamall á göngu
til grafar eins og þið;
best væri að kýll fylgdi karli
kröpp yfir heljar svið.
Við annan fjárstofn ei uni,
þið urðuð hluti af mjer,
vaxinn af vinar þeli,
vitni um það margur ber.
Hver sök fær af ófremdum öllum,
skal ósvarað látið, þótt beðið sje grand,
en dóm fær sá dapran og þungann,
er dró hinar útlendu skjátur á land.
Á helvegum herstjórnar ríkja
höktir nú þjóðin með búskapinn sinn;
og lærir að ljúga og svíkja
í loddaradansi um gullkálfinn.
í l.vngmóa hungraða hjörð mína hvíli
minn hugur til framtíðar leit;
hvort á eg hjer aftur að koma
sem örvona maður úr bjargráða-
sveit?
Eg ráðþrota reika með sjónum
og reikna ei út þau svör;
haustsólin kyssir kjarrvið í mónum
i Kolkuós er lokið för.
BRIDGE
„Háspil á háspil“ er spilaregla
margra, en ekki er það altaf til bóta,
eins og sjest á þessu dæmi:
S. D G 4
H. 4 3 2
T. G 6
L. K 9 6 5 3
S. K 10 5 •
H. D G 10
T. 9 5 3 2
L. D G 10
S. Á 3 2
H. Á K 9 8 7 6
T. K 4
L. Á 4
S spilar 4 hjörtu og V slær út S 9.
N drepur með gosa. Ef Austur drepur
með kónginum, þá fer spilið þannig:
S spilar fyrst trompás og kóng, síðan
L ás og kóng og slær svo út þriðja
laufinu og drepur með trompi. Nú eru
laufin í borði frí og hægt að koma
blindum inn á S D þegar H D er farin.
A og V geta aðeins fengið tvo slagi
á tigul.
En ef A gefur S G í upphafi þá
hefur S tapað spilinu. Eina fangaráð
hans er að slá út tigli í þeirri von að
A hafi ásinn. En það fer svo, að hann
missir 2 slagi í tigli, 1 í spaða og 1 í
trompi.
^ ^ ^ ^
RÁÐNINGAR
á þrautum í Jóla-Lesbók
S. 9 8 7 6
H. 5
T. Á D 10 8 7
L. 8 7 2
Hvort angar hjer ilmur úr grasi,
annarlegur við mína kend;
er loftmjöð hjer lævi blandin
á lyngskógaheiði í Kolkuós grend.
Eða eru það blóðfórnir bænda
í bikar himinsins fallnar inn:
er eitra hjer andrúmsloftið
og angra huga minn.
Með hjörð minni hnípinn eg reika,
og horfi með votri brá
munaðarleysingja mína
mæðast veginum á.
Hvert andlit er mjer í minni
að árum lambsvetri frá;
eg nefndi ykkur allar nöfnum
og naut ykkar þroska að sjá.
Hver skiiur mögn, hins dulda heita
dreyra,
þá dvinar lif, og þrýtur krafturinn.
Og ábyrgð, sem að þyngist meir og
meira,
mannanna glöp, við lánardrottinn sinn.
Viljugur ei eg fór á fjörur þínar,
fallvalta líf, að hirða skerfinn minn;
set þú að lokum sök á hendur mínar,
svo skal eg jafna við þig reikninginn.
MAGNÚS Á VÖGLUM.
tji’ 01! riii
■ i.y -' t i t. a
Fjörkum breytt í þrista.
Þetta er galdurinn við að breyta
fjörkunum í þrista.
Spilaþraut.
Leggja skal spilin þannig:
SÁ — HK — TD — LG
LG — TD — HÁ — SK
HG — SD — LK — TÁ
TK — LÁ — SG — HD