Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Blaðsíða 3
UCSbOK MORGUM bii AÐSJuN 3
271
Kappliðið „Racing Club de Paris“, sem Albert er í. Hann er annar maður
frá hægri í fremri röð.
fyrstu skilyrðin til þess að íþrótta-
menn, sem hæfileikana hafa, geti
skarað fram úr. Og Albert hefir
farið eftir ströngustu reglum í
þessu efni. — Hann er algjör reglu-
maður á vín og brúkar ekki tóbak.
Hann skiftir tíma sínum milli
þjálfunar og heimilisins. Fyrir
leikana verður hann að fara eftir
ströngustu reglum um lifnaðar-
háttu. Það kemur fyrir að kapp-
liðið er einangrað í nokkra daga á
undan stærstu kappleikunum.
Liðið, sem Albert keppir með,
leikur 60—70 leika árlega. Fyrst
og fremst á hverjum einasta
sunnudegi. Þar fyrir utan eru svo
„vingjarnlegir“ leikar, þar sem
ekki er talið aðalatriðið að sigra,
heldur að leika vel.
Atvinnumenn í knattspyrnu
þjálfa sig' á hverjum einasta degi
allan ársins hring. Fyrir hádegi
eru líkamsæfingar margskonar. En
eftir hádegi er þjálfað í meðferð
knattar og leikni á vellinum. Auk
þess heldur þjálfarinn fyrirlestra
um leikni og gerir áætlanir um
leika, sem síðar eru reyndar á æf-
ingarvellinum. — Einu sinni í viku
leika knattspyrnumennirnir golf.
— Frídagar eru aðeins gefnir eftir
stóra leika og stundum verða þeir
tveir, ef liðið hefir sigrað.
Káðleggur ekki ungum
Islendingum að fara inn á
atvinnubrautina.
Er jeg spurði Albert, hvort hann
ráðlegði ungum knattspyrnumönn-
um á íslandi, að reyna að feta í
fótspor sín, sagði hann að það
væri síður en svo, að hann vildi
ráðleggja nokkrum manni að ger-
ast atvinnumaður í knattspyrnu og
það því síður, sem hann kynnt-
ist atvinnuknattspyrnunni betur
í fyrsta lagi er samkeppnin í
þessari íþróttagrein ákaflega hörð.
Það þarf mikla sjálfsafneitun og
þrek til að koma sjer áfram. At-
vinnuknattspyrna er mjög hættu-
leg íþrótt og meiðsli, jafnvel al-
varleg meiðsli eru algeng. Ef at-
vinnumaður meiðist svo hann get-
ur ekki leikið framar er hann at-
vinnulaus og frægð fatlaðra íþrótta
manna gleymist íljótt.
„Nei,“ segir Albert. „Þá er bctra
að vera heima, hafa sína íöstu at-
vinnu og leika knattspyrnu sjer til
ánægju. Slasist maður er engin
hætta á atvinnu- eða öryggisleysi.
Hitt skil jeg vel, að það sje
freistandi fyrir góð knattspyrnu-
mannaefni að reyna sig. En þeir
ættu að fara mjög varlega, einkum
í fyrstu, og hugsa sig tvisvar um,
áður en þeir leggja út á þessa
braut“.
Knattspyrnuferð til Suður-
Ameríku og höfuðborga
Norðurlanda.
„Racing Club de Paris“, fjelagi
Alberts, hefir verið boðið í knatt-
spyrnuferð til Suður-Ameríku í
sumar og til höfuðborga Norður-
landa, annara en íslands. Enn er
ekki vitað hvað úr Suður-Ameríku
ferðinni verður, þar sem kappliðs-
menn hafa neitað að fara flugleið-
is, en ekki vitað enn, hvort hægt
er að koma við að fara með skipi.
En þessar ferðir verða ekki farn-
ar fyrr en eftir 14. maí, en þá fer