Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Blaðsíða 13
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 281 Það er gott að fá að sjá Umuti aftur.“ „Hvað er að heyra til þín, Raiere vinur minn,“ sagði jeg. „Þú ert kristinn maður og seinast í gær neyttir þú sakramentisins. Það er eténe að vaða eld — það er heið- inn forynjuskapur.“ „Nei, þessa er getið í biblíunni,“ svaraði hann. „Guð bjargaði pilt- unum þremur í Babýlon með því að kenna þeim Umuti, kenna þeim að vaða eld.“ „Hvar fer þessi Umuti fram?“ spurði jeg. „Jeg verð að vera þar viðstaddur." „Það verður í Aataroa dalnum á laugardaginn kemur.“ Það voru þá fimm dagar til stefnu, og mjer fanst þeir vera lengi að líða. Mjer var mjög mikil forvitni á að sjá þetta yfirnáttúr- lega undur, þar sem eldurinn virð- ist ekki vinna á hörundi manna. Jeg hafði að vísu sjeð þetta á Hawaii og víðar, en jeg hafði ekki fengið neina viðunandi skýringu á því, hvernig þetta undur mætti ske, er brýtur svo algjörlega í bág við náttúrulögmálin. Jeg vissi að þetta, að vaða eld, var áður þáttur í til- beiðslu eldguðsins, og hafði tíðkast víða um heim. Á fimtudaginn lögðum við þrír á stað til þess að vera við eldgöng- una. Leið okkar lá eftir þröngum stíg um þjettan skóg. Svo komum við þar sem var sljett grund und- ir fjórum gríðarmiklum kastaníu- trjám. Þar voru átta eða tíu menn að útbúa eldkistuna. Það var gert þannig, að þeir grófu gröf, 25 fet á lengd og 18 fet á breidd og 5 fet á dýpt, með sljettum veggjum. — Töframaðurinn hafði sagt nákvæm -lega fyrir um það hvernig gröfin ætti að vera. Moldinni hafði verið kastað upp á barmana, en þar sljett -að úr henni, svo að byngurinn var ekki nema um fet á þykt. Á gólfið í eldkistunni hafði verið raðað þykku lagi af trjálimi, en ofan á það stórum stofnum af kastaníu- trjám. Ofan á þessa stofna var svo raðað hnullungagrjóti og var hver steinn á stærð við mannshöfuð. Alt var tilbúið að bálið yrði kveikt. Vestur úr miðri grófinni hafii verið gerður skurður og þar átti að kveikja í eldsneytinu. Jeg sá ekki þegar kveikt var í, en það var gert á föstudagsmorgun, eða 36 stundum áður en eldgangan færi fram, en það var klukkan 8 á laugardagskvöld. Það var ofurlítið kul á laugar- dagskvöldið, óvanalegt á þeim slóð- um, svo að jeg fór í þunn silkiföt og setti morgunskó á fætur og lagði svo á stað með ljósker í hönd. Margt fólk var á ferð, allir þorps- búar streymdu til staðarins. Jeg hitti tvær kunningjakonur mínar, Mahine og Maraa. Þær voru báðar ógiftar og mjög fjörugar stúlkur. Þær skreyttu mig allan með blóm- um. Mahine var með munnhörpu og ljek á hana og við sungum og dönsuðum eftir veginum, svo að ljósin af kyndlunum fóru í skolla- leik við skuggana í skóginum. Þegar við nálguðumst eldkist- una fann jeg hitann leggja af henni um fimmtíu fet á móti mjer. Nú var gryfjubotninn ekki annað en glóandi steinar, og nokkrir menn voru að reyna að hagræða þeim með löngum spírum. í hvert skifti sem steini var velt, var hann rauð- ur og hvítglóandi. Og eldblossar stóðu upp á milli steinanna, því að enn logaði í viðnum undir þeim. Áhorfendur röðuðu sjer um gryf j -una í svo sem fjörutíu feta fjar- lægð. Þar stóðu þeir nú alvarlegir, hvísluðust á og biðu þess að töfra- maðurinn kæmi. Hann hjet Tufetu- fetu og hann sat enn einn inni í litlum kofa og bjó sig undir með bænahaldi. — Meðhjálparinn við kirkjuna fór nú til hans og tilkynti honum að alt væri tilbúið. Kom Tufetufetu þá og gekk hægt. Hann var í hvítum fötum, sem náðu nið- ur fyrir hnje. Á höfðinu hafði hann blómkrans og blómvönd í hendi. Hann staðnæmdist þrjú skref frá eldkistunni og hóf upp söng á Ta- hitimáli: m im:-.. >. ... .. Ó, andar, sem ráðið yfir eldinum, drag- ið úr mætti hans. Ó, ormur hinnar dökku jarðár, ormur hinrar ljósu jarðár, ferska vatnsi. s, sjóvatnsins, hitans i kist- unni, glóðarinnar í kistunni, stjórna þú fótum göngumannsins og band- aðu eldinum frá. Ó, kulda andi, látum oss ganga eftir endilangri eldkistunni. Ó, mikla móðir, sem ræður yfir eldi himnanna, haltu kyrru laufinu, sem espar eldinn. Leyfðu börnum þínum að ganga um stund á eldinum. Móðir fyrsta fótmáls. Móðir annars fótmáls. Móðir þriðja fótmáls. Móðir fjórða fótmáls. Móðir fimta fótmáls. Móðir sjötta fótmáls. Móðir sjöunda fótmáls. Móðir áttunda fótmáls. . _ , Móðir níunda fótmáls. Móðir tíunda fótmáls. » Ó, mikla móðir, sem ræður eldi himn- anna, alt er hulið.. Hann leit til himna og gekk tein- rjettur og hiklaust út á .glóandi steinana, án þess að hugsa nokkuð um hvar hann stigi niður. Hann var nakinn að öðru en því að hann hafði yfir sjer skykkju, sem náði niður fyrir knje. Hitastrauma lagði upp úr eldkistunni og jeg sá þá eins og iðandi tíbrá yfir henni. Tufetufetu gekk hægt og rólega eftir endlangri grófinni, — Svipur hans var rólegur og það var ekki að sjá að hann yrði var við neinn sársauka. Þegar hann var kominn alla leið sneri hann við og gel^k sömu leið til baka. .. ... . Áhorfendur höfðu staðið á önd- inni á meðan þessu fór frarn, en nú andvörpuðu allir samtímis eins og þungu fargi væri af þeim ljett.—

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.