Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS W 279 ílutningur á því örðugur, og kostn- aður við að vinna það mikill. Bygging húsa fyrir búpening og aðrar jafðabætur ljet síra Ólafur heldur ekki sitja á hakanum. Húsm hafði hann rúmgóð og björt og gætti hinna mestu þrifnaðar- og heilbrigðis ráðstafana. Túnið stækk -aði hann og bygði um það grip heldan garð. Einnig má þess geta, að hann hóf ræktun á jarðarávöxt- um og bygði varnargarða utan um hið ræktaða svæði. Þetta voru ný- ungar og nýbreytni í búnaði, sem ekki var alment þekt, og sóknar- menn hans tóku upp eftir honum síðar. Búskapurinn hjá Staðarprestin- um virtist ekkert rýrna þrátt fyrir mikinn kostnað við byggingar og ræktun prestssetursins. Heldur þvert á móti. Hann virtist vera sá maður, sem gat sótt fram á öllum sviðum og ekki vanrækja eitt verk, þótt hann beitti öllum sínum kröft um sjerstaklega að einhverju á- kveðnu. Hann varð brátt f járríkasti maður í sveitinni, sá hann og strax. hvílíkur hagur það var fyrir bænd- ur á góðum beitarjörðum að eiga nægan fjenað, og mun hann að vetrarlagi hafa haft um 300 fjár og þar af 100 sauði. Slíka fjáreign hafði enginn Staðarprestur haft í manna minnum, nema síra Ólafur. Kúabú hafði síra Ólafur mikið, þótt ekki sje það nákvæmlega sund -urliðað, „því það skifti fljótt um nautgriparækt á Stað, hvað hún var miklu meiri en hjá fyrirrenn- ara hans“, sögðu menn alment í sveitinni. Alifuglárækt hafði hann einnig, sem ekki tíðkaðist annars staðar. Hjer að framan er aðeins lýst einni hlið á þessum mikilhæfa manni, prófastinum Ólafi E. John- sen á Stað. En það er annað, sem ekki má láta óumtalað, og það eru áhrif hans út á við. Eins og geta má nærri leið ekki á löngu, að sóknarmenn síra Ólafs sáu, hve framúrskarandi ötull og stórvirkur framkvæmdamaður hann var, og urðu afleiðingarnar þær eins og vænta mátti, að bændur fóru að taka hann sjer til fyrirmyndar hvað snerti viðhald og ræktun ábúðar- jarða sinna, svo og um alla bún- aðartilhögun. Hann hafði með verk -um sínum skapað hreyfingu til framkvæmda og framfara, vakið nýtt líf til dáða, sem að vísu var til en ekki hafði látið á sjer bæra meðal almennings fyrri. Sagt í fám orðum, menn í sókn- um hans fóru hver af öðrum að endurbæta og byggja húsakynni sín, rækta tún sín, hlaða vörslu- garða og byggja heyhlöður og eftir því sem ástæður leyfðu í einu og sjerhverju að haga búnaðarháttum sínum eftir fyrirmynd síra Ólafs. Eins og áður er sagt var það eftir gamalli landbúnaðarvenju, að flest- ir bændur fóru til verstöðvanna á vetrum og skildu eftir konur og börn til að annast f jenaðinn og önn- ur störf, þar til þeir komu heim að afloknum vertíðum. Þessum bú- skaparháttum vildi síra Ólafur breyta. Hann leiddi mönnum fyrir sjón- ir, hve afar skaðlegt það væri fyrir alla afkomu þeirra, að láta bú sín og jarðir afskiftalausar og án allr- ar aðhlynningar mikinn hluta árs- ins. Af þessu leiddi, að búskapur- inn lenti í handaskolum, og þeir yrðu að leita á náðir eyamanna með matarhjálp á vetrum og láta af höndum sauðfje á haustin upp í skuldirnar. Þetta var þó ekki svo auðvelt að lagfæra, þar sem bæði var um bú- skaparlag og verslun að ræða, sem átt hafði sjer stað frá ómunatíð. En þetta tókst honum með festu og dugnaði. „Prófastur síra Ólafur leiddi bændum fyrir sjónir, hve mjög þeir færu á mis við hagnaðinn af búskap sínum með því að hlynna ekki að jörðum sínum, og jafnframt hvað mikið þeir töpuðu á verslun- inni við eyamenn. Smátt og smátt fellust fleiri og fleiri bændur á skoð -un prófastsins, svo nú (1878) eru

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.