Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Qupperneq 11
& LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26,1 T/ 4S'i \ s- >■* 1 / • J sSAXEMl ISlA GR4NDE KBWS [f ^ 45 “S ta «*»» tvY • Ð0USK£r.TY on $Cí' í , . AURORA i *0Jlyl M ! .. .•B0UVET4 X TOMPSON O'níT j 'þíÍHlM -V • - • >• 6 Hjer sjást nokkrar af hinum dularfullu eyum, sem komist hafa á siglingakort. / sem hann sá framundan. En alt í einu hófst land þetta á loft. Það hafði þá ekki verið annað en skýa- bakki. Þannig getur Lindeman hafa missýnst, og af því að hann sigldi ekki til landsins, þá stóð hann í þeirri óbifanlegu trú, að þarna hefði hann fundið land. Þeim Galloway og Head hefir missýnst á sama hátt, og af því að þeir vissu að Lindeman hafði fundið þarna ey áður, voru þeir ekki í neinum vafa og athuguðu þetta því ekki nánar. Gamall málsháttur segir að maður sjái það, sem hann býst við að sjá. Þetta hefir skeð þúsund sinnum. Þeir Galloway og Head áttil báðir von á því að sjá land þarna og þess vegna sáu þeir land — þótt það væri ekki annað en skýabakki. BOUVET-EY Þessi ey er um 1500 sjómílur suð- vestur af Góðvonarhöfða, og hún er til þótt menn heldu lengi vel að frásagnir um hana væri ekki annað en uppspuni. Nú á seinni ár- um er hún orðin fræg vegna þess, að bæði Norðmenn og Englending- ar hafa viljað helga sjer hana. Ey- an má heita einn jökull og þess vegna ekki til mikils að slægjast þar sem hún er. En hún er einstök í sinni röð, því að hún er afskekt- asti landblettur á jörðinni. Það má draga svo stóran hring um- hverfis hana og nágrannaeyna Thompsoney, að innanmál hans sje svipað að stærð og flatarmál Evrópu allrar, og snertir þó hring- urinn hvergi land. Enginn annar staður á jörðinni er þannig sett- ur. Það var franskur maður, J. B. C. Bouvet de Lozier, sem fyrstur fann eyna og það skeði á nýárs- morgun 1739. Þá var slæmt veður, svo að hann gat hvorki siglt um- hverfis eyna nje gengið á land. Hann var heldur ekki viss um að hann hefði fundið eyland, helt jafn- vel að þetta væri skagi á „Suður- landinu“. Menn voru þá vissir um að geisistórt meginland hlyti að vera á suðurhveli jarðar til þess að vega á móti landflæmunum á norðurhvelinu. Það var ekki fyr en Cook færði sönnur á að suður- skautslandið hlyti alt að vera fyrir sunnan 60. breiddargráðu, að þe,tta mikla meginland fór að dragast saman í meðvitund manna. Bouvet de Lozier var siglinga- fróður maður og honum taldist svo til að eyan væri á 54. gr. suður- breiddar — og það er nær rjett — og 9. gr. austurlengdar — en þar skakkar nær 5 gráðum. Það má furðulegt kallast að hon- um skyldi heppnast að hitta á þessa ey þarna úti í reginhafi, því að hún er ekki nema 9 km. löng. Þeim, sem á eftir komu, gekk ekki jafn vel. Furneaux reyndi að finna eynail774 og Cook reyndi að finna hana 1775, en báðum mistókst. — Fóru menn þá að efast um að ey þessi væri til. Og svo ramt kvað að þessari vantrú, að menn tóku ekkert mark á því er enskur maður, Lindsay að nafni, sagöist hafa sjeð eyna 1808. Honum hafði ekki tekist að komast á land vegna þess hve mikiil hafís var umhverfis eyna, en hann mældi staðinn ná- kvæmlega, 54. gr. 15 mín. s. br. og 4 gr. 15 mín. austur lengdar. —■ Morell kom þarna 1822 og gekk á land á eynni, en samt vildu rrtenn ekki trúa því, að hún væri til. Enskur selveiðamaður, Norris að nafni, kom til eyarinnar 1825, dró þar upp enska fánann og helgaði Strykalinan sýnir ferðalaff Weddells er hann var að leita Aurora-eyanna. Hanit sigldi marg^innis fram og: aftur þar sem þær áttu að vera.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.