Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1951, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1951, Blaðsíða 2
318 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Jón SignrSsson, málverk Asgríms Jónssonar, er hann málaSi fyrir nemendur Mentaskólans 1911. MálverkiS keypti síðan Andrjes heit. Fjeldsted, augnlæknir. Það er nú í eigu Ólafs Thors. 'S’ EXSK’ FANINN Fánamálið var hjartans mál Islend- inga á þeim árum. Bláhvíti fáninn, sem Einar Beflediktsson orti til, átti að útrýmá „Dannebrog" hjer á landi á næstu árum. Hann var tákn frelsishug- sjóna vorra og sjálfstæðisstefnu. Þó hafði þjóðin ekki nándar nærri orðið samhuga um gerð þessa fána síns. Enda voru á því alvarlegir meinbugir, að hann gæti nokkurntíma orðið lög- helgaður fáni. M. a. var hann svo til af sömu gerð og Grikklands fáni, eða „Krítarfáninn", sem hann stundum var nefndur, hon- um til óvirðingar. Sú saga var sögð á þeim árum, til merkis um að bláhvíti fáninn gæti aldrei orðið þjóðfáni íslendinga, vegna líkingarinnar við hinn gríska, að þegar Friðrik konungur VIII. var hjer á ferð sumarið 1907 og fór norður um land, sigldi vjelbátafloti ísfirðinga til móts við konungsskipið. Allir voru þeir bátar prýddir íslenska fánanum. Konungur stóð í lyftingu, þegar bátaflotann bar að skipi hans. Var mælt að hann hefði þá komist svo að orði: „Þetta mundi hafa glatt Georg bróður minn,“ en hann var þá konung- ur í Grikklandi. HATÍÐ mentaskólans Þannig stóð á ferðum mínum þennan morgun að jeg hafði sammælst við nokkra skólafjelaga mína í Mentaskól- anum að mæta þar klukkan sjö, til þess að raða bekkjum í hátíðasalnum, og koma þar öllu í röð og reglu fyrir samkomu, sem þar átti að befjast kl. 8% f. h. Með þessari athöfn í Mentaskólanum hófust hátíðarhöldin þennan dag hjer í hænum. Sú athöfn hafði verið stund- sett svo snemm-degis, vegna þess, að mikið stóð til um daginn, margir sömu mennirnir, sem áttu að vera þarna við- staddir, höfðu mörgu öðru að sinna þann dag. Stúdentspróf stóðu yfir í Mentaskól- anum. Höfðum við stúdentsefnin lokið hinu skriflega prófi fyrir þennan laug- ardag. En munnulegu prófin voru eftir. FORSETAMYNDIR Á heustnóttum þennan vetur hafði verið ákveðið á almennum skólafundi, að nemendur skólans gæfu honum mál- verk af Jóni Sigurðssyni, til að hengja upp í gamla Alþingissalnum, uppi yfir þeim staú, þar sem forsetastóll Jóns hafði staðið, er þing var þar háð. Hafði mjer verið falið að annast þessi sam- skot, ásamt nokkrum skólabræðrum mínum, og undirbúning að afhjúpun myndar þessarar þessa morgunstund. Þennan vetur var ákveðið, að reisa Jóni Sigurðssyni líkneski hjer í bæ. — Nefnd manna stóð fyrir reisn forsetamyndarinnar, og gaf út ávarp 1. janúar 1911, þar sem auglýst voru þjóðarsamskot til þessarar myndar. Þegar fram yfir nýár kom, vann Einar Jónsson að myndagerð þessari, í her- bergi í Alþingishúsinu, vestan fordyris, Það húsnæði var lítið notað þá, vegna þess að þaðan var Landsbókasafnið ný- flutt i hina nýu byggingu við Hverfis- götu. Enda skyldi hinn óstofnaði há- skóli fá þau húsakynni til umráða. Við Mentaskólanemendurnir litum svo á, að. þar sem forsetinn hafði háð alla sína þingbaráttu í hinu virðulega skólahúsi, þá stæði okkur næst að minnast 100 ára afmælisins, með því að sjá skólanum fyrir sjerstakri forseta- mynd. Enda var samband Jóns Sigurðs- sonar við Latínuskólann svo ofarlega í hugum manna að til orða kom að reisa mynd hans fyrir framan skólann. TVEIR MÁLARAR Tveir voru þá íslenskir listmálarar Þórarinn Þorláksson og Ásgrímur Jóns- son. Samskotanefnd skólapilta fanst rjett að gefa þessum báðum íslensku málurum kost á að mála þessa mynd fyrir skólann. Skyldum við síðan fá nefnd manna, er allir höfðu verið per- sónulega kunnugir Jóni Sigurðssyni, til að dæma um það, hvor myndin þeir teldu að hæfði minningu forsetans bet- ur. Málararnir tveir fjellust á þessa til- högun og höfðu lokið verki sínu nokkru áður en hátíðisdagurinn rann upp. — Hvorugur þeirra hafði sjeð Jón Sig-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.