Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Blaðsíða 6
r 194 *
C" LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
KOPTINN VERDUR SAMCÖNGUTÆKI
FRAMTÍDARINNAR
Helicopter-flugvél
KOPTINN hefir reynzt framúr-
skarandi vel í Kóreustyrjöldinni og
miklu betur en nokkur maður
hafði gert sér í hugarlund. Með
honum hafa hersveitir verið flutt-
ar til vígvaUanna og komið þang-
að óþreyttar, i ?tað þess að áður
komu þær pffast til víglínunnar
dauðþreyttar af langri göngu. Með
honum hafa hersveitir og birgðir
verið fiuttar upp á fell og tinda.
Þeir hafa bjarg^ð særðum mönn-
um, flutt vistir og hjúkrunargögn
til afskektra liðsveita og haldið
uppi eftirliti og njósnum. Þeir hafa
orðið svo vinsælir, að það gengur
ævintýri næst
En koptinn er líka nvtsamlegur
til margra friðarstarfa. Hann er
hin bezta björgunarflugvél sem
þekkist. Með honum er hægt að
vökva víðlenda akra, dreifa yfir þá
fræi og áburði. Hann er heppileg-
astur allra flugvéla til þess að taka
myndir úr lofti og rannsaka ókunna
stigu. Hann er heppilegur til þess
að halda vörð um skóga og berjast
gegn eldi í þeim. Hann er heppileg-
ur til strandvarna og til þess að
flytja póst. Og sumir spá því að
innan fárra ára verði hann helzta
samgöngutækið.
fc ' yr
& HUGMYNDIN ER GÖMUL
r Þótt telja verði að koptinn sé
r nýasta gerð flugvéla, þá er þó langt
síðan að hann var upp fundinn.
Menn segja að á 13. öld hafi Kín-
' verjar búið til leikfang, sem var
alveg eins og koptinn. Annars er
franski flugvélasmiðurinn, Louis
Breguet, talinn vera sá, er fann
hann upp. Árið 1907 smíðaði hann
kopta, sem gat hafið sig til flugs,
en hætti við hann vegna þess hve
illa gekk að stýra honum. En árið
1909 tók ameríski flugvélasmiður-
inn Igor I. Sikorski að fást við
smíði kopta og honum er það mest
að þakka hverjar framfarir hafa
síðan orðið á smíði þessara sam-
göngutækja.
Talið er, að 1200 koptar hafi þeg-
ar verið smíðaðir í Bandaríkjun-
um og nú vinna verksmiðjurnar
eingöngu fyrir stjórnina — hún
kaupir alla koptana — svo að þeir
eru ekki orðnir almenningseign
ennþá. En verksmiðjurnar eru
nú að búa sig undir fjölda-fram-
leiðslu. Og svo mikla trú hafa
menn á þessu farartæki, að flug-
félagið Wiggins Airways í Massa-
chusettts hefir lýst yfir því að það
ætli algerlega að skifta um flug-
vélar og fá sér kopta, undir eins
og tækifæri gefst. Koma koptarmr
þá algjörlega í staðinn fyrir venju-
legar flugvélar á öllum þeim flug-
leiðum, sem þetta félag hefir, og
jafnframt ætlar það að færa út
kvíarnar og halda uppi flugsam-
göngum við New York og nágrenni
hennar.
FLYTJA FÓLK 'T
TIL FLUGVALLA
En enda þótt koptarnir útrými
ekki öðrum flugvélum til fólks-
flutninga, þá geta þeir komið að
góðu gagni við að flytja farþega
frá borgunum út til flugvallanna.
Mörgum mönnum þykir, serri von
er, leiðinlegt að eyða jafn löngum
tíma í það að komast út til flug-
vallanna, eins og flugferðin sjálf
stendur yfir. En þetta getur kom-
ið fyrir í stórborgum. Flugvellirn-
ir eru utan við borgirnar og víða