Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Page 13
f LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Alaska. Ameríska lóan verpir í Al- aska og um allan nyrzta hluta Kan- ada og á eyunum þar fyrir norðan. í Alaska verpa þessar tvær tegund- ir oft á sömu slóðum, hver innan um aðra, en það bregzt aldrei að þær fara sín í hvora áttina þegar haustar. — Kyrrahafslóan fer , til Hawaieya, en ameríska ióan suður til Argentínu. Það eru um 2000 mílur enskar sem ' Kyrrahafslóan verður 5að fljúga í einum áfanga yfir opið haf til þess að komast til Hawaieya. Þetta er í sjálfu sér afrek, er gerir flugvélum mannsins skömm.Væng- haf lóunnar er ekki nema um 20 þumlungar og ef hinar stóru flug- vélar ætti að fljúga tiltölulega jafn langt í einum áfanga, miðað við vænghaf, þá yrði sá áfangi að vera 150.000 mílur, eða sem svarar því að þær færi sex sinnum umhverfis jörðina. Kyrrahafs-lóurnar halda til á Hawaieyum um átta mánaða skeið og lifa þar kóngalífi og eru bústnar og feitar. En seint í apríl grípur þær óþreya. Þær hnaþþast sámáií og svo hverfa hóparnir út á hafið og fljúga í einum áfanga til Aleut- eya eða Þokueya. Þar hvíla þær sig um stund, en halda svo áfram til Síberíu og Alaska- Þar stofna þær heimili, en þegar ungamir eru orðnir stálpaðir, grípur þær sama óþreyan og fyr, og í ágústmánuði hefja þær sig til flugs út yfir hafið og skilja ungana eftir. Nokkrum vikum seinna fara svo ungarnir að hópa sig, eins og hér, og svo halda þeir á hafið og fljúga rakleitt til Hawaieya, eins og þeim væri vísað þangað. Um líkt leyti hefja ungar ame- rísku lóunnar suðurför sína. En þeir stefna í þveröfuga átt. Þeir fljúga fyrst til norðausturs, yfir Labrador og Nova Scotia og þaðan á haf út og koma ekki að landi fyr en í Suður-Ameríku. Er það álíka löng leið er þeir fara yfir opið haf og Kyrrahafs-lóan. Alltaf fara lóurnar þessa sömu leið suður á bóginn, en á vorin fljúga þær alltaf yfir land þegar þær halda norður til varpstöðvanna. Hvernig stendur nú á því að lóu- ungarnir, sem fæðst hafa í Síberíu og Alaska, vita að langt úti í regin- hafi eru litlar eyar og rata á þessar eyar? Um aldamótin héldu nátt- úrufræðingar því fram, að einu sinni hefði mikið meginland verið þar sem nú er norðanvert Kyrra- haf. Fuglarnir hafi þá alltaf flogið yfir land, en er landið sökk hafi þeir verið orðnir svo vanir þessum ferðalögum, að þeir hafi haldið þeim áfram. En það er sá galli á þessari skýringu, að þetta megin- land í Kyrrahafi hefur aldrei verið til. En þótt svo hefði verið, þá er það engin skýring á því hvernig ungarnir, sem aldrei hafa farið þessa leið rata hana af sjálfsdáðum. ... . J í . • •uv . 1 t 5W 5W PRÉSTUR nokkur í Ameríku hafði mikinn áhuga fyrir heiðingjatrúboði og hann tók sér fyrir hendur að safna fé til þess meðal sóknarbarna sinna. Hann kom til ríkasta bóndans og bað hann að leggja eitthvað af mörkum. — Þvi miður þýðir ekki neitt að tala við mig um það, sagði bóndi. — Þú veizt þó að okkur er kennt að við eigum að seðja hina hungruðu, sagði prestur. — Jú, veit ég það, svaraði bóndi, en ég held að hægt sé að ala þessa villumenn á einhverju ódýrara en trú- boðum. —x— — En þau ósköp sem þú átt af bók- um. Þú þyrftir endilega að fá þér fleiri bókaskápa. — Það er alveg satt, en það er nú einhvern veginn svona að ég hefi aldrei komið mér að því að fá bókaskópa að láni. 201 Örvhent börn ALLS KONAR ágiskanir hafa komið fram um hvernig á því standi að sum börn eru örvhend, en það stafar sennilega af því, að þau beita meira vinstra auganu. Allir, sem ekki eru örvhendir, böita hægra auganu meira. Þú gétur reynt þetta á sjálfum þér. Bentu á einhvern hlut þannig að þú teyg- ir fram handlegginn og bendir með vísifingrinum. Lokaðu svo vinstra auganu, og vísifingurinn bendir beint á hlutinn- Lokaðu svo hægra auganu, og þá muntu komast að raun uin að þú bendir alls ekki á hlutinn, heldur til hliðar við hann. En ef þú ert örvhendur, þá snýst þetta við. Starfsemi heilans ræður nokkru um það hvort menn verða örv- hendir. Ef þær stöðvar heilans, sem ráða gerðum líkamaris vinstra megin, eru sterkari en ^ær, sem i ráða gerðum líkamans hægra meg- in, þá eru miklar líkur til "p^ss að menn beiti vinstra auganu riöeira og verði því örvhendir. Það ‘fná því segja að það sé barninu með^ fætt hvor höndin því er tiltækarii Það er enginn afkáraskapur né heimskumerki að vera örvhend* ur. Foreldrar reyna stundum irieð harðri hendi að venja börn síri af því að vera örvhend. Það tekst stundum, og hefir venjulega mjög slæm áhrif á barnið. Meðal ann- ars er það algengt að börnin fari þá að stama og losna ef til vill aldrei við þann kvilla. Með mestu lempni er stundum hægt að kenna börnunum að nota báðar hendur jafnt. En yfirleitt ætti foreldrar að sætta sig við það að börn þeirra sé örvhend. . .-£UJ£UÖi' f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.