Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Síða 14
L 202 ' C LESBÓK MORGUNBLAÐSINS l : ! i l BORGIN SYNDLAUSA MAÐUR ER nefndur John Alex- ander Dowie. Hann var Skoti og fór vestur um haf árið 1893 þegar heimssýningin var haldin í Chica- go. Honum blöskraði gjálífið þar og svallið, svo að hann tók sér fyr- ir hendur að fara að prédika og reyna að leiða menn á rétta braut. Hann leigði sér timburskála og syndugt fólk flyktist þangað til þess að hlusta á hann og njóta að- stoðar hans til þess að hverfa af vegi syndarinnar. Þetta gekk allt vel. Syndararnir voru margir og þeir lögðu svo drjúgan skerf til starfseminnar, að Dowie sá sér fært að stofna sérstakan söfnuð, sem hann nefndi „hina kristilegu kaþólsku kirkju“. Svo keypti hann 6500 ekrur lands hjá Michigan- vatni, miðja vegu milli Chicago og MilwaÚKee. Kaupverðið var 1.250. 000 dpííarar. Og árið 1901 stofnaði hanm þar hina „syndlausu borg“, sem hann nefndi Zion. Þarna voru 8000 íbúar, allt fylgjendur Dowies. Borgin blómgvaðist undir stjórn Dowies. Þar var banki, mennta- skóli, byggingarfélag, heimih fyrir iallnar konur. Iðnfyrirtæki þutu þar upp og hvert þeirra varð að greiða Dowie tíund. Af þessu varð hann brátt stórauðugur og er talið að hann hafi um eitt skeið átt 20 miljónir dollara. Hann setti sjálfur lög í borginni og samkvæmt þeim varð hver mað- ur að trúa því að jörðin væri flöt. Ekki máttu menn safnasl saman á götum. Þar matti ekki vera neinn læknir, engin lyfjabúð og auðvitað engin leikliús, spilahús né opinber- ar söngskemmtamr og liljómleik- ar. Og dans var harðlega .bannaó- ur. Mönnum var bannað að eta ostruf og fl&gk, að ganga á skóm úr sútuðu skinni, að hafa háa hæla, vera í silkisokkum og liða á sér hárið. Og harðbannað var að neyta áfengis og nota tóbak. Þessar regl- ur voru í gildi til skamms tíma. Kvikmyndir voru líka bannaðar. Ekki var hægt að girða fyrir það að ferðafólk kæmi til borgarinnar en ýmsar ráðstafanir voru gerðar til þess að það skyldi ekki spilla hinum sanntrúuðu. Þess vegna voru settir verðir við borgarhliðið og höfðu þeir hjá sér mikið af sjölum til þess að steypa yfir synd- ugar konur, sem komu þangað flegnar niður á brjóst. Ferðamenn voru oft sektaðir vegna þess að þeir þekktu ekki lög borgarinnar. Það varðaði 10 dollara sekt að kveikja í sígarettu. Ef menn blístr- uðu eða blótuðu voru þeir settir í varðhald .Eins varðaði það sekt- um að nota jórturgúm. Og það eru ekki nema 20 ár síðan að maður nokkur var sektaður fyrir það að halda utan um konu sína á al- mannafæri. Árið 1906 fór Dowie í préclikun- arferð til Englands og fól þá Vil- bur Glenn Voliva stjórn borgar- innar. Árið eftir dó svo Dowie og varð Voliva þá hæstráðandi þar. Hann var þrautreyndur maður, hafði byrjað að prédika þcgar hann var 16 ára gamall og tekið vígslu 19 ára. Einu sinni hafði hann far- ið til Ástralíu og tekist að kristna þar 1300 manna. Hami var því svo sem sjálfsagður að taka við af Dowie. Hann gerðist þegar umsvifi- mikill. Hann stjórnaði kirkjunni og gaf út þau blöð, _sem borgarbúar máttu lesa. Hami hafói umsjón með frágðslu barna. Og nain hans stóð ietfað yfcí dy;uQ} verzlapa cg ...... verksmiðja, því að hann eignaðist brátt allt. Og hann var harðari í horn að taka um alla vandlætinga- semi heldur en fyrirrennari hans. Hann gaf út þá skipun, að baðföt yrði að vera víður serkur, sem næði frá höku niður á tær. Hann sagði að læknar væri eiturbyrlarar og galdramenn. Trúin ein megnaði að gera menn heilbrigða. Og allt var eftir þessu. Hann stofnaði lög- reglulið til þess að gæta þess að fyrirskipunum sínum væri hlýtt. í því voru 800 menn. Þeir voru í einkennisbúningum og höfðu biblíuna spenta við belti sér. Á húfum þeirra var mynd af friðar- dúfunni og undir letrað „þol- gæði“. „Jörðinni má líkja við pönnu- köku“, sagði Voliva, „og norður- heimskautið er í miðju hennar. Ef jörðin væri hnöttótt eins og vís- indamennirnir segja, þá yrði Ástralíubúar, sem eftir því eru beint niður undan okkur, að fjötra fætur sína við jörðina svo að þeir detti ekki út í geiminn. Það er ekkert aðdráttarafl til“. Og einu sinni sagði hann: „Ég hefi aldrei hitt þann menntamami, að hann viti miljónasta hlutann af því, sem ég veit“. Meðan allt gekk vel í Zion hlýddu íbúarnir Voliva í blindni. En svo kom viðskiftakreppan mikla, og árið 1933 voru öll iðnfyrirtæki í Zion sett undir opinbert eitirlit. „Kreppan er komin til þess að rofsa jarðarbúum fyrir syndir þeirra“, sagði Voliva. Og kreppan varð hon- um þung í skauti. Menn Jóru að eíast um óskeikulleik hans. Árið eftir kusu borgarbúar skólastjórn þvert á móti tillögum lians, og var það í fyrsta skifti í sögu Zions- borgar, að slilí óhlýðni lralði átt sér .stað. Voliva var svó reiður að hann vissi sitt rjúfeaudj. ráð. Honn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.