Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Qupperneq 1
26. tbl. Sunnudagur 5. júlí 1953 „NIÐLR MEÐ LAIMDSHÖFÐIIMGJAIMIM“ FYRIR réttum hundrað árum gerð- ist sá merkisatburður í sögu þjóð- arinnar og Alþingis, að danska stjórnin gekk fram hjá Trampe greifa, en skipaði Pál Melsteð full- trúa konungs á Alþingi. Varð þetta eigi skilið öðru vísi en vantrausts- yfirlýsing á Trampe af hálfu stjórn arinnar. Og menn voru ekki í vafa um að ástæðan til þessa var frum- hlaup Trampe á þjóðfundinum 1851, þar sem hann hafði verið konungsfulltrúi. Trampe hafði þá ætlað að kúga íslendinga með her- valdi, haíði fengið sendan hingað flokk hermanna frá Danmörk. En er hann sá að þjóðfundarmenn ótt- uðust ekki hermennina, greip hann til þess ráðs að slíta fundinum þeg- ar áður en hann tæki til starfa. Þá var það að Jón Sigurðsson mælti hin alkunnu orð: „Ég mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þess- ari aðferð, og áskil þinginu rétt til að klaga til konungs vors yfir lög- leysu þeirri, sem hér er höfð í frammi“. Og þingmenn hrópuðu í einu hljóði: „Vér mótmælum allir“. Ekki er nú víst að mótmæli þing- manna hafi orðið þess valdandi, að ÓLGA í REYKJAVÍK FYRIR 80 ÁRUM danska stjórnin sýndi Trampe það vantraust að svifta hann því trún- aðarstarfi að vera fulltrúi konungs á Alþingi. Hitt getur átt sér stað, að þar hafi meir um ráðið sú óá- nægja, sem ko.m upp í danska rík- isþinginu út af kostnaðinum við herflokkinn. Hann hafði kostað ríkissjóð 18.000 krónur og stjórnin fekk miklar ákúfur fyrir þá ráðs- mennsku, en þar hafði hún farið að ráðum Trampe. Virðist svo sem hann hafi verið í minni metum hjá stjórninni upp frá því, og á íslandi hafði hann bakað sér óvild allra. Hann gegndi þó stiftamtmanns- embætti fram til ársins 1861, var óánægður með það og vildi komast heðan. Fekk hann að lokum léleg- asta amtmannsembætti í Dan- mörku og fluttist þangað. Það var því eigi aðeins að misheppnaðist tilraun hans að kúga íslendinga, heldur saup hann seyðið af henni sjálfur. Þegar Trampe fór héðan var Þórður Jónassen settur stiftamt- Hilmar Finsen maður. Bjuggust menn við nýum stiftammanni þá og þegar, en það fór á aðra leið. Þórður gegndi emþættinu um sex ára skeið sem „settur“. Hik dönsku stjórnarinnar að skipa mann í þetta embætti,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.