Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.1953, Qupperneq 2
448
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Jóhannesbergvínið, sem framleitt
er við Neuchátelvatnið, þykir bezt
af hvítvínunum.
Heine varð skvssa
Sagt er að Jóhannesberg-vín-
garðurinn sé kominn til Sviss frá
vínekrum, sem Metternich fursti,
gamli bragðarefurinn á Vínarborg-
arfundinum 1814, átti við Rínar-
fljótið í Þýzkalandi. Þýzka skáldið
Heinrich Heine hataði Metternich
af öllu hjarta. Þegar Heine kom til
Sviss, þá var honum boðið Jóhann-
esberg-vín. Hann drakk það með
góðri lyst og geðjaðist vel að því,
en sagði, að leiðinlegt væri að hann
hefði drukkið það. „Nú get ég ó-
mögulega hatað Metternich eins
mikið og ég ætti að gera“, sagði
Heine.
Eftir rúmlega tveggja stunda
íerð frá Basel kemur lestin að Gen-
évevatninu eða Lac Léman eins og
það líka nefnist. Það er stærsta
vatnið við Alpafjöllin norðanverð,
72 km langt og er sums staðar 300
m djúpt. Getur því öldugangur
verið þar mikill, þegar hvasst er.
Öldurnar verða stundum tveggja
metra háar. Rúmlega 40 ár og lækir
falla út í vatnið, þ. á. m. Rón-
fljótið, sem rennur aftur úr því við
Genéve. Vatnið leggur aldrei, þótt
kalt kunni að vera á vetrum.
Náttúrufegurðin við Genéve-
vatnið hefur gert suma bæina á
bökkum þess að fjölsóttum ferða-
mannastöðum. Norðan við það, við
rætur Jurafjallanna, skiptast á
vínekrur og fagrir aldingarðar. —
Sunnan við það gnæfa snævi þakt-
ir Alpatindar við himin. Tilkomu-
mest er fjallafegurðin við austur-
hluta vatnsins. Flest Alpavötnin
eru græn en Genévevatnið er dökk
-blátt. — Umferðin um vatnið er
mikil. Stórir farþegabátar fara um
það þvert og endilangt. Og í góðu
veðri má sjá þarna fjölda smábáta
með einkennileg þríhyrnd latnesk
segl, sem vekja athygli útlendinga.
Mörg heimsfræg skáld, Goeth'e,
Byron, Shelley, Lamartine o. f 1.,
hafa lofsamað náttúrufegurðina við
Genévevatnið. Bæirnir á bökkum
þess koma meira við sögu Evrópu
en aðrir staðir í Sviss. Mörg stór-
menni álfunnar hafa búið og starf-
að á þessum slóðum. Við Genéve-
vatnið hefur fjöldi alþjóðaráð-
stefna verið haldinn. — Þar hafði,
Þjóðabandalagið sáluga aðsetur
sitt, og þar eru aðalstöðvar margra
alþjóðlegra stofnana.
Bæir hanga uppi í fjöllum
Einn fjölsóttasti staðurinn við
Genévevatnið er Montreux, smá-
bær við austurhluta vatnsins. —
Vatnsbakkarnir við Montreux og í
nágrenninu eru oft kallaðir „sviss-
neska rivieran“. Þótt þessi „rivi-
era“ jafnist ekki á við Bláströndina
frönsku við Miðjarðarhafið, þá er
þarna um blómlega og fagra strönd
að ræða. Veðrið er þar hlýrra en
annars staðar norðan við Alpana
og þokur eru sjaldgæfar. Loftslag-
ið er því heilnæmt. Fjöldi fólks
íeitar þangað sér til heilsuooiai.
— Og við þetta bætist svo allt
skemmtiferðafólkið, sem kemur
vegna náttúrufegurðarinnar. — í
suðri eru há og tignarleg Alpaf jöll
með snævi þakta tinda. Þar sést í
baksýn hið fagra, 3.260 m háa fjall,
Dent du Midi, sem öðru fremur
setur svip á landslagið.
Fyrir ofan Montreux stendur
hver smábærinn öðrum hærra upDi
í fjallshlíðunum. — Sumir virðast
blátt áfram hanga utan í hlíðun-
um. Þar er m. a. smábærinn Caux
í rúmlega 1.000 m hæð. Þar hefur
dr. Buchman ár eftir ár haldið ráð-
stefnur sínar um siðferðisvakning-
ar.
„Bandinginn í Chillon“
Byron bjó á sínum tíma í Mont-
reux, og þar gerist ástasaga
Rousseaus: Nouvelle Héloise. — Á
götu einni í bænum hitti ég brezka
konu, sem æddi um allan bæinn til
að leita að húsinu, þar sem Byron
bjó, en enginn gat sagt henni, hvar
það væri.
Skammt frá Montreux er Chillon
höllin, sem fyrr á tímum var eign
Savoyhertoganna. Þessi höll, sem
í rauninni er gamall kastali, stend-
ur úti í vatninu, örskammt frá
vatnsbakkanum. Þar eru gamlir
riddarasalir, en þarna eru líka
óvistlegir neðanjarðar fangaklefar
í hvelfingum undir kastalanum. —
Margir fangar sátu fyrr á tímum í
þessari dýflissu. Þekktastur þeirra
er vafalaust Francois de Bonni-
vard. Hann var aðalsmaður, bjó í
Genéve og barðist ötullega á móti
ágengni Savoy-hertogans. Bonni-
vard fell í hendur hertogans, sem
lét varpa honum í dýflissuna í
Chillon. Þar sat þessi aðalsmaður
6 ár í hlekkjum á fyrri hluta 16.
aldar. Nú væri Bonnivard líklega
gleymdur af flestum, ef Byron
hefði ekki skrifað um hann kvæð-
ið: The prisoner of Chillon.
Hér hóf Napoleon
Ítalíuferð /
Vevey er annar fjölsóttur ferða-
mannabær á þessum slóðum. Stend
-ur hann á dásamlega fögrum stað
við Genévevatnið skammt frá
Montreux.
Á torginu í Vevey safnaði Napo-
leon mikli liði hinn 13. maí árið
1800 áður en hann fetaði í fótspor
Hannibals og lagði af stað með lið
sitt upp í Róndalinn og þaðan yfir
Alpana til Ítalíu.
í Vevey er legstaður tveggja
Breta, sem sátu í þeim dómi, er
dæmdi Karl 1. Bretakonung til
dauða. Annar þessara manna var
hershöfðingi og hinn aðmíráll. —
Þeim hefur líka verið reist minnis-
merki við skemmtigöngustíginn
meðfram vatninu. Margir Bretar,