Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 6
58 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Drykkjuskapur Frukku Eftir ERNEST RAYNAUD, ritstj. bakka fyrir fjórum klukkustund- um. Mér var sagt að þeir hefði gert ráð fyrir að fara ekki lengra en að 'Þjórsá um kvöldið. Ég gleypti í mig mat og rauk svo á stað á eftir þeim. Ég náði þeim í Pörtunum, þar höfðu þeir búið um sig í fjárhúsum. Þarna var ferja á Þjórsá á þeim árum. Ég var nestislaus en karlarnir bentu mér á að ég mundi geta fengið mat hjá einhverri kerlingu, sem ég man nú ekki hvað þeir kölluðu. Ég fer heim til hennar og bið hana að selja mér þó ekki sé meira en fjórar flatkökur, því að ég sé matarlaus. Hún hnussaði við og kvaðst ekkert mjöl eiga, aðeins ómalaðan rúg. Ég bauðst til að mala, ef hún vildi baka. „Það þarf nú að hnoða þær líka“, sagði hún, en fór samt og sótti komlúku í tréskál. Ég malaði, hún hnoðaði og bakaði og þarna fékk ég fimm eða sex kökur. Svo spurði ég hvað ég ætti að borga. „Það veit ég ekki", sagði hún, „ég hefi aldrei selt kökur og þú verður að verðleggja þær sjálf- ur“. „Þér þykir máske lítið að ég borgi 4 aura fyrir kökuna?“ spurði ég. Hún varð vandræðaleg og vissi ekki hvað hún átti að segja. „Jæja, ég skal þá borga þér 30 aura fyrir þær allar, svo að þú verðir skað- laus“, sagði ég. Hún var ekki svo óánægð með það. Nú fer ég til piltanna, en þá voru þeir lítið betur staddir en ég, því að þeir áttu ekkert viðbit. Ég legg því aftur á stað og hitti kerlu mína að nýu og spyr hvort hún geti selt mér eitt pund af smjöri. Jú, það var engin fyrirstaða á því. Ég borgaði henni það vel. En þeg- ar ég kom til félaga minna og þeir sáu smjörið, urðu þeir eins og hungraðir úlfar og átu allar kök- urnar út úr höndunum á mér. Daginn eftir fórum við á ferju EKKERT er jafn napurt og þurrar hagskýrslur. Þegar þú rekst á öl- kátan mann á götunni, verður þér á að brosa. En þegar þú sérð í hagskýrslum, að drykkjuskapur er meiri í landi þínu en annars staðar, þá roðnarðu af skömm og við- bjóði. í Frakklandi er áfengisneyzlan 27 lítrar á ári á mann, — 27 lítrar af hreinum vínanda á hvern ein- asta mann, karla, konur og börn. Að vísu er þarna talið með það sem erlendir ferðamenn drekka, og það er ekki svo lítið. En til sam- anburðar má geta þess, að í Finn- landi er áfengisneyzlan á mann 0.87 úr lítra. Áfengisverslunin er stór atvinnu- grein í Frakklandi. Árið 1939 var yfir Þjórsá og man ég svo ekki eftir að neitt gerðist fyr en við komum í Skiphelli undir Höfða- brekkufjalli. Um þær mundir var hertur allar vertíðarfiskur í Mýr- dal. Fyrst var hann kasaður, og þegar hann hafði spýtt sjónum var hann breiddur á grindur eða hengdur upp í hella. Ólafur Páls- son umboðsmaður á Höfðabrekku þurkaði sinn vertíðarfisk í Skip- helli. Hellirinn er stór og nú var þar rá við rá með fiski, en allur var hann grútmaltur. Þarna réð- umst við á stóran þorsk, rifum hann úr roði og átum upp til agna, því að við vorum svangir. Við hnupluðum þessu óhræddir, og okkur hefði staðið á sama þótt Ólafur hefði komið að okkur, hann hefði ekki séð eftir fiskinum. \ Árni Óla skráSi. í París ein drykkjustofa handa hverjum 67 íbúum og ein sundhöll handa hverjum 75,000 íbúum. Eigum vér að taka fleiri dæmi úr hagskýrslum? Árið 1950 eyddu Frakkar 6,430 billjónum franka fyrir áfengi. Ef allir væri bindind- ismenn, þá mundu þeir geta veitt sér allt sem þeir girnast fyrir þe^sa.upphæð — íbúðir, sjónvarps- tæki, fallbyssur, flugvélar, kjarna- sprengjur o. s. frv. En þá mundu líka átta milljónir manna fara á vonarvöl, því að fimmti hver mað- ur í Frakklandi lifir á framleiðslu og sölu áfengis. Þótt áfengisneyzlan hafi verið mikil, fer hún ört vaxandi. Hvað eftir annað hefir læknaráðið varað við þessari hættu. Seinast í sumar benti læknaráðið á, að drykkju- skapurinn í landinu væri þjóðar- voði og skoraði á þing og stjórn að hefjast handa gegn honum. Það var eins og að klappa harð- an steininn. Aðeins þrisvar sinnum hefir franska stjórnin reynt alvar- lega að stöðva drykkjuskap. í fyrsta skifit í þýzk-franska stríðinu 1870—71; í öðru sinni í heimsstyrj- öldinni fyrri og í þriðja sinn í heimsstyrjöldinni seinni. En þegar ekki er stríð, þá hvet- ur stjórnin þjóðina til að drekka sem mest. Hvers vegna? Vegna þess hve mikið er framleitt af áfengi í Frakklandi. Það eru ekki nema nokkrar leið- ir til þess að losna við þessa miklu framleiðslu. í fyrsta lagi getur stjórnin hvatt almenning til að drekka meira. í öðru lagi getur hún hækkað áfengisskammt hermanna. Áfengisskammtur þeirra er nú

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.