Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Side 16
68 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS VETUR Ætla má að nú sé veturinn fyrst kominn, hafi kynnt sig með Þorrakomu hér sunnan lands. Mörg skáld hafa kveðið um veturinn og flest kveinkað sér undan kulda hans og harðýðgi. En þannig kvað Jón Trausti: Ríki Norðri, veðravaldur, vetrarás með snjóug lönd; þeim er vel, sem ala aldur undir þinni víkingsþönd. Frjálst og einart fang þú býður, frækni og dáð til heiðurs ber, enginn níðings-andi skríður undir vinarsvip hjá þér. Engin bæn þinn anda mýkir, aldrei mjúk er kveðjan þín. Vetur undir rifjum ríkir, rausn og tign á svipnum skín. Og þannig kvað Sigurður Breið- fjörð: Margt í huga hvarflar mér um himinbuga setur, en orð ei duga að dást að þér dýrðauðugur vetur. VIÐ VORUM MEÐ SKUGGA í bók sinni „Yfir hájökul Græn- lands“ lýsir J. P. Kock því hvernig vetrarnóttin byrjaði og hvernig henni lauk: 26. október sóttu þeir Vigfús Sigurðsson og Larsen það sem eftir var af farangri niður frá. 28. okt. sáum við sólina í seinasta sinn. Helm- ingur kringlunnar kom blóðrauður upp fyrir jökulbrúnina í suðri og lónaði með sjóndeildarhringnum í tvær klukkustundir. Héðan af verðum við að láta okkur nægja tunglið þangað til í miðjan febrúarmánuð. í nótt var frostið 36 stig.------ Hinn 14. febrúarmánaðar var mik- 111 gleðidagur. Sólin kom aftur. Við gáum aðeins gullbryddan jaðar hennar yfir fjöllin og jöklana í suðri. í tvær stundir sindruðu geislarnir upp yfir fagurhvelfda sjóndeildina. Við stóðum allir úti á hinum harðfrosna og snæ- FER AÐ KÓLNA? — Almælt var fyrrum að það vissi á illt, hríðar og harð- indi, ef hestar leituðu skjóls í sæmilegu veðri og hömuðu sig. Hér hafa nokkrir útigangshestar hamað sig í tröðunum og á hlaðinu í Árbæ í góðu veðri um hábjartan dag. Slíkt hefðu gömlu mennirnir tekið sem öruggan for- boða þess, að harðindi væru í nánd. — Eins og sjá má á myndinni er Árbæ nú vel við haldið. Reykvíkingafélagið sér um það. Þetta er eini bærinn með gamla íslenzka byggingarlaginu, sem nú er uppi standandi í nánd við höfuð- borgina. (Ljósm. Gunnar Rúnar). barða öskuhaug, sem er hæsta leitið á margra km. svæði, til að njóta dýrð- arinnar, lauga okkur í geislunum og reyna að ímynda okkur að við fyr.d- um hlýindin. Mér varð litið niður eftir brekkuhallanum, sem við stóðum á og kom auga á fjórar fjólubláar rákir, er teygðu sig frá tánum á okkur langt norður eftir bleikroðinni snæbreiðunni. Á samri stund var mér ljóst, að við vorum líka að vakna eftir myrka og langa nótt, að við vorum líka að endur- fæðast. Við vorum nú aftur eins og aðrir menn — með skugga. GUÐMUNDUR ÁSBJÖRN hét sveitarlimur vestra, sem enginn vildi hafa á heimili sínu fyrir óþekkt og geðvonzku. Þegar hann var á betli- ferðum skældi hann öll ósköp. Þannig kom hann til Ellefsen hvalveiðara, er hann var nýkominn til Önundarfjarðar. Ellefsen vissi, áður erf hann fór frá Noregi, að langt var til lækna frá stöð hans. Hann hafði því lært að draga út tennur. Nú þegar Guðmund- ur Ásbjörn kom til hans, og bar sig svona hörmulega, hélt hann að Guð- mundur mundi þjást af tannpínu, óð með tanntöngina upp í hann og dró úr honum skemmda tönn. Guðmundur beið ekki boðanna eftir þetta, en hljóp sem fætur toguðu niður á Flateyri frá Sólbakka og kom þar aldrei fram- ar. (Úr endurm. Sig. Briems.) SÉRA GUÐMUNDUR TORFASON þjónaði Kaldaðarnesi, Miðdal í Laug- ardal og seinast Torfastöðum í Bisk- upstungum. Hann var skáldmæltur og mjög ölkær. — Einhverju sinni rakst hann í Reykjavík á mann, sem hann þekkti ekki. Sá sagði: Séra Gvendur, sá er kenndur. Þá greip séra Guðmundur fram í og sagði: llla skaptur, auðnu taptur, öfugum kjapti rogarðu. Komdu aftur, randaraftur reyndu kraft, ef vogarðu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.