Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 10
62 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS vaxandi og í öllum 48 ríkjum Banda- ríkjanna og Kanada er mjög sótzt eftir Hjaltlandshestum. — Verðið er hátt og fer hækkandi. A markaði í Missouri var seldur foli í vor fyrir 4000 dollara og hryssa fyrir 1525 dollara. I Bandaríkjunum eru rúm- lega 2000 hrossaræktarstöðvar, en þær geta ekki annað eftirspurniuni að Hjaltlandshestum. og þó er það kyn hið fimmta hæsta í röðinni af öllum þeim hrossakynjum, sem þar eru ræktuð. Ég hitti gamlan hrossakaupmann skammt frá Leirvík og spurði hann hvernig á því stæði að Hjaltlands- hesturinn væri svo smár vexti. „Það er vegna þess að hann hefur lifað á útigai\gi og á slæmum högum um aldir,“ svaraði hann. „En farðu með þá eitthvað suður á bóginn og fóðraðu þá vel, og þá skaltu sjá að þeir verða jafn stórir frændum sin- um. En nú hafa þeir tekið upp nýan sið,“ bætti hann við brosandi, „þeir eru farnir að fljúga. Seinasti hópur- inn, sem Bandaríkjamenn keyptu, fór heðan flugleiðis fyrir skemmstu. Og amerískir flugmenn, sem tóku þátt í heræfingunum í fyrra, fluttu hesta heim með sér í flugvélum sín- um.“ A Hjaltlandi eru einnig litlar kind- ur, gráar, svartar, skræpóttar og „moorit“ (mórauðar). Þær ganga úti allan veturinn eins og hestarnir, og lifa mest á fjörubeit. Ullin af þeim er ágæt. Bezt er hún á hálsinum og aftur á bóga og úr þeirri ull vinna konurnar hin svokölluðu kniplinga- sjöl sín. Þau eru svo fín, að hægt er að draga þau í gegn um einbaug. Ung stúlka gerði sér eitt slíkt sjal nýlega til þess að bera á giftingardegi sín- um, og annað var sent Elisabetu drottningu í afmælisgjöf þegar hún varð 21 árs að aldri. Fjárhundarnir á Hjaltlandi eru einnig litlir, með langt og mjótt trýni og standeyru. Þeir eru mjög vitrir og kallast „toonie dogs“ (túnhundar), vegna þess að bændur láta þá verja túnin fyrir sig. Það ei sagt að þeir sé svona litlir vegna „erils og áhyggju". Á HEIMSENDA Hjaltlandseyar eru um 100 að tölu, en sumt er aðeins hólmar og sker. Byggð er á 24, þar á meðal hinum yztu, Fagurey, Fugley og Papa Stour. Þangað á póstferja að fara einu sinni á viku, en oft falla ferðír niður vegna stórviðra. Það var mikið um að vera á Fugl- ey sumarið 1936, því að þá kom Michael Powell þangað með leikara- flokk til að taka kvikmyndina „Á heimsenda“ („The Edge of the World“). — Þá birtu skozku blöðin margar greinar með stórum fyrir- sögnum um þrautir leikaranna, eink- um er þeir urðu þar veðurtenptir. En slíkt er daglegur viðburður hjá eyarskeggjum á Fugley og hefur enginn fárazt út af því. Sumir halda að það sé Fugley, sem Rómverjar nefndu Ultima Thule. — Þeir gátu vel hafa séð hylla undir fjallið Kame á Fugley. sem er 400 metra hátt, er þeir voru staddir á Vesturey í Orkneyum. — Fugley er fræg fyrir þetta fjall eða klett, sem hæstur er á Hjaltlandseyum, og eins fyrir það að þar er sérstök tegund af hagamús, örlítilli en með stórt nafn: Apodemus flavicolles thuleo. Mörg ævintýr gerast á eyum þess- um og má þar nefna söguna um Betty Mouat. Þessi kona var rúmlega hálf- sjötug, en hin ernasta og átti heima á Scatness. Og hinn 30 janúar 1886 lagði hún á stað þaðan með skút- unni „Columbine“ og var förinni heitið til Leirvíkur. Þau voru aðeins tvö á skipinu, formaðurinn og hún. Á leiðinni hrepptu þau ofsastorm og hafrót og í þeim sviftingum fell for- maðurinn fyrir borð og drukknaði. En Betty var komin af hinum gömlu norrænu víkingum og sægörpum, og hún lét ekki hugfallast þótt hún væri nú ein á skútunni. Eftir langa hrakn- inga í stormi og stórsjó náði hún landi í Lepsöy í Noregi, — Þar bar skútuna inn á milli kletta og það bjargaði því að hún b.'otnaði ekki í spón. Betty andaðist árið 1913 og muna margir eftir henni. Önnur saga er um „fangann á Papa Stour“. Hann hét Edwin Linds- ay og var jarlsson og liðsforingi í indverska hernum. Snemma á 19. öld var hann dæmdur geðveikur, vegna þess að hann vildi ekki taka áskorun um einvígi og var þá gerður útlægur til þessarar eyar. Hann sat þar í út- legð í 26 ár. s

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.