Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 67 Friðrik Eiríksson: A flakki í Danmörk um jólin KLUKKAN er 7 að morgni 22. des. 1953. Hópur skólafólks er að fara í jólafrí frá Vallekilde Höjskole á Sjá- landi, þar sem ég er nemandi á veg- um Norræna félagsins. — Ferðinni er heitið til Jótlands, þar sem einn skóla- félagi minn hefur boðið mér að halda jól heima hjá sér. Við förum með áætl- unarbíl til Værstad, þar tökum við lest til Slagelse og áfram til Krosseyrar. Á Krosseyrarhöfn bíður ferjan, sem á að ílytja okkur yfir Stórabelti til Ny- borgar. — Með ferjunni er geisilegur fjöldi farþega, er það aðallega skóla- fólk og hermenn, sem eru að fara í jólaleyfið. Klukkan tæplega 5 komum við á áfangastað. Er tekið mjög vel á móti mér, alveg eins og væri ég einn úr fjölskyldunni; ósvikin józk gestrisni. Foreldrar skólafélaga míns eru bænda- fólk, eiga allstóran búgarð og fjöldann allan af svínum, kúm og hænsum. Ég spyr bóndann hvað af þessu þrennu gefi mestan arð. Það er misjafnt, segir hann, stundum eru það svínin og stund- um kýrnar eða jafnvel hænsin, svo að útkoman verður jöfnust ef maður hefur þetta allt hvað með öðru. Á aðfangadag fer ég til kirkju með heimilisfólkinu. — Kirkjan stendur í miðju þorpinu, lítil, mjög gömul bygg- ing. Hún er troðfull. Ræða prestsins er stutt, en ákveðin. Hann leggur meðal annars fram þá spurningu, hvers vegna kirkjan sé aðeins þéttsetin á jólum og öðrum stórhátíðum, hvort kirkjugestir komi aðeins til kirkju á jólunum til þéss að drepa timann, meðan jólagæsin sé að steikjast heima í ofni! Þegar heim er komið eftir messu, bíðúr jólamaturinn eftir okkur. Síðar um kvöldið er gengið í kring um jóla- tréð og sálmar sungnir, alveg eins og tiðkast heima á íslandi. Á annan jóladag held ég svo aftur á stað, suður á bóginn til Ribé. Er það elzti bær á Jótlandi, með um 6 þús. íbúa. Þarna býr donsk frú, sem var í kaupavinnu hjá foreldrum mínum í Borgarfirði, fyrif meir en 20 árum. — Þau hjónin taka mjög vel á móti mér, eins og reyndar allir Danir gera, hvar sem ég kem. Þau sýna mér hinn gamla bæ. Þar kveður mest að dómkirkjunni, þeirri elztu í Danmörku. Árið 1949 var haldið upp á 1000 ára afmæli hennar, svo að vel er hún komin til ára sinna. Ég geng upp í turninn, 242 þrep voru það ef mér hefur ekki mistalizt. Þarna er ágætt útsýni yfir bæinn og hið mar- flata land umhverfis hann. Ég geng alveg út að grindverkinu; úff! hvað það er hátt niður á götu. Ég dreg mig lítið eitt til baka, því það liggur við að mig svimi; en útsýnið er fallegt héð- an. Þarna er Vesturhafið, sem oft á veturna kemur æðandi inn yfir landið og veldur stórtjóríi. Þegar ég kem aftur út á götu, verða fyrir mér mjög ein- kennileg og gömul hús. Þetta þarna er síðan 1704. Það er hlaðið úr leirstein- um og bundið með þykkum bjálkum. Er allavega útskurður og myndir skor- ið í trén. Öll þessi gömlu hús eru frið- helg. Lengra, neðar í bænum, rekst ég á stóran staur, sem stendur einn sér. Þegar ég kem nær sé ég að hann er gildari en venjulegur símastaur, en lægri. Á honum eru margir látúns- hringar með tölum á, ártölum. Ég spyr hvað þetta eigi að tákna. Vatnshæðar- mælir, þegar Vesturhafið kemur æð- andi yíir landið. Þarna hæst uppi er ártalið 1825. Yngsta ártalið er síðan 1911. Þá hefur verið meir en meters djúpt vatn, þar sem við stöndum á götunni. 5. jóladag er ég á leið til Kaup- mannahafnar, búinn að kveðja Jótland. Rétt fyrir hádegi rennur lestin gegn um Óðinsvé á Fjóni, fæðingarbæ H. C. Andersens. Gaman hefði verið að skoða sig um á slóðum þessa fræga mánns, en það verður að bíða betrí tíma. í Höfn fékk ég strax hótelherbergi. Um kvöldið þegar ég labba eftir Strik- inu, er allt í einu kallað „halió, landi“. Ég átta mig ekkj strax, þvi að ég hef ekki heyrt éitt ísienzkt orð siðan í haust, áð undanskildu því, að rétt fyrir jólin héyrði ég EIsu Sigiúss syr.gja í utvarpið lagið Öli lckbrá- Jqeiá, en þarna voru þá koœnar tvaw vmkonur mínar úr flugvélinni, ferðafélagar frá því i haust, þær sem eru á húsmæðra- skólanum í Silkiborg. Þær ætla að vera hér í Höfn yfir áramótin, eins og ég. Á gamlárskvöld fórum við á íslend- ingamót. Þar safnast saman íslenzkir námsmenn og aðrir þeir, sem staddir eru í Höfn. Þarna eru t. d. Gullfoss- menn og þarna er einn af flugstjórum Gullfaxa; ég man eftir honum síðan hann flaug með mig til Nizza 1951. En hvaða hópur er þarna, sem syngur svo mikið? Það eru Færeyingar. Þessir frændur okkar taka þátt í áramóta- kveðju með okkur. Klukkan 12 á mið- nætti flytur formaður íslendingafélags- ins ávarp; síðan er sungið: „Nú árið er liðið í aldanna skaut“; síðan skála menn og skiftast á kveðjum. Klukkan 2 er skálað aftur, því að þá er árið liðið heima á íslandi. Klukkan hér í Danmörku er nefnilega 2 tímum á undan klukkunni heima á íslandi. 3. janúar er ég svo kominn aftur út í skólanrí, þar sem skólastjórinn og kona hans taka alúðlega á móti mér. Skólastjórinrí er íslandsvinur; heim- sótti ísland síðsumars 1939, og lenti í hrakningum á heimleiðinni, vegna heimsstyrjaldarinnar, komst til Skot- lands og þaðan með kolaskipi til Berg- en í gegnum kafbátamergðina og því næst með einhverju móti til Danmerk- ur. En þetta er hans saga. ur VONASTJARNAN Kaerlelksvonin hjarta hlý hún er þessi stjarna, sem að ljómar lengst af i lifi mannsins barna. Þegar skiman þrýtur hér — það er Grimu sökin — j) foldin hrímar, fatast mér, fornu glimu tökin. ^ Orka min þó væri veik, vissi á sumu takið. ')) Þreyttur eftir liðinn leik (? leggst ég svo á bakið. ^ HJÁLMAR frá Hofr. ? \

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.