Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Blaðsíða 6
466 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þetta gerðist í júnímárLubi FORSETI ÍSLANDS, herra Ásgeir Asgeirsson, hefur verið gerður heið- ursfélagi Norræna félagsins. Forsetahjónin fóru í opinbera heim- sókn til Norðurlands hinn 27. Var þeim hjartanlega fagnað á Akureyri og með mikilli viðhöfn. Þaðan var farið fram i Eyafjörð og síðan til Ól- afsfjarðar og Siglufjarðar. Síðan verður komið við í Skagafirði, Húna- vatnssýslum og Strandasýslu og ekki gert ráð fyrir að koma heim fyrr en viku af júlí. Ttu ára afmælis lýðveldisins 17. júnf var minnst með hátíðahöidum víðs- vegar um land. Mest var viðhöfnin í Reykjavik. Hafði bæjarstjóm kosið nefnd til þess að sjá um hátíðahöidin og hófust þau kl. rúmlega 9 að morgni og lauk ekki fyrr en eftir miðnætti. Borgin var fagurlega fánum skreytt. Ásmundur Guðmundsson var vígð- ur biskupsvigslu af séra Bjarna Jóns- syni vígslubiskupi í dómkirkjunni 20. Hann er hinn 11. biskup yfir öllu ís- landi, en 52. biskup í Skálholtsbisk- upsdæmi. Vígslan fór fram með mik- illi viðhöfn og voru rúmlega 80 hempuklæddir prestar viðstaddir. Guð- fræðideild Háskólans sæmdi hinn nýja biskup doktorsnafnbót. VEÐRÁTTA var mjög þurrkasöm sunnan lands all- an mánuðinn. Laust fyrir miðjan mánuð kólnaði í veðri norðan lands og var kuida og vætutíð cftir það og stundum snjóaði í fjöll. Undir mánaðamót varð Siglu- fjarðarskarð illfært af snjó, og varð að moka honum af veginum. . . ÚTGERÐ Afli var góður víða um land á smá- báta og þess er sérstaklega getið að langt sé síðan jafn mikill fiskur hafi komið inn í Eyafjörð. Togarar fengu ágætan karfaafla fyrra hluta mánaðarins- ,en hættu svo allir veiðum nema fjórir, sem voru á Grænlandsmiðum. Þar var sagð- ur góður afli. — Síldveiðiflotinn bjóst á veiðar og munu fleiri skip stunda veið- ar í sumar en áður hefur verið. Nýir samningar voru gerðir um kjör á skip- unum og hækkar kauptrygging nokkuð, bvo og hundraðshlutur þegar veitt hefur Forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur hornstein að Dvalarheimili sjómanna. verið fyrir útgerðarkostnaði. Bræðslu- síldarverðið var ákveðið 60 kr. .á tunnu. Síldarverksmiðjurnar áttu að vera til- búnar um mánaðamót, en nokkrir bátar voru komnir norður fyrr. Engin síld var komin á land um mánaðamót, enda hafði verið slæmt sjóveður seinustu dagana. LANDBÚNAÐUR Grasvöxtur var orðinn óvenju mikill í byrjun mánaðarins, svo að elztu menn muna ekki annan eins á þeim tíma. Voru þá tún sums stáðar að spretta úr sér, svo að bændur urðu að byrja heyskap mánuði fyrr en vant er. Á Nesi við Seltjörn höfðu verið hirtir 1200 hestar af töðu fyrir Jóns- messu, og er það víst eins dæmi. Á sauðfjárræktarbúinu að Hesti í Borg- arfirði voru nokkrum ám gefnar hor- móna innspýtingar í vetur til þess að reyna að auka frjóvsemi þeirra. Margar ærnar urðu þrílembdar og ein fimm- lembd. — Hjá manni norður á Raufar- höfn varð ein ær fimmlembd, önnur fjór- lembd og nokkrar þrílembdar, og höfðu þó ekki fengið hormóna-gjöf. Mæðiveiki kom að nýu upp í Borgar- firði. Drapst ein kind á Lundum og hafði áður komist saman við fé frá næsta bæ, Miðgarði. Féð á þessum bæjum var ein- angrað og á að slátra því öllu í sumar (30.) SLYSFARIR OG ÓHÖPP ísfirðingar gerðu út leiðangur til eggja- tekju á Hornströndum. Sigmaðurinn, Guð- mundur Óli Guðjónsson, var að síga í Hornbjarg, en þá hrundi úr bjarginu að honum og beið hann bana (1.) Fjórtán ára drengur, flugsyndur, drukknaði í Sundlaugunum i Reykjavík er hann þreytti kafsund (10.) Víkinga- skipiS, sem fór á undan bópgöng- unni á sjó- mannadag- inn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.