Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Side 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Z 468 A Eldur kom upp I erlendri millilanda- ílugvél á Keflavikurflugvelli. 64 farþeg- ar voru í henni, en þeir björguðust all- ir «.) Níu ára drengur hrapaði í Bjarnarnúp hjá Hvallátrum og slasaðist mikið (16.) Togarinn Egill rauði bjargaði skipshöfn af færeysku skipi við Grænlandsstrend- ur (19.) Tveggja manna flugvél varð að nauð- lenda á Hítarvatni. Skemmdist hún mik- ið, en mennirnir komust af (22.) Miðaldra maður, Sigurjón Þorkelsson, drukknaði í Sundhöllinni í Reykjavík (22.) Vb. Oddur frá Flatey fórst á leið það- an til Svinaness í póstferð. Á bátnum voru 2 skipverjar og 3 farþegar og fórust allir (29). Níu ára drengur í Reykjavík stakk sig óvart á knífi og beið bana af (30.) BfLSLYS Maður varð fyrir bíl í Reykjavík og hlaut höfuðkúpubrot (1.) Ellefu ára telpa varð fyrir bil í Reykja- vík og brotnaði höfuðkúpa hennar (9.) Tveggja ára drengur varð fyrir bíl í Reykjavík og stórslasaðist (9.) Níu ára drengur varð fyrir bil föður sins og meiddist talsvert (16.) Bíl hvolfdi á Kjalarnesi og slasaðist kona úr Reykjavik allmikið (22.) Tveggja ára telpa varð fyrir bíl í Hafn- arfirði og stórslasaðist. Þá varð og telpa fyrir bíl á Suðurlandsbraut og meiddist mikið (26.) Litill drengur varð fyrir bíl á Suður- landsbraut og stórmeiddist (30.) Tveir strætisvagnar hlaðnir farþegum, rákust saman á götu í Reykjavík og stór- skemmdust, en 6 farþegar meiddust svo að þeir urðu að leita læknis (30.) ELDSVOCAR Baerinn að Sandhólum í Eyjafirði brann til kaidra kola. Brunnu þar inni þrjú börn á aldrinum 4—13 ára, en tvær kon- ur skaðbrenndust (9.) Eldur kom upp í húsi við Vesturgötu i Reykjavík en slökkviliðið réð niðurlög- um hans áður en miklar skemmdir yrði (10.) íbúðarhús að Húsey í Vallhólmi, Skaga- firði, brann til kaldra kola (15.) Brann sumarbústaður, mannlaus, hjá Varmadal í Mosfellssveit (16.) Eldur kom upp í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík, en skemmdir urðu litlar (16.) Brann timburhlaði sem S. í. S. átti hjá Grandagarði í Reykjavík og mun hafa verið um íkveikju að ræða (17.) Brann íbúðarhús í Vík í Mýrdal um nótt. Bjargaðist fólk nauðulega út úr eldinum (25.) Eldur kom upp um nótt i húsi á Eyrar- bakka og brann það algjörlega og allt sem í var, en fólk bjargaðist með naumindum (30.) MANNALÁT Loftur Einarsson húsasmíðameistari, Reykjavík (d. 30/5). Jón H. ísleifsson verkfræðingur (d. 31./5.). 3. Frú Sesselja Guðmundsdóttir, Rvík. 4. Frú Kristjana Einarsdóttir, Rvík. 6. Arinbjörn V. Clausen rafstöðvarstjóri, ísafirði. 7. Húsfrú Ragnhildur Einarsdóttir, Hlíð, Gnúpver j ahreppi. 11. Hjörleifur Sigurjónsson frá Húsavík. 12. Frú Eydís Jónsdóttir, Reykjavík. 13. Frú Margrét Katrín Jónsdóttir frá Hjarðarholti . 14. Frú Ólöf Goodman, Reykjavík. 14. Þorbergur Steinsson hreppstjóri, Þing- eyri. 16. Sigurður Hansson sjómaður, lengi bú- settur í Hull. 18. Frú Ingibjörg Danivalsdóttir, Rvík. 21. Ungfrú Ásthildur Kolbeins, Rvík. 22. Hreggviður Magnússon verslunarstj., Reykjavík. 22. Lárus P. Lárusson verslunarmaður, Rvík. ÍÞRÓTTIR 43. íslandsmótið í knattspyrnu hófst í Reykjavík. Sex félög keppa, en úrslita- leikurinn fer ekki fram fyr en 19. ágúst (9.) Bridgemót íslands var háð í Siglufirði og kepptu þar sex sveitir. Sveit Harðar Þórðarsonar í Reykjavík sigraði (10.) Sundmeistaramót íslands fór fram í Ól- afsfirði. Keppt var í 12 greinum. Reyk- víkingar fengu 7 meistara, Keflvíkingar 4 og Akurnesingar 1 (17.) Flokkur finnskra fimleikamanna kom hingað og sýndi listir sínar (25.) íþróttamót fór fram í sambandi við 17. júní hátíðahöldin í Reykjavík. Þar setti Þórður Sigurðsson nýtt íslandsmet í sleggjukasti, 49,41 m. en seinna í mánuð- inum bætti hann þetta met og kastaði sleggjunni 51,48 m. (25.) Á skákmeistaramóti í Tékkóslóvakíu kepptu tveir íslendingar, Guðmundur Pálmason og Friðrik Ólafsson. Keppend- ur voru 20. Varð Friðrik hinn 6. í röð- inni að ofan með 11% vinning og þótti frammistaða hans ágæt. Guðmundur fékk 7 vinninga (29.) Barnakór Akureyrar sem fór til Noregs og söng þar á ýmsum stöðúm.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.