Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Side 2
574 LESBOK MORGUNBLAÐSINS verða það, að kasta steini að eða varpa fram ásökunum til eins eða neins fyrir að þessi hefur orðið raunin á, því að til þess liggja auð- sæar orsakir. Fyrstu áratugina eftir að Þjóð- minjasafnið var stofnað var það fyrst og fremst „forngripasafn" — eins og það var þá líka kallað — og aðaláherzlan því lögð á söfnun hinna eiginlegu forngripa og sjald- gæfra og listrænna hluta frá síðari öldum. í öðru lagi varð að fara varalega í söfnun rúmfrekra hluta eins og atvinnutækja og þess háttar vegna skorts á húsrými til geymslu — og þó leiðinlegt sé til frásagnar, þá cr þeirri hindrun langt frá rutt úr vegi ennþá, þó það standi vænt- anlega til bóta, er tímar líða og Þjóðminjasafnið getur eitt búið að húsakynnum sínum. í þriðja lagi — og það er ef til vill veigamesta ástæðan — hefur þróunin í atvinnu tækni landsins orðið örari en nokk- urn mann gat órað fyrir, svo að menn hafa tæplega áttað sig á, að ýmsir búshlutir, áhöld og amboð, sem fyrir svona þrjátíu árum, eða jafnvel enn styttri tíma, voru alveg sjálfsögð alls staðar, eru nú horfin að mestu eða öllu leyti og mega næstum teljast til forngripa. Sumt er orðið svo sjaldgæft, að það má heita ófáanlegt, og unglingar jafnt úr sveit sem sjávarplássum vita ekki einu sinni, hvernig það leit út eða þekkja nöfn þess. Fyrirsjá- anlegt er, að með sömu þróun líða ekki langir tímar. þar til hið síð- asta verður með öllu horíið, ef ekki er undinn bráður bugur að því að halda til haga öllu, sem enn kann að finnast, og ættu allir að hafa hugfast, að varla er neinn af þess- um gömlu hlutum svo ómerkilegur, að sagt verði, að órannsökuðu máli, að hann sé ekki safnhæfur. Hér hafa byggðasöfnin og þeir, sem starfa að söfnun fyrir þau, miklu og merkilegu hlutverki að gegna, að safna og varðveita allt, sem skiptir máli fyrir atvinnusögu hvers byggðarlags, og það sem einkum hefur snert daglegt líf og dagleg störf fólksins á því skeiði, sem nú er að líða undir lok. — Það liggur líka í hlutarins eðli, að þetta hlýtur að vera og verða aðalhlut- verk byggðasafnanna, og er von- andi, að allur almenningur skilji það og geri sitt til að svo megi verða. Þetta ber þó ekki að skilja svo, að nú megi hætta að auðga Þjóð- minjasafnið sjálft að munum frá atvinnulífi liðinna tíma. Þvert á móti, það þarf að auka enn og full- komna til mikilla muna, svo að það, sem er, og á ávallt að vera, alls- herjar menningarsafn þjóðarinnar allrar, geti fullkomlega gegnt sínu hlutverki að sýna þróun menning- ar frá öllum byggðalögum og öll- um landshlutum frá upphafi ís- lands byggðar og til síðustu tíma. — ★ — Þegar komið er í neðstu hæð Þjóðminjasafnsins, sem ekki er rétt að nefna „kjallara“, því að hæðin er öll ofanjarðar, þá verða fyriv tveir stórir salir hvor inn af öðr- um eftir endilöngu húsinu. í þeim fremri er sjóminjadeild safnsins, og má kalla hann „Naust“, í þeim innri er landbúnaðardeild, og kall- ast hann „Skemma“. Það fyrsta, sem mætir auganu, er inn í „Naust- ið“ kemur er um 150 cm langt líkan af víkingaskipi, sem grafið var úr haugi á Gokstad við Sandafjörð í Noregi og nú er varðveitt í Bygdö- safninu í Oslo. — Er það langskip frá því um 800, smíðað úr eik, 24 m langt og 5 m breitt og hefur verið róið með 32 árum, 16 á borð. Er það svo rennilegt og fagurlega byggt, að vel má segja, að það hafi á sér yndisþokka í hverri línu. Skip þetta er glöggt dæmi um, hversu langt forfeður vorir höfðu náð í listinni að smíða skip um það leyti, sem ísland fannst og byggð- ist. — Talið er, að höfðinginn, sem í skipinu var heygður, hafi verið Ólafur konungur Geirstaðaálfur. af sömu ætt og konungsætt Norð- manna, Haralds-ættin, kom frá. Þó skip þetta geti verið að em-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.