Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Page 20

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Page 20
592 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS mynda- og^hugsanaheim þeirra. Þessi heimur tekur á sig ný form, og af því leiðir augljóslega, að tján- ing hans krefst líka nýrra forma. Vaki það fjTÍr nútímaskáldi að túlka reynslu sína eða lífssýn í dag, er það í augum uppi, að grípa verður til nýrra foima. Nýan sannleik er áðeins hægt að segja á nýán hátt, í nýu formi. Það er mikill siður nú að deila um form og efni, en menn virðast ekki á einu máli um, hvað við er átt. Þannig segja sumir, að „atóm- skáldin“ svo nefndu, dýrki formið á kostnað efnisins, en aðrir segja, að þau haff sagt skilið við form- bundna ljóðagerð. Hér verður vart þess ruglings, sem aðskilnaður hinna ýmsu þátta skáldskapar leið- ir af sér. í góðu ljóði verður efnið aldrei aðskilið frá forminu. Efnið skapar formið, og formið gefur efn- inu líf og gildi. Þessir þættir eru svo samtvinnaðir, að þeir verða ekki greindir sundur sér að skað- lausu. Það er því varhugavert að tala um meira og minna form, nema fyllsti gaumur sé gefinn því, hvort ákveðið efni nyti sín í nokkru öðru formi en því, sem það birtist í Sumir halda því fram, að órímuð ljóð hafi minna form en rímuð. Mér er spurn, hvað yrði þá um mikið af okkar forna kveðskap, þar sem rím þekkist várt, eða mörg af beztu ljóðum Jónasar Iiallgríms- sonar, eða t. d. „Sorg“ Jóhanns Sigurjónssonar og „Söknuð“ Jó- hanns Jónssonar? Sannleikurinn er sá, að margar af perlum ís- lenzkrar ljóðlistar eru órímaðar. Hér liggur e. t. v. ein af verstu villum skáldskaparmats. Þegar sett er jafnaðarmerki milli kunnáttu eða leikni í bragfræði eða bragar- háttum og skáldskapar, er hætt við, að mörg okkar beztu skáld féllu í skugg^, þeirr^a leiknu hagyrðinga, sem finna má um allar jarðir. í rauninni er svipaður skyldleiki með skáldi og hagyrðingi og með myndlistarmanni og iðnaðar- manni. — ★ — Hér að framan var bent á eina af orsökum þess, að nútímaskáld finna sig knúin til að leita nýrra forma. En það er fleira, sem til greina kemur, og þá fyrst sú stað- reynd, að hefðbundin ljóðform hafa hnýtt menn svo á klaía van- ans, að nokkur eiginleg tjámng tilfinninga einstaklingsins er ill- möguleg. Sé það rétt, að gott ljóð túlki eða setji fram tilfinningar eða innsýn skáidsins á ákveðnu augnabliki, leiðir það af sjálfu sér. að engin tvö ljóð hafa sama form, því engar tvær tilfinningar eru eins. Það er þetta, sem hefðbundin form hafa tilhneigingu til að hefta. Þau verða eins konar rúm Pró- krústesar, þar sem skáldið verður að pressa inn tilfinningar sínar með góðu eða illu — skera af þeim eða teygja úr þeim! Hér liggur, að mínu viti, ein af orsökunum að því sleni, sem svo oft virðist einkenna íslenzka Ijóðlist. Vilji skáld koma hugsunum sínum og tilfinningum á ákveðnu augnabliki í ljóð, er það höfuðskilyrði, að það finni ná- kvæmlega það form, sem svarar til hinna ákveðnu kennda, svo að þetta form megi aftur vekja svip- aðar kenndir með lesandanum. Og , hér er það ekki aðeins orðavalið, heldur og hátturinn, hrynjandin, músikin í Ijóðinu, sem tjá tilfinn- ingu skáldsins. Tvö þau ljóðskáld, sem gagn- gerðastri byltingu hafa valdið í hinum enskumælandi heimi, voru menn, sem sáu, hvar komið var fyrir hefðbundnum kveðskap. Hin gömlu form voru orðin svo törn og útslitin í lok 19. aldar, að allur frumleiki og nýnæmi kaínaði í orðskrúði og fallegri áferð. Kemur þetta einna bezt í ljós í ljóðum Swinburnes, og einkum þó í ljóð- um Tennysons. Á þessu skeiði kom fram á sjónarsviðið írskur prestur, sem snúizt hafði til kaþólsku, Ger- ard Manley Hopkins. Ljóð hans voru fyrst birt 30 árum eftir dauða hans, eða árið 1918, og sköpuðu straumhvörf í enskri ljóðagerð Hopkins var gæddur óvenjulegum sköpunargáfum, var bæði ágætur málari og tónlistarmaður. Það var dirfska hans í orðavali, hrynjandi og notkun táknmynda, sem tryggði honum sess sem einn af brautryðj- endum nútímaljóðagerðar. Það er vert að hugleiða, að þessi bylting- armaður, sem flest ensk skáld nú- tímans játa þakklæti sitt, var grísk- ur fræðimaður og sótti margt hug- mynda sinna og stílbragða í fornan grískan og íslenzkan kveðskap. T. S. Eliot stendur við hliðina á Hopkins sem umskapandi enskrar ljóðagerðar. Hann er um flest ólík- ur hinum írska presti, en var engu síður djarfur í vali sínu á efni, formi og hrynjandi. Hið „hneyksl- anlega“ fordæmi Eliots er nú orðið sjálfsagður hlutur í enskri ljóðlist. Til hans er litið sem hins fremsta meðal ljóðskálda og gagnrýnenda af flestum kunnáttumönnum. Hér er aftur að verki nýskapandi, sem stendur föstum fótum í fortíðinni, því hann heíur sótt orku sína til leikritahöfundanna eftir Shake- speare, til háspekiskáldanna svo nefndu á 17. öld og frönsku sym- bólistanna í lok 19. aldar. Hann er og gagnmerkur fræðimaður í grísk- um og indverskum bókmenntum. Við hliðina á þessum tveimur höf- uðskáldum mætti stilla Ezia Pound, sem á öðrum og þriðja tugi þessarar aldar hafði víðtæk áhrif á nútímaljóðlist og var víðkunnur fræðimaður í austurlenzkum, klassískum og miðalda-bókmennt- um. — ★ — Ég hef dregið fram þessi dæmi,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.