Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Page 21

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Page 21
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 593 ef þau mættu sanna, að nýsköpun eða bylting á vettvangi hvaða list- ar sem er, stafar ekki fyrst og fremst af því, að menn vilji vera frumlegir eða föndra við nýungar sem slíkar, heldur af þeirri sann- færingu sjáandans, að þróunar er þörf og nýrra leiða til tjáningar heimi, sem gerist æ flóknari og erf- iðari viðfangs, og sé orka í þessari nýsköpun, á hún jafnan rætur sín- ar í fortíðinni. Ekkert form er end- anlegt. Stöðnun er dauðamerki. „Það er svo bágt að standa í stað. og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið“. Sú staðreynd, að loddarar og litl- ir karlar fela lélegheit sín undir faldi nýunga, skyldi ekki fæla neinn frá nýungum. Það er verk gagnrýnanda og annarra góðra manna að skilja hismið úr. Ég hef beint örvum mínum að íslenzkri Ijóðagerð vegna þess, að mér finnst þar einhvers vant, og mér er ekki grunlaust um, að flokkadrættir hafi haft lamandi áhrif á íslenzka ljóðsköpun. Hins vegar er mér ljóst, að ég hef að nokkru fetað í fótspor Don Qui- quote og barizt við vindmyllur, þar sem ég hugði vera kapna! Sann- leikurinn er nefnilega sá, að eng- inn er svo íhaldssamur, að hann hafi ekki að einhverju levti mót- azt af nýungunum, og enginn svo ,.moderne“, að hann lifi ekki að nokkru levti á arfi feðranna. Þess vegna berjast báðar búðir í viss- um skilningi undir fölsku flaggi. Dilkadráttur er hégómlegur í þess- um efnum, því öll skáld, sem því nafni geta réttilega kallazt, eru mörkuð fleiri en einum eiganda: þau eru mörkuð bæði fortíð og nú- tíð — og sum þeirra jafnvel fram- tíðinni! s Sigurður A. Magnússon. <C-^S®®®(T^J Bí, bí og blaka AÐ mun varla ofmælt, að hvert mannsbarn á landinu, sem komið er til vits og ára, kunni þessa einföldu vísu: Bí, bí og blaka, álftirnar kvaka. Eg læt sem eg sofi, en samt mun eg vaka. Mæður syngja hana við börn sín og hún er eitthvert fyrsta ljóðið, sem börnin læra og fara með þeg- ar þau hafa fengið málið. Flestir munu halda að vísan sé sjálfstæð, en hún ber þó öll merki þess að vera viðlag. Og fyrrum hefur hún sætt hinni sömu með- ferð og ýmis önnur viðlög, að menn hafa breytt henni á marga vegu, eftir því sem þeim líkaði, þegar þeir rauluðu við börnin. í „Barna- gælum og barnavísum“ Ólafs Davíðssonar eru til þessar útgáfur af henni: Bí, bí og blaka, álftirnar kvaka, vindar ský skaka, skúmar hræ taka. Láttu sem þú sofir, samt skaltu vaka, bí, bí og blaka. ★ Bí, bí og blaka blessuð litla mín. Álftirnar kvaka, og Jesús gæti þín. -Á Bí, bí og blaka, álftirnar kvaka, vindar ský skaka, skúmar hræ taka. Þegar piltar (stúlkur) koma og vilja á þér taka láttu sem þú sofir, samt skaltu vaka. Bí, bí og blaka. ★ Bí, bí og blaka álftirnar kvaka, ágæt hafa þær hljóð. Vífin þau vaka og verða þér svo góð. Það er auðséð á þessu, að snemma hefur viðlag þetta orðið vinsælt, en þó mun nú aðeins fyrsta vísan lifa á munni manna. En úr hvaða kvæði er þá þetta viðlag? Það vita víst fæstir, því að flestir munu halda að ljóðið sé sjálfstætt, eins og fyrr segir. En hérna um daginn talaði við mig aldraður maður og sagði mér svo frá, að á æskuárum sínum uppi í sveit hefði hann kom- izt yfir skrifað kver, gamalt að því er virtist og voru í því nokkur kvæði. Eitt kvæðið var með þessu viðlagi og kvaðst hann aðeins muna fyrsta erindið úr því, en það er svo: Leikur sér í ljósinu lítill ungi á vatninu, en í gula grasinu gamlar álftir kyaka: bí, bí og blaka. Álftirnar kvaka. Eg læt sem eg sofi, en samt mun eg vaka. Ekki kvaðst hann muna hvað vís- urnar hefði verið margar, líklega þrjár, en máske fleiri. Hann var hræddur um að kverið væri týnt. Eigandi þess er látinn, handritin úr búi hans hafa komizt í Lands- bókasafnið, en ekki er þetta kver né kvæðið á meðal þeirra. Hver er svo fróður að hann kunni þetta kvæði eða geti bent á hvar það er að finna? Á. <^<^)®®®cr^j) Sjálfboðaliði í hernum kvartaði um að sandur væri í súpunni. Liðþjálfinn byrsti sig og sagði' „Gekkstu í herinn til þess að þjóna landi þínu, eða til þess að rífast út af matnum?“ „Ég gekk í herinn til að þjóna landi mínu — en ekki til þess að eta það.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.