Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Síða 24

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Síða 24
596 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ★★★★★★★★★★★★★★ Úr djúpi nætur þú fagur fæðist og: fimur, djarfur á tánum læðist um heimsins víddir úr austurál. Þín kyngiorka til allra streymir, þií engu barni á jörðu gleymir, og allir skilja þitt alheimsmál. Þitt hros er tignfagurt tímamerki með tákn úr eilífðar sigurmerki, þín mikla köllun að lengja líf. Þú geislum stráir um hálfan heiminn og hitamagni um tóman geiminn, og alheim veitirðu vernd og hlíf. Til dýrðar Guði þín glóðin brennur, á geislavængjum þú hljóður rennur með sólarveigar í mildri mund. Þú opnar leiksvið að lífsins önnum og lyftir tjaldi frá gæðum sönnum með skini mjúku um morgunstund. ÁRMAR. ★ ★★★★★★★★★★★★★ HUNDAFÁRIÐ eða hundapestin, sem oft hefur gert íslenzkum bændum miklar skráveifur, er óhappasending frá Finnum. Ein- hverju sinni kom skip á Eyrarbakka, og var með því maður frá Finnmörk. Honum varð þelkalt við einn lands- manna út úr kaupum og hugði á hefndir. Næsta sumar kom hann aftur og hafði með sér flösku og bað að selja sér konumjólk eða kúa. En skipstjóri stakk því að landsmönnum, að gera það ekki, heldur láta hann hafa tíka- mjólk og katta, og var svo gert. Finn- urinn tók flöskuna og færði hana móð- ur sinni, en hún kunni fyrir sér í betra lagi. Tekur hún flöskuna og setur hana milli tveggja potta og seiðir til góu- loka. Þá gelti bæði og mjálmaði i flösk- unni. Þá varð kerlingu svo bylt, að hún stökk út og drap sig, en Finnur- inn fór með flöskuna út til íslands um sumarið og hellti þar úr henni, því er í henni var; kom þá upp fár mikið í hunda og ketti, og hefur það síðan A milli Einarsstaða og Lambastaða við Skerjafjörð eru Skjólin, nýtízku borgar- hverfi, sem risið hefur upp á seinustu árum. — Þar eru mörg skrauthýsl, sem nálgast það að geta heitið hallir, og yfirleitt ber byggðin það með sér, að þar hefur ekkert verið sparað til þess að hið ytra útlit væri sem glæsilegast. En í fjörunni rétt fyrir framan þessar nýtízku byggingar, heldur gamli tíminn enn velli. Þar hefur útgerðin við Skerjafjörð, hrognkelsaútgerðin, bækistöð sína. Bátar í fjörunni, sjóbúð með hjalli, þar sem hrognkelsanetin eru hengd til þerris, og þar geymt annað er útgerðinni fylgir. Myndin hér að ofan er af þessum stað. Þar sést út yfir Skerjafjörðinn og Keilir rís í baksýn. (Ljósm. G. Rúnar). gengið við og við hér um land. (fsl. þjóðhættir). FRÆKILEC BJÖRGUN Andrés Björnsson á Miðbæ í Flatey var lengi formaður á útveg Ólafs pró- fasts Sivertsen. Vorið 1839 laust fyrir sumarmál, var hann á leið til róðra í Dritvík, ásamt fleiri formönnum úr Vestureyum. Hásetar hans voru Pétur Sigurðsson úr Flatey, Jón Jónsson úr Gufudalssveit, Karvel nokkur ættaður úr Gufudalssveit og Margrét Jónsdóttir griðkona Andrésar. Þegar komið var suður undir Snæfellsnes, skall skyndi- lega á sunnan rokveður. Skip Andrésar var hlaðið og illt að koma við seglum fljótlega, enda tókst svo illa til, að það fyllti og hvolfdi úr sér á svipstundu. Bátverjar komust allir á kjöl í fyrstu, en skipið veltist við hvað eftir annað og drukknaði þá Karvel. Pétur Jónsson bóndi í Skáleyum var þar ekki langt frá á skipi sínu, er slysið vildi til hjá Andrési. Hann ruddi þá óðar miklu af farangri sínum fyrir borð, komst að hrakningsmönnunum á skammri stundu og gat bjargað þeim öllam nema Karvel. Svo frækileg þótti mann- björg þessi, að Pétur í Skáleyum var sæmdur 16 dala verðlaunum fyrir hana, en hásetar hans 12 dölum hver. (Barð- strendingabók). FRIÐRIK DANAPRINS síðar Friðrik VII., kom hingað til lands fyrir réttum 100 árum (1. sept. 1854). Hann þótti mjög alþýðlegur og kynokaði sér ekki við að súpa á pela hjá ferðamönnum, sem hann mætti á leið sinni. Áður en hann færi norður, smíðaði Teitur Finnbogason skeifur undir hestana, og sat prinsinn löngum í smiðjunni hjá honum á meðan. í skilnaðarræðu sinni minntist hann þess á viðkvæman hátt hvað íslendingar hefði tekið vel á móti sér, og kvað þá aila, æðri sem lægri, vera vini sina. - En lítt nutu íslendingar þeirrar vin- áttu er hann var kominn til valda, og mun hann sáralítið hafa hugsað um íslandsmál og ekki látið þau sig miklu skifta. Þannig fór sú landkynning.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.