Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1954, Blaðsíða 6
613
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BILARNIR
eru háskalegustu farartœkin
GREIN þessi er þýdd úr amerísku
blaði og er miðað við ástandið þar
í landi. En það er alls staðar svip-
að og orsakirnar til hinna tíðu bíl-
slysa éru alls staðar þær sömu. —
Greinin á því erindi til íslenzkra
ökumanna, ekki síður en annara.
A Ð E R ekki lítill vandi, sem
ökumönnum er lagður á herðar:
að stýra bíl án þess að drepa sig
eða aðra. Um allan heim, þar sem
bílar eru mikið notaðir, er alltaf
um líf og dauða að tefla. Sérstak-
lega á þetta við í Englandi og
Bandaríkjunum. Árið 1953 slösuð-
ust 2.140.000 manna á þjóðvegum í
Bandaríkjunum, en 38.500 létu líf-
ið. En það er sama sem að bifreið-
arnar hafi lagt 100 menn í gröf-
búizt við. Myndina var hvergi að
finna í alþingishúsinu árið 1938.
Var okkur sagt að hún væri geymd
í málverkasafni ríkisins. Síðustu
tvö árin sem hún lifði. minntist
hún oft á þetta mál, og rétt áður
en hún dó, gat ég fært henni þá
gleðifregn, að myndin væri aftur
komin í albingishúsið, en væri nú
í einu hliðarherbergjanna við sal
neðri deildar. En mér er spurn,
hvort myndin sé þarna á réttum
stað?
Þeir Tryggvi Gunnarsson, Eirík-
ur Briem og Jón Þórarinsson, sem
gengust fyrir því að myndin var
gerð, gerðu það í vitund þess hvað
Hilmar Finsen landshöfðingi hafði
gert fyrir landið, og að hann í raun-
inni var „faðir“ alþingishússins og
ætti því að heiðra minningu hans
sérstaklega á þeim stað.
Thora Friðriksson.
ina á hverjum degi til jafnaðar.
Þessi slys eru nú orðin svo alvana-
leg, að menn eru hættir að kippa
sér upp við þau. En þeir, sem ger-
ast ökumenn, og vilja hvorki drepa
sjálfa sig né aðra, verða að vakna
til skilnings á því, að þar veltur
allt á gætilegum akstri og varúð
gagnvart öðrum ökumönnum.
Hvernig stendur á því að svo
margir drepa sig við akstur? Ær
það einhverjum göllum á bílunum
að kenna?
Nei. Samkvæmt skýrslum vá-
tryggingarfélaganna um slysin
1953, voru 95% af bílum þeim, er
í slysum lentu, í bezta lagi.
Eru þá slysin vondum veguni eða
bleytu að kenna?
Nei. Árið sem leið skeðu þrjú af
hverjum fjórum slysum í góðu
veðri og á þurrum vegum.
Eru þá slysin hættulegum vegar-
beygjum að kenna?
Nei. Árið sem leið urðu 80% af
bílslysunum á beinum vegum.
Hver er þá aðalorsök slysanna?
Sökina á maðurinn eða konan,
sem situr við stýrið og gerir hið
ágæta farartæki að háskalegri
drápsvél. Sannanirnar fyrir þessu
eru óteljandi. Það er ökumaðurinn,
sem á sök á slysunum, en ekki bíll-
inn, hreyfillinn, né vondir vegir.
HRAÐAKSTUR, ÁFENGI
OG ÞREYTA
Yfirsjónir ökumanna eru ótelj-
andi. En á sumum ber þó allra
mest. Það er nauðsynlegt að öku-
menn geri sér ljósa grein fyrir
þessu, ef þeir vilja lífi og heilsu
halda, Ein helzta yfirsjónin er of
hraður akstur. Árið sem leið var
of hraður akstur orsök 40% af lim-
lestingum manna og 46% af bana-
slysum. Á þessu má sjá að of hrað-
ur akstur er aðalorsök slysanna.
Önnur aðalorsök slysanna er sú,
að menn aka undir áhrifum áfeng-
is. I ái^skýrslu „National Safetv
Council“ segir að fjórða hvert
banaslys hafi orðið vegna þess að
ökumaður var undir áhrifum á-
fengis. En lögregla og dómarar
segja að sú tala sé míklu hærri.
Það getur varla verið tilviljun ein,
að banaslys vegna ölvunar öku-
manna eru lang fátíðust í Detroit,
en þar er það fangelsissök að aka
bíl undir áhrifum áfengis. Öku-
menn mega aldrei bragða áfengan
drykk. Það er sannað, að þó menn
drekki ekki nema aðeins einn bjór,
sem er 2,75% að styrkleika, þá hafa
þeir misst nokkuð af öryggi huga
og handar og eru seinni til við-
bragðs.
Margir ökumenn halda áfram að
aka þótt þeir séu þreyttir og syfj-
aðir, og margur lætur lífið fyrir
það. Það er ein af helztu orsökum
bílslysanna að syfjaðir menn hafa
setið við stýrið. Ef menn loka aug-
unum andartak, þá er það nægur
tími til þess að háskalegt slys
hljótist af. Það er hreint og beint
leikur til þess gerður að stofna lífi
sjálfs sín og annara í voða, ef menn
aka syfjaðir. Á langleiðum ætti
því sem oftast að skifta um bíl-
stjóra.
HÆTTULEGT
KÆRULEYSI
Eitthvert háskalegasta kærulevs-
ið um líf og öryggi er að streitast
við að fara fram úr öðrum bílum.
Það eru ekki aðeins unglingar, sem
gera sig seka í þessu, heldur jafn-
vel reyndir og ráðsettir menn.
Sömu menn tefla einnig jafnan á
tæpasta vaðið þegar skiftir um
ljós á götum. í Bandaríkjunum eru