Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 319 Norska ríkisstjórnin 1905: Fremri röð, talið frá vinstri: W. Olssön, S. Arctandcr, Chr. Michelsen, J. Lövland, Gunnar Knudsen og A. H. Vinje. — Aftari röð: H. Bothncr, E. Hagerup Bull, Kr. Lehmkuhl og Chr. Knudsen. norska stjórn. Ástandið varð enn ískyggilegra, er gripið var af hálfu Svía til ráðstafana, sem gáfu í skyn, að beitt yrði hernaðaraðgerð- um til að leysa deiluna. Þegar svo var komið, varð norska stórþingið að láta undan síga. Afstaðan til ræðismanna-málsins varð nú allt önnur, er fallizt var á það af Noregs hálfu að taka lausn málsins til með- ferðar í samráði við Svía. Þetta var bein eftirgjöf við þá síðarnefndu, sem héldu því fram, að ræðismanns þjónustan væri sambandsmál, sem leysa yrði með samkomulagi beggja aðila, þar sem hins vegar hið upp- haflega norska sjónarmið var, að málið væri skýlaust innbyrðis mál Norðmanna. Frá 1895—1905 var gerð hver tilraunin eftir aðra til að reyna að finna lausn á hinu erfiða vandamáli að koma á fót norsku ræðismannskerfi innan sænsku ut- anríkisþjónustunnar og undir henn ar- yfirstjórn. Samkomulag náðist um, að leysa skyldi málið með „samhljóða lög- um“, sem ekki væri hægt að breyta án samþykkis ríkisvalds beggja landanna. í nóvember 1904 var svo langt komið, að báðar ríkisstjórn- irnar höfðu gert uppkastið að hin- um samhljóða lögum. Sænska upp- kastið fól í sér nokkur ákvæði, sem bentu til sænskra yfirráða, sem þess vegna voru skoðuð frá hinu norska sjónarmiði sem „yfirríkis- ákvæði“. Þegar norska stjórnin neitaði að fallast á þau og sú sænska að breyta þeim, leiddi það til endanlegra og ákveðinna lykta í sáttaumleitunum í ræðismanna- málinu. Umræðunum var formlega slitið í ríkisráði sem skipað var norskum og sænskum mönnum, í Stokkhólmshöllinni, í febrúarmán- uði árið 1905. Konungurinn lét bóka óskir sínar um, að enginn skoðanamunur á milli hinna tveggja þjóða kæmi fram af hálfu var óbein tjáning þess, sem nú mátti búast við, að gerðist. Bæði stjórnmálaleiðtogarnir og reyndar öll alþýða Noregs var ákveðin í að stíga nú síðasta skrefið. Og menn voru staðráðnir í að lenda ekki í sömu sporunum og 1895. Eftir 1890 var tekið til við alls- herjar vígbúnað í landinu, því að menn voru á þeim buxunum að láta hart mæta hörðu, ef Svíar vildu ekki taka réttlætiskröfur Norðmanna til greina. Norska Stór- þingið hafði stigið óvænt og ákveð- ið skref, einkum ef það er í huga haft, að það hafði fyrir 1890 sam- þykkt ályktun þess efnis að leggja alþjóðadeilur í gerð. — Litið var á vígbúnaðinn sem þjóðarnauðsyn og til hans stofnað í því skyni að tryggja sjálfsákvörðunarrétt þjóð- arinnar. Stjórnmálaástandið í Noregi í byrjun árs 1905 var mótað af því, að samningsviðræðurnar höfðu al- gerlega farið út um þúfur. Hvernig átti að leysa þetta erfiða vanda- báðum áttum, en almenningsálitið lá aftur á móti í augum uppi: menn vildu halda viðræðum áfram á þeim grundvelli, sem lagður hafði verið. — í febrúarlok setti Stórþingið á fót nýa nefnd sem í voru fulltrúar frá öllum stjórnmálaflokkum lands- ins, og skyldi hún fjalla um þetta vandamál. Um sama leyti sendi ríkisstjórnin lausnarbeiðni sína — og sköpuðust þá skilyrði til að átta sig aftur á stjórnmálastöðunni, leita nýrra úrræða og vinna að fram- tíðarlausn málsins. 11. marz var svo ráðuneyti Christians Michelsens myndað. Norski hagfræðingurinn og sagn- fræðingurinn Wilhelm Keilhau hefur bent á, að 11. marz marki straumhvörf í norskri sögu. Að þeim tíma var sjálfstæðisbaráttan í höndum allrar þjóðarinnar, ef svo mætti að orði komast, þar lögðu allir hönd á plóginn. En frá 11. marz breyttist þetta að því leyti, að nú komst málið að mestu leyti í hendur eins manns, sem flestir sjóarnir brotnuðu á. Harrn stóð þá sambandsins sem slíks. Þessi ósk mál? Stjórnmálamennirnir voru á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.