Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Side 12
328 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS IMils Thedin: ÖR TIL MOSKVl HÖFUNDUR þessarar greinar, Nils Thedin, er ritstjóri sænska sam- vinnublaðsins „Vi“. — Hann var fulltrúi sænskra samvinnumanna á „Centrosoyuz“-ráðstefnunni, sem haldin var í Moskva 1954. Eftir þá för er greinin skrifuð, og tekin hér nokkuð stytt úr „East and West“. TtfESTA athygli ferðamannsins, er kemur til Moskvu í fyrsta sinn, er hinn fátæklegi, sviplausi og einhæfi klæðaburður fólksins. En maður kemst fljótt að því hvernig á þessu stendur. Maður þarf ekki annað en líta á búðar- gluggana og skoða verðmiðana. Einir skór kosta 300—400 sænskar krónur (900—1200 ísl. krónur), regnfrakki 1500 sænskar krónur og allt annað eftir því. Maður hættir þá að undrast hvernig á því stend- ur að fólkið er svo fátæklega til fara. Kaupið er ámóta og í Svíþjóð, svo að fólkið getur ekki leyft sér að kaupa dýrar vörur. (Undantekn- ing eru liðsforingjar, sem eru allir glóandi af gullböndum og skraut- legum heiðursmerkjum). Vegna efnahagsins verður alþýðan að láta sér nægja hið lélegasta og ódýr- asta. Það var því eins og furðusjón er hóp af kanadiskum ungmeyum bar þar fyrir. Þær voru allar í lag- legum fötum og snyrtilegar, hvar sem á þær var htið. Það var engu líkara en að skrautfuglahópur hefði allt í einu tyllt sér meðal grárra spóa. Mig fýsti að vita hvernig þeim mundi lítast á sig hér í Moskvu, þar sem allt er svo frábrugðið því, er þær hafa átt að venjast. Og nokkrum dögum seinna hitti ég þær á knattspyrnukappleik. Ég spurði hvernig þeim líkari hér í borginni. „Það er dásamlegt, allt eins og draumur“, sögðu þær. „Hvað hafið þið séð?“ spurði ég. „Neðanjarðarbrautina — hér inn bil allar stöðvarnar — og Lenins háskólann. Og nú erum við á leið til Kremlin. Það er dásamlegt.” Ég er ekkert hissa á því, að hóp- ar, sem boðið er vegna „menning- artengsla“ að heimsækja Rússland, fái þetta álit á Moskvu. Þeim er tekið eins og höfðingjum. Máske er þeim fenginn samastaður í hinu nýa „lúxushóteli“ Sovjetskaja, þar sem eru marmarasúlur og marm- arastigar, þar sem gengið er á dún- mjúkum flosteppum og þar sem eru nóg viðhafnarbaðherbergi. Þetta eru gestir rússnesku stjórn- arinnar og það er dekrað við þá á alla lund. Þeir fá stimamjúka leiðsögumenn, sem sjá um að þeir fái að sjá allt. En því miður er heimsóknartíminn jafnan svo stuttur, að margt er óséð þegar burtfararstundin kemur. Á stuttum tíma er ekki hægt að sjá allt, enda þótt þeyst sé með ferðalangana í skrautlegum ZlS-bílum frá einum stað til annars. Og allir þessir stað- ir eru merkilegir. Hið sama verður ekki sagt um þá staði, sem enginn tími vinnst til að skoða. CTÖÐVAR neðanjarðarbrautar- innar eru öllum ferðamönnum sýndar. Og þær eru í sannleika eins og draumur. Engar tvær eru eins, nema að því leyti, að ekkert hefir verið til þeirra sparað. Þar er bruðlað með marmara og rismynd- tr, mosaik og líkneski. En þótt þetta beri svip af fyrri alda óhófi, þá er neðanjarðarbrautin nýtízku meistaraverk. Hún er svo djúpt í jörð, að sprengjur geta ekki grand- að henni, en þó er þarna gott og svalt andrúmsloft. Járnbrautirnar eru hraðskreiðar og ferðast með stuttu millibili. Þannig hafa fjar- lægðirnar í þessari miklu borg ver- ið sigraðar. Háskóhnn nýi er einnig draumur. Hann er 32 hæðir og hinn mikla turn hans ber hátt við loft. Þarna eru 18.000 stúdentar, sægur pró- fessora og starfsmanna. Þarna ber líka mikið á marmara og högg- myndum. Þessi mikla bygging er reist stjórninni til dýrðar. Margir aðrir staðir eru merki- legir og ZlS-bílarnir eru stöðugt á þönum milli þeirra. En hvernig líður fólkinu, sem á heima í þessari borg? Hvernig eru íbúðir þess? Það verður ekki séð út um gluggana á hinum þeysandi bílum, enda er það ekki til sýnis fyrir ferðamenn. £NGINN bannar ferðamanni að ganga um borgina, þegar hann hefir tíma til, en menn skyldu var- ast að hafa myndavélar með sér. Og um leið og komið er út úr aðal- götunum blasir við manni ólík, og hvergi nærri eins tilkomumikil sjón. Hin gömlu borgarhverfi í Moskva, þar sem meginhluti hinna 8 milljóna borgarbúa á heima, eru

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.