Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Side 8
' 324 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ÞÓRDUR TÓMASSON: SLYSIÐ Á ÖLFUSÁ ÁRIÐ 1800 Ferju staður ¥ LESBÓK Morgunblaðsins frá 20. febrúar þ. á. ritar Guðlaugur Einarsson í Hafnarfirði um drukkn -un tveggja manna í Ölfusá 1893. í grein þessari víkur hann með nokkrum orðum að drukknun for- móður okkar beggja, Sigríðar, dótt- ur séra Jóns Steingrímssonar, í sömu á árið 1800. í meðförum hef- ur sá hryggilegi atburður fengið á sig nokkurn þjóðsagnablæ, eins og fram kemur í grein Guðlaugs. Þar er því haldið fram, að drukkn- un Sigríðar hafi borið að höndum í för séra Markúsar Sigurðssonar, manns hennar, frá Reynisþingum í Mýrdal, að Mosfelli í Mosfells- sveit. Sú staðhæfing fellur þegar af þeirri orsök, að séra Markús fluttist ekki að Mosfelli fyr en tveim árum eftir fráfall Sigríðar. Hér ber og hitt til, að Sigríður drukknaði í Ölfusá í austurleið, en ekki vesturleið. Þess má geta hér, að séra Markús á að hafa ofhlaðið ferjuna með búslóð sinni, og borið konu sína að lokum nauðuga að borði. Mun sú sögn hafa birzt á prenti fyrir mörgum árum. Öruggasta heimild um slysið á Ölfusá árið 1800 er án efa líkræða sú, sem séra Jón Jónsson prófastur á Mýrum í Álftaveri flutti yfir Sigríði í Reyniskirkju. Hann var giftur Helgu Stein- grímsdóttur, föðursystur Sigríðar, og hefur vafalaust haft glögga spurn af öllu því, sem varðaði slys- ið. Síðustu ár ævi sinnar var hann prestur að Holti undir Eyafjöllum og dó þar 1813. Hvílir hann, ásamt konu sinni, undir legsteini í Holts- kirkjugarði. Áletrun hans og lík- kistuskjalda þeirra hjóna er varð- veitt í ættartölubókum Steingríms biskups, sonar þeirra, í handrita- safni Landsbókasafnsins. ★ Líkræða Sigríðar eftir séra Jón ber einkum vitni áhuga hans í ætt- fræði, en gefur einnig furðu ná- kvæma lýsingu á atvikum þeim, sem ollu hinu stórfellda slysi á Ölfusá. Sá kafli líkræðunnar fer hér á eítir: „En soleiðis er nú hennar (þ. e. Sigríðar) afgangur skeður frá þess- um heimi: í þrjú undanfarandi ár hafa kunnugir menn og nálægir náungar mátt oft heyra á henni nokkurs konar þrá til að sjá Suður- land og hitta þar ættmenn sína, hver og ei þverraði eftir sem fækk- uðu systkini hennar hér í sýslu, jafnvel þó ei sérdeilis á því bæri, vegna hennar rólyndis og stilling- ar. Samt brauzt þetta fyrir næst- liðna tíð so fullkomlega út, að hún byrjaði þessa reisu með sínum hjartkæra ektamanni, að hann jafnvel var ei fullviss þar um, fyrr en tveimur dögum áður það skeði, og gekk sú ferð vel og lukkulega að öllu áfram til þess 12. júlí þ. á. Hún hafði góða heilsu á ferðinni og var umföðmuð með kærleika af öllum, sem hún vildi hitta. Að morgni þess-11. sama mánaðar tók hún sig upp af Hraunsmýri í Ölf- usi og fylgjarar hennar, allir fríir frá brennivínsdrykkju og öðru óskikkanlegu og vildu komast aust- ur yfir Ölfusá á Óseyri. Þetta sama stóra ferjuvatn þóknaðist vorum góða guði að brúka sem meðal til sáluhjálparlegrar lausnar vorri sælu systur frá þessum eymdadal,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.