Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1955, Qupperneq 11
T LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
343
stofnað. Og enn hafa lögin og rétt-
urinn stevpt einrseðinu og ofsan-
um. Norsk lög eru eins og mikil
eik. sem stendur djúpum rótum og
breiðir lim sitt um Noreg allan. —
Með þessari ræðu mátti heita að
lokið væri hinni opinberu heim-
sókn í Noregi. Hurfu nú aftur þeir,
sem fylgt höfðu forsetahjónunum
frá Ósló. Kvöddust menn með kær-
leikum og óskuðu allir forseta-
hjónunum góðrar og ánægjulegrar
ferðar. Voru nú ekki aðrir í för
með forsetahjónunum en fylgdar-
lið þeirra og sendiherrarnir tveir
með konum sínum.
NORÐUR Á BÓGINN
Mest af leiðinni norður liggur
vegurinn meðfram vatninu Miörs,
sem er 110 km langt, en víðast
hvar mjög mjótt. Á þessu vatni er
gömul gufuferja, er fer áætlunar-
ferðir eftir því endilöngu. Skógur
mikill er á þessum slóðum, en
blómleg byggð inn á milli, enda eru
hér beztu jarðræktarsvéitir Nór-
egs. Á einum stað í vatninu er skógi
vaxin ey óg nefnist hún Helgön
(Eyan helgá). Það mun hafa verið
í þessari ey að Halfdan könungur
svarti barðist við Eystein konung
á Heiðmörk og hafði sigur.
Þegar kemur norður að Hamri,
er skógur minni en annars staðar,
en þar er líka ræktun meiri. Menn
eyða hér skógunum með mikilli
fyrirhöfn til þess að fá akra og
graslendi, sem gefa meira af sér.
Það má sjá að hér er mikil akur-
yrkja, því að víða standa háreistar
kornhlöður, sem innkaupastofnun
ríkisins á matvörum hefur látið
reisa. í farvegi árinnar, sem renn-
ur um Hamar, sá ég blágrýti, en
hvergi annars staðar.
Nú er komið norður á Upplönd,
sem sumir nefna hjarta. Noregs.
Þar er Lillehammer og þar eru
Sandvikske Samlinger, forn hús, •
sem safnað hefur verið víðsvegar
um Dalina. Þau standa hátt utan
við bæinn, á Maihaugen, og sýndi
Grieg forstjóri okkur nokkur
þeirra. Eru þau svipuð gömlu hús-
unum á Bygdö, og því ramgerðarí
sem þau eru eldri. Elztu húsin hafa
tltsýn yfir vatnið
Mjörs. Það er 110 krr
langt og meðfram
því endlöngu lijgnr
leiðin tU Li!1«-
hammer.
® M