Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Blaðsíða 10
" 494 " LESBÓK MORGUNBLAÐSTNS
að keppa á inu svokallaða Hastings-
móti í Englandi um áramótin, en þar
keppa efnilegustu upprennandi skák-
menn (23.)
Knattspyrnuflokkur frá Bandaríkj-
unum kom til Reykjavíkur og keppti
í landsleik við íslendinga og tapaði
með 3:2 (26.) Síðan keppti hann við
Akurnesinga og úrval Reykjavíkur-
liðanna, en tapaði báðum þeim leik-
um.
SLYSFARIK
Eldur kom upp í bandarískri her-
flugvél er hún lenti á Keflavíkurflug-
velli. Flugvélin brann, en menn
björguðust (3.)
Tvær vöruflutningabifreiðar rákust
á í Skutulsfirði og ónýttust báðar.
Sjö bílaárekstrar urðu í Reykjavík
sama daginn (10.)
Franz Lindnes lenti í vél í trésmíða-
stofu og missti framan af fjóriun
fingrum (18.)
Maður hvarf í Reykjavík, Magnús
Ottósson, 45 ára að aldri (21.)
Bílaárekstur í Reykjavík og fór
annar bíllinn tvær veltur og stað-
næmdist við húsvegg. Þar varð kona
fyrir honum og meiddist. Hjón voru
í bílnum og sakaði þau ekki (27.)
Maður á reiðhjóli varð fyrir bíl 1
Keflavík og meiddist mikið (27.)
Sex ára telpa varð fyrir bíl á Þing-
eyri og beið bana (28.)
MANNALÁT
2. Sigurður Magnússon skipstjóri,
Reykjavík.
2, Garðar Árnason járnsmíðanemi,
Reykjavík.
Frú Maren I-árusdóttir, Rvík.
5. Kristján Símonarson stýrimaður,
Reykjavík.
10. Frú Jóhanna G. Smith, Reykjavík.
11. Gísli Pálsson læknir, Reykjavík.
12. Frú Mekkín Jónsdóttir, Reykjavík.
13. Jónas Hieronymusson, Reykjavík.
14. Jónas Bergmann kaupmaður,
Reykjavík.
14. Frú Sigrún Jörundsdóttir frá
Hrísey.
14. Guðmundur Gíslason skólastjóri
frá Reykjum.
16. Klemens Jónsson kennari, Skóg-
tjörn á Álftanesi.