Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Qupperneq 12
f 496 '
£ lesb'ók morgunblaðsins *
Afhjúpun
minnis-
varSa Torfa
Bjarnason-
ar og konu
hans í
Ólafsdal
arföll hjá Brokey sem orkugjafa fyrir
rafmagnsstöð.
Vígð var ný brú á Vatnsdalsá (24.)
Þrjár nýar brýr hafa verið gerðar í
Borgarfirði í sumar, yfir Deildargil
neðan við Húsafell, á Ásgil í Hálsa-
sveit og Norðlingafljót í Hvítársíðu
(25.) Hafin er smíði á brú á Sogi,
yegna þriðju virkjunarinnar þar (25.)
Nýa vatnsveitu er nú verið að gera
fyrir Akraneskaupstað (26.)
_^ls£fl
MENN OG MÁLEFNI
Prófessor Franz Genzmer, bezti
Eddu-þýðari Þjóðverja, kom hingað
og flutti háskólafyrirlestur (3.)
Norðurlandaráðið hélt fund sinn í
fyrsta sinn á íslandi. Sátu hann Nils
Herlitz frá Svíþjóð, Erik Eriksen frá
Danmörk, Nils Hönsvald frá Noregi og
Sigurður Bjarnason alþm. frá íslandi
(4.)
John White hershöfðingi tók við yf-
irstjórn varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli (5.)
Kristján Jóhann Jónsson bóndi í
Lambanesi í Fljótum, átti 100 ára af-
mæli (9.)
Þýzkur málari, Herbert Dunkel,
hafði málverkasýningu í Reykjavík
(9.)
Ingimar Ingimarsson var kosinn
prestur í Sauðanesprestakalli í Norð-
ur-Þingeyarsýslu (10.)
Robert Jack, sem verið hefir prest-
ur í Árborg í Manitoba að undanförnu,
var kosinn prestur í Tjarnarpresta-
kalli á Vatnsnesi (10.)
Úthlutað var 25.000 kr. úr Menn-
ingar- og minningarsjóði kvenna. —
Hlutu 19 stúlkur námsstyrk en ein
styrk til vísindaiðkana (13.)
Sigurgeir Jónsson fulltrúi í dóms-
málaráðuneytinu, var skipaður bæar-
fógeti í Kópavogi (13.)
Axel Kristensen cand. pharm. var
veitt lyfsöluleyfi í Kópavogi (13.)
Þýzkir kvikmyndatökumenn komu
hingað á vegum ameríska stórblaðs-
ins „Life“ til að taka myndir í stóra
kvikmynd, sem á að heita „Sköpun
jarðar“. (14.)
Jens Árnason járnsmiður hefir fund-
ið upp skreiðarfarg, fullkomnara en
áður hefir þekkzt (18.)
Ólafur Björnsson læknir í Súðavík
hefir verið skipaður héraðslæknir í
Helluhéraði í Rangárvallasýslu (23.)
Gissur Bergsteinsson hefir verið kos-
inn forseti Hæstaréttar (23.)
Stúdentakór frá Bandaríkjunum
kom hingað og hélt söngskemmtun til
ágóða fyrir S.Í.B.S. (25.)
Þýzki flugmaðurinn Wolf Hirt, sem
flaug hingað til lands fyrir 25 árum
í lítilli opinni flugvél, kom hingað í
boði Flugmálafélagsins (26.)
Norrænu félögin héldu aðalfund
sinn í Reykjavík. Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri stjórtiaði fundinum.
Tveir flugmenn hjá Loftleiðum,
Einar Árnason og Olaf Olsen, hafa
fengið rétt til flugstjórnar milli landa
(27.)
Norræna menningarmálanefndin
hélt ársfund sinn í Reykjavík og sóttu
hann 40 fulltrúar af öllum Norður-
löndum (30.)
Minnisvarði um Torfa Bjarnason og
Guðlaugu Zakaríasdóttur konu hans
var afhjúpaður í Ólafsdal (30.)
Dr. Hakon Stangerup kom hingað og
flutti háskólafyrirlestur um danskar
nútíma bókmenntir (31.)
ÝMISLEGT
Bóndinn í Heiðarhöfn á Langanesi
varð uppvís að áfengisbruggun (3.)
Eigendur togarans King Sol, sem
strandaði á Meðallandsfjöru, höfðu
boð inni fyrir slysavarnasveitina í Með
allandi í þakkarskyni fyrir björgun
mannanna, og var hverjum manni af-
hent heiðursskjal (6.)
Vestmanneyingar héldu þjóðhátíð
sína 5. og var þá bezta veður. Um
800 aðkomumenn voru þar. En skjótt
breyttist veðrið og tepptust flestir
gestirnir (9.)
Hólmsá í Hornafirði hefir breytt um
farveg og valdið miklum spjöllum á
Mýrum (10.)
Norska skipið Brand VI. kom hing-
að með 130 farþega í kynnisferð og
tafði hér fjóra daga (13.)