Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Page 6
994 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS -ur Jón og Sigurður ekkl, kváðust ætla vestur á heiðar aftur, því að þar iægi þeir til grasa. Pétur kvaðst einnig gerður út af Sveini á ökr- um til grasa og ætla að vera meö þeim, en varð þeim Jóni í Holts- múla þó samferða austur yfir ána til að sækja dót þeirra, er þar væri geymt. Þegar austur yfir ána kom, skildust leiðir, og heldu þeir Jón og Björn norður í Skagafjörð. Eftir að þeir voru heim komnir barst út fréttin um viðskipti þeirra og þrímenninganna, Péturs, Jóns og Sigurðar og hvar þeir væri nið- ur komnir. Gerðust þá órólegir ýmsir af þeim, sem þeir kumpánar höfðu stolið frá. Fór Guðmundur Sveinsson á Bakka þá á fund Þor- láks Skúlasonar hreppstjóra í Geld -ingaholti og skoraði á hann að hefja leit að strokumönnunum. Féllst Þorlákur á það, ef Guð- mundur kæmi með sér. Þessi Guð- mundur var faðir Erlendar á Holta- stöðum, sem lenti í hrakningunum miklu. Þeir Þorlákur og Guðmundur lögðu svo á stað í byrjun október- mánaðar og riðu vestur Vatnsskarð og þaðan suður yfir Svartá að Tungukoti. Þar fréttu þeir að fram í Blöndudal hefði orðið vart við þá, hefði Pétur komið þar til manna einn síns liðs, en þeir Jón og Sig- urður saman. Heldu þeir síðan vest ur yfir Blöndu og fréttu víða til þeirra bræðra á bæum, en fengu þó nákvæmastar fréttir af þeim í Sléttárdal. Þar höfðu þeir bræður komið fyrir skemmstu og þótzt vera sendimenn. Var ætlan manna að þeir mundu nú vera í Svínadal Þeir Þorlákur heldu áfram för sinni vestur í Svínadal og lágu úti um nóttina í flóunum fyrir ofan Holt. Voru þeir snemma á ferli næsta morgun og heldu lengra Iram í dalinn. Þar rákust þeir á fjóra hesta, móálóttan, brúnskjótt- an, jarpan og rauðan, og þóttust vita að þetta mundu vera hestar strokumannanna. En þeir sjálfir sáust hvergi, Fóru þeir Þorlákur þá að leita og leituðu fram til hádegis. Þá rákust þeir á piltana í jarðfalli nokkru, þar sem þeir höfðu leitað sér náttstaðar. Skriðu þeir upp úr jarðfallinu, er þá Þorlák bar að, og spurði Þorlákur á hvaða ferða- lagi þeir væri. En þeir kváðust ætla að halda vestur í Hrútafjörð, hefði Jón í Holtsmúla sagt þeim að þeir skyldi fara til bróður síns, Ólafs bónda Bjarnasonar á Balka- stöðum, með kveðju frá sér og það með, að hann léti þá fá skotsilfur sér til matar eða farareyris. Þoriákur setti þeim þá tvo kosti, að þeir færi viljugir norður með sér, en ef þeir vildu það ekki. kvaðst hann mundu setja þá í bönd og flytja norður nauðuga Gugnuðu piltarnir þá og tóku þann kogtinn að fara viljugir með þeim. Síðan rannsakaði Þorlákur farang- ur þeirra og fann þar mikið af því. er þeir höfðu stoiið í Hólminum. Var nú snúið norður á bóginn og komu þeir að Langamýri til þess að spyrja um Pétur. Fréttu þeir þá, að hann hefði komið þar daginn áður og riðið vestur úr. Varð það þá úr, að Þorlákur skildi Guð- mund þarna eftir til þess að gæta piltanna, en hóf sjálfur eftirreið og ætlaði að ná í Pétur. Reið hann fyrst að Svínavatni og þaðan að Búrfelli og gisti þar um nóttina. Dagmn eftir helt hann ferðinni áfrám og spurði víða á bæum til ferða Péturs. Komst hann svo alla leið vestur að Miðhópi. Þar hafði Pétur gist, en farið þaðan af skyndingu snemma morguns dag- inn áður. Gafst Þorlákur þá upp við eltingaleikinn og sneri aftur að Langamýri, og fluttu þeir Guð- mundur svo þá bræður norður í Skagafjörð. En þegar þangað kom, vildi eng- inn við þeim bræðrum taka „og eigi þeir, sem þekktu þó fjármuni sína í höndum þeirra“. Varð það svo úr, að þeim bræðrum var sleppt og heldu þeir þá fram í Dali. Þegar fregnin um þetta barst að Hofi á Höfðaströnd, varð Skúli sýslumaður Magnússon mjög reið- ur og þótti þeir Holmverjar hafa sýnt lítilmennsku og úrræðaleysi að sleppa slíkum stórþjófum og vandræðamönnum. Ritaði hann þá bændum í Holmi harðort bréf og skipaði þeim að handtaka piltana og fiytja þá á sitt heimili, en að öðrum kosti kvaðst hann gera þá ábyrga fyrir hverjum þeim þjófn- aði, er piltarnir kynni að fremja meðan þeir gengi lausir. Við þetta brá bændum heldur í brún og urðu þeir hræddir. Var nú safnað liði og sent fram í Dah. Náðu sendimenn Jóni á tungunnt milli Vestri og Eysti Jökulsár, á leiðinni milli Bakkakots og Bú- staða, en Sígurði náðu þeir á Merkigili handan Jökulsár eystri, og var hann þar hjá móður sinnL Voru þeir bræður nú fluttir út að Hofi til sýslumanns, en hann lét járna þá og setja í gapastokk, eins og þá var siður um misindismenn. Voru þá ekki liðnir nema nokkrir dagar síðan þeir Þorlákur og Guð- mundur handsömuðu þá fyrst. Skúli yfirheyrði nú piltana og lét þá gefa skriflega skýrslu um allar ávirðingar sínar. Bar þeim að vísu ekki vel saman. Sagði Sigurð- ur að þeir Jón og Pétur hefði ginnt sig til ódáðanna og reyndi að gera sem minnst úr hlutdeild sinni i stuldunum. En báðir heldu þvt fram, að Pétur hefði stolið mestu á bæunum í Holminum. Þeir sögðu og frá skiptum sínum við ýmsa menn, eftir að þeir höfðu stolið, og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.