Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 9
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 557 Delavans-halastjarnan, sem sást 20. sept. 1914. Hún er með' klofinn hala. stjarna svo björt, að hún sést með berum augum einhvers staðar a hnettinum. Og þar sem mannkynið bjó ekki síður við allskonar hrak- föll fyr á öldum heldur en nú, þá heldu menn að halastjörnurnar boð -uðu stórtíðindi eða orsökuðu bein- línis ófárir og hörmungar. Og það er ekki langt síðan að menn voru sanntrúaðir á, að halastjörnur boð- uðu váleg tíðindi. Þegar spurt er um hvað hala- stjörnur sé og hvernig þær sé, þá er ekki gott að svara því, vegna þess hve geisilega stórar þær eru, en þó úr litlu efni gerðar. Venju- legar ljósmyndir sýna heldur alls ekki hvernig „hausinn“ á þeim er. Það er vegna þess, að ljósmyndarar hafa einkum sózt eftir því að ná mynd af halanum. Hann er daufari en sjálfur hausinn, og til þess að ná mynd af honum hafa þeir orðið að „yfirlýsa“ hausinn. Sýnist hann því venjulega hnöttóttur og mjög bjartur. En þannig er halastjarna ekki. Hún hefir enga sérstaka lög- un, og hausinn breytist dag frá degi, jafnvel á enn styttri tíma. Að þessu leyti eru halastjörnur frábrugðnar jarðstjörnunum, sem ekkert breytast. Það er því auð- velt að villast á halastjörnum. Um Halley’s halastjörnu er þó það að segja, að hún hefir komið reglu- lega á 77 ára fresti, eða þar um bil, og alltaf farið sömu braut, svo að það hlýtur að vera sama hala- stjarnan. Þegar halastjarna nálgast sól, tekur hún undarlegum og óvænt- um breytingum. Halinn, sem jafn- an snýr hér um bil beint undan sól, blossar þá upp og verður líkt og flöktandi eins og reykur frá skipi, en hausinn minnkar. Hitt hefði þó verið eðlilegra að orka sólarinnar hefði haft öfug áhrif á hann og hann hefði stækkað. Oft er það að halastjörnur aflag- ast alla vega, eins og þær engist sundur og saman. En þrátt fyrir það halda þær hiklaust áfram braut sína umhverfis sól. Leonardo da Vinci uppgötvaði þetta fyrir fjórum öldum, en nú þykja stjörnu- fræðingum halastjörnur ekki svo merkilegar, að þeir vilji eyða tíma í að rannsaka þær, og þess vegna vita nú fáir meira um þær heldur en Leonardo da Vinci gerði á sinni tíð. Hann sagði um þær: „Hala- stjarna virðist mismunandi í lag- inu, svo að stundum sýnist hún hnöttótt, stundum löng, stundum er hún eins og hún greinist í tvo eða þrjá hluta, stundum virðist hún ósýnileg, en birtist svo aftur“. Nú er það vitað, að ekkert venjulegt fast efni mundi haga sér þannig. En til þess að fara fljótt yfir langa og merkilega sögu, þá hafa menn komizt að því, að hala- stjarna er ekki annað en mökkur örlítilla efnisagna, sem ekki eru stærri en sandkorn og svo gisin að margir metrar eru á milli þeirra, en allur þessi mökkur er geisilega fyrirferðarmikill. Halastjarnan sem sást 1892 og kennd er við Holmes, var meiri fyrirferðar en sólin, en efni hennar var ekki 1000 miljón-miljónasti hluti af efni sólarinnar. Svo langt er milli efniskornanna í hala- stjörnu, að hún er gegnsæ, svo að Halley’s-halastjarnan, eins of hún er sýnd á Bayeux-reflinum árlð 1066. fjarliggjandi stjörnur sjást greini- lega í gegnum hausinn á henni. Þegar Halley’s halastjarnan kom 1910 og gekk milli jarðar og sólar, varð hún ósýnileg þegar hana bar í sólina, enda þótt menn vissu upp á hár hvar hún var. Sama hefur skeð um aðrar halastjörnur. Um leið og halastjarna kemur í námunda við sól, þyrlast öll kornin í henni sitt í hverja áttina, vegna þess að aðdráttarafl sjálfrar stjörn- unnar megnar ekki að standast að- dráttarafl sólar. Hefir verið sýnt að þetta er ástæðan til þess að hala- stjörnur breyta allavega um lög- un, og það eru þær breytingar, se;n Leonardo da Vinci hefir séð. Meðan þetta iðukast fer fram í halastjörnunni, rekast kornin hvert á annað með svo miklum krafti, að þau sundrast. Verður því efnið innan í stjörnunni smátt og smátt að örfínu dufti. En við það skapazt nýtt og furðulegt fyrirbæri. Þegar einhver efnisögn er orðin nógu lítil, fær hún ekki reist rönd við magni ljósgeisla, sem á hana fell- ur. Bylgjulengd sólarljóssins er ekki nema fáir þúsundustu hlutar úr þumlungi. En þegar duftkornin í halastjörnunni eru orðin svo smá, þá þeytir ljósorkan þeim í áttina burt frá sól. Þyrlast þá þessar smá- agnir úr kjarna halastjörnunnar og safnast í halann. Það efnistjón. sem kjarninn verður fyrir með þessu móti, er að vísu svo lítið, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.