Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 561 Það verður aðeins tii þess að mönn- um verður illt í maganum, og það getur haldið fyrir þeim vöku ekki síður en of lítil fæða. Læknir hefir ráðlagt mér að eta eitthvað sætt á kvöldin til þess að auka sykurefnið í blóðinu. Eftir langan og erfiðan vinnudag hefir blóðsykurinn (glycose) gengið mjög til þurrðar, og þá fer líkam- inn að ganga á þau eggjahvítuefni, sem í honum eru, en sú starfsemi aftrar því að vöðvarnir geti komizt í hvíld, og það heldur svo vöku fyrir mönnum. Kaldir fætur halda vöku fyrir mörgum. Þá er gott ráð að taka sér göngu áður en menn fara að hátta og ganga rösklega. Við það kemst blóðið á hreyfingu. Þetta er betra er nokkurt meðal frá lækni. Ef menn þjást af svefnleysi og vita enga ástæðu til þess, er til eitt ráð nær óbrigðult. Menn fara í heitt bað áður en þeir fara að sofa, láta baðvatnið smáhitna og síðan smákólna, en fá sér ískalt steypibað á eftir. Fari menn svo rakleitt í rúmið meðan hrollurinn er í þeim, þá hitnar þeim fljótt og með hlýunni kemur svefninn. Steypibaðið hefir þau áhrif, að blóðið leitar út í húðina, en dregst frá höfðinu, eða svo skýra fróðir menn þetta fyrirbrigði. Einnig er hægt að draga blóðið frá höfðinu og veita því út um líkamann, meo því að leggja kaldan bakstur viö ennið og fá sér samtímis heitt fóta- bað. Ef það er of mikil fyrirhöfn. getur verið gott að leggja kaldan bakstur aftan á hálsinn. Sumum þykir gott að fá sér ljós- bað áður en þeir sofna, en það skyldi enginn gera nema því aðeins að sjálfslökkvari sé á lampanum. Hlýan sem af ljósinu stafar verður oft til þess að menn sofna fyrr en þá grunar, en það er hættulegt að liggja sofandi undir sterkri há- fjallasól. Söngvarar sofa yfirleitt vel, vegna þess að þeir hafa lært að anda djúpt. En í svefni verður and- ardrátturinn linur hjá mörgum, svo að lungun þenja út þindina (kvið- öndun) í stað þess að þenja út brjóstið, en af því getur leitt óró- legan svefn. Margs konar áhyggjur halda vöku fyrir mönnum, og við því eru fá ráð. Það er segin saga, að eftir því sem maður er ánægðari, eftir því sefur hann betur Sumir halda því fram að gott sé að grípa í bók, þegar upp í rúm er komið, þá komi svefninn fyrr og verði ró- legri. Það er að vísu alveg hættu- laust að lesa í rúminu, ef maður hefir gott Ijós. En ekki er sama hvað lesið er, og engin allsherjar regla verður gefin um það. Sama efnið hæfir ekki tveim mönnum. Einn getur sofnað út frá spennandi skáldsögu, vegna þess að við lestur hennar fer hann að dreyma dag- drauma, er brátt verða að reglu- legum draumi. Annar kemst í geðshræringu út af sömu sögu, og þá er ekki um svefn að tala. Bezt er líklega að lesa eitthvað sem menn þurfa ekki að hugsa um. Sumum hefir reynzt það vel við svefnleysi, að einblína á einhT,ern vissan hlut, en hlusta jafnframt á tifið í klukkunni og forðast að líta á hana. Þreyta getur oft valdið svefn- leysi. Það er því ágætt ráð að fá sér svolítinn blund eftir mat, ef menn geta komið því við. Það dregur úr þreytunni og mönnum gengur betur að sofna á kvöldin. Nokkurra mínútna blundur seinni hluta dags, getur eytt þeirri þreytu er ella heldi fyrir manni vöku. Golfmaður: — Eigum við að keppa á laugardaginn? 2. golfmaður: — Eg hafði nú ákveðið að gifta mig á laugardaginn, en það getur svo sem vel beðið. Alagablettir VÖlvuleiði ENDA þótt frásögnin hér á eftir sé ekki um álagablett í venjulegri merkingu, þykir þó rétt að birta hana, því að víða liggja álög á völvuleiðum. Á Holmahálsi við Reyðarfjörð er völvuleiði og talið vera við gamla veginn þar sem hann er hæstur. En þær sagnir eru um þetta leiði, að völvan, sem þar er leidd hafi látið svo um mælt, að aldrei skyldi byggð inni í Reyðarfirði verða grandað af sjó, meðan nokkur jaxl í sér væri ófúinn. Sagt er, að þegar Tyrkir rændu hér á landi, hafi þeir ætlað inn a Reyðarfjörð, en þá hafi svo þykk þoka komið á móti þeim, að þeir urðu frá að hverfa. Svo var það meðan herinn var í Reyðarfirði á seinni stríðsárun- um, að þá var altalað að þýzk flug- vél hafi ætlað að gera árás á Búð- areyri. En þegar hún var komin í stefnu af völvuleiðinu, villtist hún og fórst í fjalli norðan fjarðarins. Eg vil bæta því hér við, að mér finnst leiðinlegt ef Reyðfirðingar láta völvuleiðið týnast, en nú er svo komið, að það eru ekki nema fáir aldraðir menn, sem vita fyrir víst hvar leiðið er. — S. í-x''ö®®®6>«^> S A R A H dóttir Churchills er leik- kona. Hún naut mikillar hylli, en var ekki alveg viss um hvort það var vegna haefileika sinna, eða vegna þess að hún hét Churchill. Þess vegna var hún að hugsa um að fá sér nýtt nafn — leik- aranafn. En er hún minntist á það við föður sinn, hló hann og sagði: - Vertu ekki að því, gott nafn þolir vel annað eins smáræði og þetta. C^'tXíiwsfa'VJ

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.