Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Side 16
564 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Brúin á Hvitá Þessi mynd er af nýu brúnni á Hvita hjá Iðu i Biskups tungum. Brúin mun verða opnuð fyrir umferð í næst? mánuði. SÉRA FRIÐRIK EGGERZ skrifaði svo 1864 um það hvernig hann vildi hafa útför sína: „Lofi guð, vildi Friðrik verða lagður rétt niður með kistu konu sinnar sál., svo hann hefði hana sér til hægri hliðar. Kistu sína vill hann óvandaða og þó hún væri óhefluð, dauða og fúa er allt full- gott, hann vill láta leggja á bert brjóst Hallgrímssálma opnaða við 17. sálm- inn og honum snúið að brjóstinu. Hann vill enga líkræðu, en vill láta syngja sálminn „Vakna mín sál og virð fyrir þér“ á grallaranum. Það má hver prest- ur kasta á rekunum sem þóknast og hann fær borgun þar fyrir eins og lög ákveða. Heimamenn séu líkmenn. Bjarni á Reykhólum, ef hann er á lífi, sé þeirra fyrirliði, en verði þá ekkinógu margir, þá sé teknir Heinabergsbænd- ur, ef þeir lifa sem þar nú eru, hver þeirra fái vætt eða vættarvirði, Bjarni mest og einhvern hlut til endurminn- ingar. Útfararveizla sé engin og engum heldri mönnum til boðið“. ÆVILOK SIGURÐAR MÁLARA Sigurður var lasinn allt sumarið 1874, fór á spítalann eftir hátíðina en lá aldrei og skreið til Jóns Guðmundsson- ar hvern dag. Einn dag um haustið kom hann að vanda. Eg var þar þann dag, en svo var hann aumur, að frúin þorði ekki að láta hann fara einan, og var þó ekki langt að fara. Spítalinn var þar sem Frelsisherinn er nú. Eg fór svo með honum, og urðum við að stanza i öðru hvoru spori. Svo var mæðin mikil. Hann dó daginn eftir. Þegar hann var jarðaður fylgdu hon- um nokkrar konur í hátíðarbúningi og höfðu svartar slæður. Það var sú eina virðing, sem honum var sýnd. (Guðrún Borgfjörð) SYNODALRÉTTUR Með lögum um hæstarétt 6. okt. 1919 var gerð ný skipan á synodalrétti. Hann skulu skipa fimm dómarar, for- seti hæstaréttar sem íormaður, tveir hæstaréttardómarar, hinir elztu að embættisaldri í dóminum, og tveir guð- fræðingar, sem forseti kveður til. Syno- dalréttur varð æðsti dómstóll í málum þeim, sem að lögum lágu undir pró- fastsdóm í héraði, og einnig í málum gegn biskupum út af samsvarandi af- brotum og þeim afbrotum annarra kennimanna þjóðkirkjunnar, er prófast -dómur tók yfir. Síðan kirkjudómur kom í stað prófastsdóms, eru dómstig tvö í málum gegn biskupi eins og málum annarra embættismanna þjóð- kirkjunnar. Kirkjudómur er undirrétt- ur, en synodalréttur æðsti dómstóll. — Synodalréttur hefir ekki haft mál tii meðferðar og ekki verið kvaddur til starfa síðan 1903. (Björn K. Þórolfsson Biskupsskjalasafn) ALDARAFMÆLI MERKRA BÓKA Á þessu ári eru 100 ár liðin síðan Hið íslenzka bókmenntafélag hóf útgáfu Fornbréfasafnsins. Þá er og ein öld lið- in síðan að út kom fyrsta bindið af „Þúsund og einni nótt“ í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.