Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Síða 1
34. tbl. Sunnudagur 21. september 1958 XXXIII. árg. Nú er byrjað að grafa upp gömlu traðirnar f Arnarhólstúni. Er því ekki úr vegi að rifja upp gamlar minningar frá þessum stað. I)r sögu Arnarhóls ARNARHÓLS er fyrst getið 1 Landnámu, ekki sem jarðar, held- ur sem örnefnis. Ingólfur Arnar- son varpaði öndvegissúlum sínum fyrir borð, er hann var kominn í landsýn, og hét að byggja þar sem þær kæmi á land. Öndvegissúlurn- ar fundust síðar reknar „við Arnar- hvol fyrir neðan heiði“. Heiðin, sem hér er átt við, er Mosfellsheiði. Út af orðalagi frásagnar Land- námu hafa ýmsir haldið því fram, að Ingólfur muni hafa reist bæ sinn á Arnarhóli. En það getur ekki verið rétt. Ari fróði kallar bæ han* Reykjavík, og það er sami bærinn, sem lengi var aðeins kallaðUr Vík og stóð undir brekkunni syðst f Aðalstræti, sem nú er. Auðvitað hefir bær Ingólfs verið höfuðbólið hér, og það sem tekur af allan vafa hér, er það, að Vík átti allt landið upphaflega. Af vitnisburði um landamerki Víkur, teknum um 1500, má glögglega sjá að bæirnir Hlíðarhús, Sel, Skildinganes og Arnarhóll voru allir byggðir í Vík- urlandi. Hitt er ekki vitað hvenær þeir voru reistir, né heldur hvenær þeir urðu sjálístæðar jarðir. £n

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.