Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 463 lengi, en ekki lengur: Einn byggi eg, stoð steina, stafnrúm Atals hrafni; skalat of þegn á þiljum þrangbýlt á mar ranga. Rúm es böðvitrum betra brimdýris knáum stýri, lifa mun það með lofðum lengi, en illt of gengi. Hér kemur fram rétt hugsun, hann vill heldur vera einn í skipinu en hafa þar þrælinn hjá sér, og segir svo berum orðum, að almannaróm- ur muni lengi sanna að betra sé autt rúm en illa skipað. Ekki vita menn með vissu hvar Langaholt hefir verið, en gizka á að það hafi verið á svipuðum slóð- um og nú er bærinn Vatnsholt. En að Ásmundur skyldi flytjast að Öxl í Breiðuvík, bendir til þess að landnám hans hafi náð lengra en að Hraunhafnará, og hafa þeir feðgar ef til vill numið Breiðavík líka, því að ósennilegt er að Ás- mundur hafi farið út fyrir land- nám sitt. Hefði þá landnám þeirra átt að ná út að Sleggjubeinsá, þvi að þar tekur við annað landnám. — ★ — Frá upphafi íslandsbyggðar og fram til skamms tíma lá þjóðveg- urinn eftir Ölduhrygg og vestur með sjónum allt að Hraunhafnar- ósi. En þar varð að sæta sjávar- föllum til þess að komast yfir ós- inn. Var vaðið því viðsjált, enda drukknuðu margir menn í ósnum vegna þess að þeir fóru ekki nógu gætilega. Eftir að bílferðir hófust þarna var hinni sömu leið haldið og farið yfir ósbotninn. Fór þá oft svo sem áður, að menn gerðu sér ekki grein fyrir því hvernig stóð á sjó og hve djúpur ósinn mundi vera, svo bílar tepptust þar mörg- / um sinnum. Nú hefir veginum Uppdráttur af Búðum. Hér eru merkt- ar á Ieifar gamalla býla og mann- virkja, sem enn mótar fyrir. » verið breytt svo að hann liggur frá Vatnsholti upp undir Bláfeld og þaðan vestur með fjallinu, yfir Hraunhafnará og upp í Öxlina. Þar verða vegaskil. Liggur þar vegur til'norðurs upp Hraunhafnardal og yfir Fróðárheiði til Ólafsvíkur. Annar liggur vestur með Öxlinni að Stapa, Sandi og Rifi. Hinn þriðji liggur niður að Búðum. Nú er komið glaðasólksin, og svo hefir verið hér í allan dag á Búð- um. Það sýnir hvað veðrátta getur verið ótrúlega mismunandi á ýms- um stöðum, þótt skammt sé á milli. Vegamótin liggja hátt og er fal- leg útsýn þaðan. Niður að Búðum bugðast heiðgulur vegur eftir grænum lautum og milli grárra kletta. Hraunhafnarósinn gengur eins og blikandi fjörður inn á milli hraunsins og skrúðgrænna engja, því að nú er flóð og mikið í honum. En framundan er heiðblátt hafið. Þegar komið er heim á staðinn og litið til baka, blasir við önnur sýn, en þó heillandi fögur: brattar hlíðar rísa upp af grænu slétt- lendi, en upp af þeim rísa margir tindar eins og fylking, sumir slétt- ir að vöngum, aðrir alla vega sundur sorfnir. Þar er yzt Axlar- hyrna (433 m.), þá Mælifell (566 m.), þá Stakkfell (844 m.), þá Kálf- árvallahyrna (535 m.), þá Lýsu- hyrna (649 m.) og innst Þorgeirs- fell (622 m.) Nú eru fjöllin flest dökk undir brún að líta, vegna kvöldskugganna, en ótal litir koma fram í þeim þegar sól skín á þau. í vestri yppir Búðaklettur gráleit- um kolli og út við sjónhring rís Stapafell sem svartur pýramídi, en hátt yfir það gnæfir fannafeldur Snæfellsjökuls með roðalit af kvöldsól, og er sem ægishjálmur yfir allri fjallaþyrpingunni. Gistihúsið stendur rétt við ós- inn og eru innan við það vogar og klettagjögur og sker á milli. En með fjöru verða vogarnir að leir- um og skerin landföst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.