Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 465 Mynd þessi er af teikningu, sem Magnús Ólafsson ljósmyndari gerði um 1880, er hann var verslunarmaður á Búðum hjá Thejll, og mun hún gerð eftir eldri mynd, því að sum húsin, sem sjást á myndinni, voru horfin um þær mundir. Talið frá vinstri eru húsin í þessari röð: Fyrst koma þrjár búðir, Flensborg og Bakkabúðir tvær. Þá kemur Norskahús, sem brann 1895; í því var Sæmundur Halldórsson kaupmaður fæddur og þar bjó Páll Melsted sagnfræðingur tvö ár meðan hann var settur sýslumaður í Snæfellsnessýslu (1849—1854). Þá kemur hin svo kallaða Gamla sölubúð, en hún brann upp úr 1860. Þá kemur Sandholtshús, sem upphaflega var mnrhús, en A. Clausen lét stækka og breyta handa Árna Sandhoit; þetta hús er stofninn í gistihúsinu sem nú er. Þá kemur svonefnt Litla pakkhús og þar næst Heimapakkhús. Lengst til hægri er hús sem nefnt var Sjávarborg; það var rifið um 1888 og flutt til Stykkishólms og stóð þar þangað til það brann. — Gamall bátur sem Ægir hét, hvolfir á sjávarbakkanum þar sem kallað var Naust. — (Uppl. frá Bjarna Kjartanssyni) Börguhjallar og Snoppa. Þegar hann fell frá 1709 voru fjórar af þessum búðum komnar í eyði, en eftir voru byggðar 13 búðir auk bæanna og átti þarna heima nær 100 manns. Bent var tvígiftur, en átti ekki börn með konum sínum. Seinni kona hans var Marín Jensdóttir. Hún hafði verið tvígift áður og átt sýslumennina í Snæfellssýslu hvorn af öðrum, Matthías Guð- mundsson og Jakob Benediktsson, en þeir fórust báðir voveiflega. Með Jakob hafði hún eignast tvö börn og ól Bent þau upp sem sín börn. Annað þeirra var Soffía, er giftist Eiríki Steindórssyni hins sterka í Selkoti. Hann tók við búi á Búðum eftir Bent og allri Hraun- hafnareigninni. Hann var lögréttu- maður og mikils metinn. Að honum látnum tók Jakob sonur hans við jörð og búsforráðum og bjó þar til dauðadags 1767. Var þá uppgang- ur Búða sem mestur, því að hann hafði þar stórbú og svo mikla út- gerð, að hann átti 20—30 báta er reru úr ýmsum verstöðvum und- ir Jökli. Var Jakob svo mikill gæfumaður að aldrei hlekktist á báti sem hann átti. Jakob var læknir góður og hjálpaði mörgum. Hann var og heljarmenni að burð- um eins og Steindór afi hans, og helzt það lengi í þeirri ætt. Hann var afi Jóns Espólins sýslumanns. Allan þennan tíma frá því að Bent tók við jörðinni, var hið forna Hraunhafnarland nýtt svo sem um eina jörð væri að ræða, enda þótt ábúð heldist að nafninu til á hverj- um hlut jarðarinnar. En nú hafði mikil breyting á orðið og nú voru Búðir tvímælalaust aðalkjarni jarðarinnar. Og vegna þess hve býlum hafði fjölgað þar, hafa Búðamenn orðið að sækja heyskap í þau lönd er áttu að fylgja Hraun- höfn og Bakka, ennfremur torf- ristu, mótekju og beit. Virðist svo sem allt hafi þá verið í sukki um nytjar jarðarinnar. Eftir Jakob bjuggu ýmsir á Búð- um fram um aldamót, en þá gerð- ist ný bylting þarna. Verður nú að hverfa um stund að sögu verslun- arinnar. Miklar líkur eru til þess að sigl- ing hafi verið á Hraunhafnarós fram undir siðaskifti. Sóttu þangað verslun flestir bændur vestan Hvítár, því að þá hafði lagzt niður kaupstefna á Hvítárbökkum. Er þess getið um Straumfjarðar- Höllu, sem uppi var á 15. öld, að hún hafi farið lestarferð til Hraun- hafnar. Þjóðtrúin hefir gert þá ferð sögulega, vegna þess að Halla var talin göldrótt: „Fór hún nú með marga hesta í lest og lét auk þess reka 12 sauði gamla vestur, til að selja kaupmönnum þá. Kemur hún nú í kaupstaðinn og finnur kaup- mann. Leggur hún inn allmikið af smjöri og tólg, og sauði þá er hún hafði haft með sér. Tekur hún síð- an út hjá kaupmanninum það er hún vildi, og hún gat komið á lest- ina, og fer síðan á stað. En þegar hún var komin á stað, verður kaup- manni litið á vöru þá, er hann hafði fengið hjá henni; var þá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.