Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 6
466 LESBÖK MORGTJNBLAÐSINS smjörið og tólgin orðið að grjóti og sauðirnir að músum. Hafði Halla gert þá sjónhverfing, að grjótið sýndist smjör og tólg, en mýsnar sauðir. Þegar kaupmaður varð var við þessa pretti, brá hon- um mjög í brún, og safnaði þegar mönnum og veitti Höllu eftirför. En þegar Halla verður vör við eft- irförina, slær yfir niðdimmri þoku, svo hvergi sá. Þó náðu leitarmenn- irnir Höllu og lest hennar við Haf- fjarðará, en hún villti þeim svo sjónir, að þeir sáu ekki annað en móa og kletta þar sem hestar henn- ar voru. Urðu þeir svo að hverfa aftur, að þeir fundu hvorki Höllu né föruneyti hennar. En hún helt tálmunarlaust áfram og komst með heilu og höldnu heim í Straum- fjörð“. Á öndverðri 16. öld byrjuðu Brimakaupmenn að versla á Fram- búðum. Þeim hefir sennilega þótt ósinn viðsjáll, og svo var líka út- gerðarstöðin á Frambúðum og þar var fiskurinn, en höfn sæmileg í flestum áttum. Sennilega hafa þeir reist þar krambúð í landi utan við sjóbúðirnar. Var Búðakaupstaður þá um skeið aðalkaupstaður á Snæ- fellsnesi. Síðan kom danska einok- unarverslunin og lagði undir sig verslunarstaðinn, og tók honum þá þegar að hnigna. Árið 1662 rak kaupskipið þar í land og brotnaði. Það varð til þess, að skipalegan var færð þaðan inn í ósinn, eins og að fornu hafði verið, en verslunarhús voru reist austan óssins á eyrinni. Það land áttu að vísu Kálfárvellir, en þeir voru þá konungseign og því mun verslunin hafa fengið það án þess að neitt kæmi í staðinn. En það var eigi aðeins að land þyrfti undir húsin og athafnasvæði með þeim, heldur var þarna ógurlegur átroðningur af ferðamönnum, sem komu með marga hesta ' kaupstað. Til Búðaverslunar hafði þá verið lagt allt umdæmið frá Hvítá í Borgarfirði vestur að Breiðuvík, og máttu ekki versla annars staðar þeir er á því svæði bjuggu. Árið 1700 var Tómas nokkur Konráðs- son dæmdur til aleigumissis og þrælkunar á Brimarhólmi fyrir það að hann hafði selt nokkra fiska á Búðum sem hann hafði aflað í Dritvík, og átti því að leggja inn í Stapaverslun. Varð þetta mál álíka alræmt og sektarmál Holm- fasts á Brunnastöðum á Vatns- leysuströnd, sem oftar er þó vitn- að til þegar rætt er um þrælatök einokunarverslunarinnar. En um það hvern ágang verslun- in sýndi Kálfárvallabónda segir Stykkishólmur ........... 1575 rdl. Arnarstapi............. 1370 — Rif ................... 1195 — Grundarfj. og Kumb- aravogur ................ 950 — Búðir ................... 455 — Samt. 5545 rdl. Hér má og sjá hvað Búðir hafa dregizt aftur úr, því að nú eru þær ekki hálfdrættingur á við Rif. Aðfaranótt 9. jan. 1799 gerði ógurlegt sjávarflóð í Faxaflóa og víðar, og gengur það vanalega und- ir nafninu Básendaflóðið því að þá tók af þann verslunarstað. í Stað- arsveitinni, sem er láglend, gekk sjór víða langt á land upp. Þetta flóð tók af verslunarstaðinn austan við Hraunhafnarós. Segir svo í Ár- bókum Espólíns: „Af tók nær Búðakaupstað, eitt hús brotnaði að öllu nema rjáfrið, kom gat á ann- að, en grundvöll gróf undan því þriðja“. Þetta varð til þess, að verslunarhúsin voru flutt vestur fyrir ósinn og byggð upp á Búð- um, og voru þar síðan meðan þar var verslað. Eftir að einokunni lauk versluðu svo í Jarðabókinni 1714: „Slægju- land var þar áður, sem nú standa kaupmannsbúðirnar. Þar er nú aldeilis eyðilegt, en bóndinn þigg- ur ekkert á móti og hefir mátt þola þetta nú yfir 40 ár. Stór ágangur af lestamanna troðningi, mest við Búðakaupstað“. Hinn 15. febrúar 1706 voru hafn- ir á íslandi leigðar til 10 ára og var hæst leiga á höfnum á Reykjanes- skaga og Snæfellsnesi. Það gerði fiskurinn, sem var aðalútflutnings- varan. Er fróðlegt að bera saman hvernig fiskhafnirnar voru metn- ar, því að þær tölur sýna hvar mest var gróðavonin. Hér koma fimm hafnir á hvorum stað: Keflavík ............. 1570 rdl. Reykjavík ............ 1340 — Básendar ............. 1205 — Hafnarfjörður ........ 1005 — Grindavík .............. 505 — Samt. 5625 rdl. ýmsir á Búðum. Norðborgarversl- un í Reykjavík (Jes Thomsen) hafði þar útibú og var verslunar- stjóri hans Guðmundur Guð- mundsson. Þarna kom Holland 1810 og segir í ferðabók sinni að þá hafi verið þar íbúðarhús úr tígul- steini, vörugeymsluhús úr timbri og nokkrir torfkofar. Múrhúsið hefir sjálfsagt verið timburhús, „múrað í binding“, eins og það var kallað. Kona Guðmundar var Steinunn Sveinsdóttir bónda Jónssonar í Sól- heimatungu, hinn mesti kvenskör- ungur og verður hennar getið síð- ar. Þau bjuggu á Búðajörð og sein- ustu árin, sem Guðmundur lifði, rak hann eigin verslun. Hann and- aðist 1837, en Steinunn helt áfram búskapnum með mikilli rausn til dauðadags.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.