Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Qupperneq 10
470 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fram um sólsetur. Naumast að þeir hefðu tíma til að borða, því oft voru einhverjir sem biðu ferjunn- ar. Þeir voru alltaf meira og minna votir og hraktir, því vestan megin árinnar voru sandeyrar og álar, sem sífelt voru að breyta sér, og aldrei stóðu í stað, þurfti því að halda í skipin í vatni á meðan ver- ið var að ferma þau og afferma, og farangurinn varð að bera og vaða álinn milli skips og eyrarinnar. Þó þessi burður væri verk þeirra sem fluttir voru, lenti það oft að meira eða minna leyti á ferjumönnunum. Ferðamennirnir voru misröskir eða handtakagóðir, sumir með langar lestir og mikinn flutning en fá- mennir, en aldrei mátti vera nein töf með skipin nema það allra minnsta að mögulegt var. Ferjumennirnir létu heldur ekki standa á aðstoð sinni við að ferma og afferma til að flýta fyrir og láta allt ganga sem greiðast, en þó með fullri reglusemi og aðgæzlu. Það þurfti að raða rúmlega og hagan- lega í skipin og ofhlaða þau ekki. Það kom ósjaldan fyrir að þeir þyrftu að beita valdi, jafnvel bar- efli til að aftra ofhleðslu. Stundum kom það fyrir, þegar margir biðu ferjunnar, að sagan um Snjallstein og Sigmund endur- tæki sig, menn stjökuðust á og ruddust fram til þess að komast fyrstir yfir ána. Lenti þá í orða- sennu, var þá sótt og varizt með vopnum mælskunnar og stóryrð- anna, og ef til vill með hnefa- og svipuhöggi til áréttingar, þótt aldrei yrði það banahögg. Lítið græddu yfirgangsseggir á þessu framferði sínu. Ferjumenn- irnir voru æfðir í að líta vel í kringum sig og taka vel eftir í hvaða röð menn komu að ánni. Þeir fóru eftir hestalit o. fl. ein- kennum, svo þeir gátu oftast fellt sinn rökstudda úrskurð um í hvaða röð bæri að flytja þá, og úrskurði þeirra varð ekki haggað. Þegar langar lestir eða margir komu að flutningnum samtímis voru hestarnir reknir yfir ána. Þá var einn maður á litla bátnum og gætti þess að þeir sneru ekki aftur til sama lands. Gamlir og vanir ferðahestar fóru stundum sjálfir út í ána, strax og búið var að taka af þeim reiðinginn eða reiðtýgin. Þegar hestarnir voru fáir eða óvanir að synda voru þeir teymdir á eftir skipunum. Eins ef vöxtur var í ánni, rok eða ísskrið. Stundum var teflt á það fremsta með að flytja yfir Þjórsá í vatna- vöxtum, roki og jakaburði. Á haustin og veturna var verið að Gömul varða á Ferjuhamri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.