Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1961, Side 1
1. tbl.
JUinrpmMnM}}£
Sunnudagur 15. janúar 1961
XXXVI. árg.
BjÖrn í Bæ
O • >£1 O •Ílc • •
anjotlooio a Sviðnmgi
á Þorláksmessu 1925
ÞÓTT nú sé orðið æði langt síðan þessi hörmulegi atburður
gerðist á bænum Sviðningi í Kolbeinsdal, hefi eg reynt að skrá
þessa frásögn sem réttasta. Snjóflóðið tók sex manns og þrennt
kom ekki life.ndi úr þvL Eg var sjálfur við þegar líkin voru
kistulögð og skrifaði þá ýmislegt mér til minnis, en auk þess
hefi eg haft tal af þeim, sem af komust, og öðrum sem þama
komu fyrstir að.
SVIÐNINGUR stóð neðarlega í
Kolbeinsdal, milli tveggja lækja
og brött fjallshlíð þar upp af.
Næsti bær fyrir innan er Saur-
bær, en næsti bær fyrir utan
Smiðsgerði og er fremur stutt
bæarleið þar á milli.
Á Sviðningi bjó þetta ár Sölvi
Kjartansson. Kona hans var
Jónína Jónsdóttir og áttu þau
tvær dætur, Önnu og Sigríði. Þar
voru einnig í heimili tvær gamlar
konur, er hétu Guðbjörg og
Hansína. Sigríður litla, sem ekki
var nema ársgömul, svaf jafnan
hjá móður sinni, en eldri systirin
svaf hjá Hansínu. Fólkið svaf í
nýbyggðri baðstofu. Hafði hún
verið reist tma sumarið og var
ætlunin að hafa hana svo stóra,
að þangað gæti flutzt hjónin
Anton Gunnlaugsson og Sigur-
jóna Bjarnadóttir með 5 börn
ung. En einhvern veginn fór það
svo, að baðstofan varð minni en
til var ætlast, svo að Anton og
fjölskylda hans fluttu í skemmu,
sem var fyrir framan baðstofuna
og hugðist vera þar þennan vet-
ur. Að kunnugra sögn mun
skemma þessi, eða skáli, hafa ver-
ið um 3x4 metrar að stærð, og þar
var eldað og sofið. Mundu það
þykja þröng húsakynni nú fyrir
hjón með fimm ungbörn.
Báðir bændurnir á Sviðningi,
Sölvi og Anton, voru atorkumenn
og svo mikil hraustmenni, að lík-
lega hefir verið leitun á öðrum
eins.
Nú er að segja frá því, að undir
kvöld á Þorláksmessu 1925, í grenj-
andi stórhríð og fannfergi, kom
unglingspiltur, Sölvi Jónsson frá
Smiðsgerði, út að Sleitustöðum.
Hann hafði þær fréttir að færa,
Jónína Jónsdóttir, húsfreya, sem náð-
ist lifandi eftir að hafa legið 18
klukkustundir í snjónum.
að Anton á Sviðningi hefði kom-
ið að Smiðsgerði aðfram kominn
af þreytu og sagt að snjóflóð hefði
fallið á bæinn og Sölvi og allt
fólk hans orðið þar undir. Var
hann kominn til að leita hjálpar.
Eins og fyr segir var sortastór-
hríð fram í aalnum og fannkoma
afar mikil. Töldu húsbændur