Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1961, Síða 10
10
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Ljósadýrð á fföt-
um Reykjavikur
fyrir jólin.
Þetta gerðist í desember
4
FJÁRLÖG 1961
Fjárlög fyrir árið 1961 voru
endanlega afgreidd á Alþingi 19.
des. Fór atkvæðagreiðsia um fjár-
lögin fram á síðdegisfundi í sam-
einuðu þingi. Breytingatillögur
þær, sem fjárveitinganefnd stóð
öll að voru samþykktar en aðrar
felldar. Fjárlagafrumvarpið var
svo endanlega samþykkt með 32
samhljóða atkvæðum og afgreitt
sem lög. Niðurstöðutölur á sjóðs-
yfirliti eru: Inn kr. 1588.668.000,00.
— Út kr. 1588.239.005,00. Greiðslu-
afgangur kr. 428.995,00 (20.)
VAXTALÆKKUN
Seðlabankinn ákvað 28. desem-
ber að tillögum ríkisstjórnarinnar
að lækka útláns- og innlánsvexti
um2% þannigað vijílavextir verða
nú 9% í stað 11%, en Almennir
vextir af sparisjóðsbókum 7% í
stað 9% áður. Sé féð þó bundið
í eitt ár eru vextirnir 9%. Þetta
skref hefur verið hægt að taka
vegna hinnar heilbrigðu þróunar
í peninga- og gjaldeyrismálum
undanfarna mánuði (29.)
FRAMLAG VEGNA
TEKJUMISSIS
Samkomuiag hefir náðst við rik-
isstjórn Bandaríkjanna um að hún
greiði íslendingum 6 millj. dollara
sem óafturkræft framlag til þess
að draga úr erfiðleikum íslend-
inga af minnkandi gjaldeyristekj-
um frá vamarliðinu vegna gengis-
breytingarinnar (31.)
VEÐRIB
Fyrsta raunverulega vetrarveðrið á
þessu hausti hófst 2. og 3. desember.
Fjallvegir, sem höfðu verið opnir
miklu lengur en venja er, tepptust
þá víða. í Reykjavík snjóaði í fyrsta
sinn 2. des. og urðu þá margir bíla-
árekstrar á hálkunni. Veðurfar batn-
aði þó fljótlega aftur og flestir fjall-
vegir urðu færir að nýju. — Jóla-
veðrið var talsvert misjafnt hér á
landi, hvít jól og gott veður fyrir
sunnan, bleytuhríð víða á Vestfjörð-
um og fyrir norðan og hríðarbylur
á Austfjörðum. — A Norðurlandi
versnaði veður upp úr jólum. Snjó-
koma var þár nokkur, ísing mikil
og veðurhæð var mikil einkum út við
sjávarsíðuna, 9—10 vindstig. Síma-
sambandslaust varð víða, rafmagns-
línur urðu ónothæfar svo sveitir
urðu Ijóslausar og flugvöllurinn á
Akureyri lokaðist alveg þannig að
ekki var hægt að fljúga þangað í
nokkra daga. Fyrir áramótin gekk
svo veðrið niður. — Á árinu 1960
var meðalhiti hér um einu stigi
meiri en í meðalári.
ÚTGERÐIN
Síldveiði við Faxaflóa hefur verið