Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1961, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
11
Hvit jól
í Reykjavík.
dágóð. Fyrsta des. komu Akranes-
bátar t. d. inn með 6 þúsund tunn-
ur (2.)
Síldveiði enn ágæt í Faxaflóa. —
Síldin er brædd, fryst og söltuð. —
Höfrungur II fékk t. d. metafla 2.
des., 1600 tunnur í einu kasti (3.)
Námskeið haldin á vegum sölu-
miðstöðvar Hraðfrystihúsanna á ísa-
firði, Akureyri og Seyðisfirði fyrir
fólk, sem vinna á að gæðaeftirliti (7.)
Afli togaranna var 38% minni í
ár en árin 1957 og 1958 (23.)
Samkomulag náðist um ferskfisk-
verð milli fiskkaupenda og stjómar
og verðlagsráðs LÍÚ (31.)
Samningar um kjör bátasjómanna
hófust þegar er samkomulagið náð-
ist um fiskverðið (31.)
FRAMKVÆMDIR
Skurðgröfur Vélasjóðs hafa grafið
26 millj. rúmmetra (1.)
Áburðarverksmiðjan h.f. hefir gert
samning um sölu 7000 smálesta af
áburði til útlanda. Nemur verðmæti
hins selda áburðar um 14 millj. kr.
(1.) -
Nýtt og veglegt dagheimili fyrir
böm á vegum Reykj avikurbæj ar og
Sumargjafar, tekur til starfa í Rvík
(4. og 6.)
Nýr bátur, Jón Garðar, 120 lestir,
eign Guðmundar Jónssonar á Rafn-
kelsstöðum, kominn til Sandgerðis
(6.)
Tekizt hafa samningar milli ríkis-
ins og Reykjavíkurbæjar um að þess-
ir aðilar reisi sameiginlega sérstak-
an æfingaskóla fyrir Kennaraskóla
íslands (6.)
Hestamannafélagið Fákur reisir
hús fyrir 112 hesta á skeiðvellinum
við Elliðaár (9.)
Til mála hefur komið að vinna
málningu úr íslenzkum rauðleir (9.)
Miklar símaframkvæmdir hafa ver-
ið í Stykkishólmi og Grundarfirði á
þessu ári (11.)
Vinningum fjölgar í Happdrætti
Háskóla íslands og miðar hækka í
verði (14.)
Flugfélag Islands semur við dönsku
stjórnina um ískönnunarfiug við
Grænlandsstrendur (14.)
Nýr stálbátur, Eldey, 150 smálestir,
kemur til Keflavíkur. Eigandi báts-
ins er samnefnt hlutafélag (15.)
Gerðar hafa verið tilraunir með
útflutning síldar, sem unnin er á
annan hátt en áður hefur verið gert
hér (17.) '
Unnið er að frumteikningu að nýrri
ölvusárbrú (17.)
Brúarfoss, nýtt skip Eimskipafélags
íslands, komið til landsins. Skipstjóri
er Jónas Böðvarsson (18.)
Talstöðvar settar í leigubíla á
Hreyfli og Bæarleiðum (21.)
Bifreiðastöðin Hreyfill er nú að
reisa byggingar yfir starfsemi sina á
landi sem stöðinni var úthlutað á
milli Grensásvegar, Miklubrautar og
Fellsmúla (22.)
Lánveitingar til framkvæmda í
sveitum meiri í ár en nokkru sinni
fyrr (22.)
13 bæir í Laxárdal og Haukadal fá
rafmagn frá Rafnmagnsveitum ríkis-
ins (22.)
Þegar nýasta gufuholan í Hvera-
gerði var reynd, reyndist hún hin
þriðja bezta (22.)
Nýr 100 tonna stálbátur, Halkion,
kom til Vestmannaeya. Eigendur eru
Gerðisfeðgar (28.)
Nýr 140 tonna bátur, Anna, kom
til Siglufjarðar. Eigandi er Þráinn
Sigurðsson, útgerðarmaður (28.)
Byrjað er að rífa „Veltuna“, eitt
hinna gömlu húsa við Austurstræti
(29.)
Ný gerð brunaboða sett upp I
Hafnarfirði til reynslu (30.)
Um 70 brennur hafa verið leyfðar
í Reykjavik á gajnlárskvöld (30.)