Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Qupperneq 1
28. tbl. Sunnudagur 8. október 1961 XXXVI. árg. Gunnar Magnússon frá Reynisdal Sögulegt skipstrand 1941 „Persier" og járnið á Dynskógafjöru SKIP er strandað á Kötlutanga! Svo kvað við í Ríkisútvarpinu hinn 2. febrúar 1941, og jafnframt var björgunarsveit Slysavarnafé- lagsins í Vík í Mýrdal beðin að fara þangað. Björgunarsveitin brá skjótt við og fór á bíl austur að Múlakvísl, alyeg fram við sjó. Þar voru ísar á útföllunum en svo ótraustir að ekki þótti vogandi að reyna að aka' þar yfir. Lögðu menn þá björgunartækin á herðar sér og báru þau austur sandinn. Hröðuðu menn ferðum eins og unnt var og gekk allt greiðlega, því að færi var ágætt og veður sömuleiðis. Það kom nú í ljós, að skipið var strandað á Dynskógafjöru, skammt austan við mörk Hjörleifshöfða- fjöru, og því sem næst í útfalli Blautukvíslar. Skip þetta reyndist vera „Per- sier“, 8200 lesta gufuskip frá Ant- werpen. Stutt var út í það og gekk því greiðlega að skjóta línu um borð. Síðan voru skipverjar dregnir í land í björgunarstól, hver af öðrum, 44 að tölu. Gekk björgunin slysalaust og voru mennirnir síðan fluttir til Víkur og komið þar fyrir. Þarna voru menn af mörgum þjóðum, en Belgar þó flestir, eða um tuttugu að tölu. Skipið var í þjónustu Breta og var farmur þess 6000 lestir af mótuðu járni og 100 bif- reiðar af tveimur gerðum. Voru þetta „láns- og leiguvörur“ til bandamanna. Hafði skipið lagt á stað í skipalest frá Baltimore í Bandaríkjunum. Þýzkir kafbátar gerðu árásir á skipalestina og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.