Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1962, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1962, Blaðsíða 15
A biðsfofunni Frarahald af bls. 3. „Er annars nokkur læknir í stofnun- Inni-?“ spyr ioks konan í horninu og er aftur full efa. „Eitthvað er það að minnsta kosti skrýtið, að hann skuli aldrei sjást“. „En það er víst alltaf verið að skera upp“, svarar hin konan í efalausri trú- girni sinni, „og svo er sagt að hann sé hér“. „Ja, eins og maður viti nokkurn tima, hverju maður á að trúa“, segir konan í horninu. „Það er nú svo margt sagt, og hvernig er hægt að vita, hver krukkur í þessa veslinga? En það er nú kannski ögn annað kandidat eða iæknir“, Drengurinn tekur upp hjá sér vasa- hók og blýant. „Ég skal ráða krossgát- una“, segir hann allt í einu. Sjómaðurinn kinkar kolli, en enginn annar í biðstofunni virðist gefa þessu gaum. Afsteypurnar hallast hvor upp að annarri, og pilturinn hefur tekið upp lítinn hníf og snyrtir með hægð á sér neglurnar. „Jesús minn“, segir stúlkan allt í einu og opnar nú loks augun til fulls. „Ertu með hníf?“ „Sérðu ekki, að ég er að snyrta á mér neglurnar?“ „Nú eins og það sé nokkuð mikið?“ „Mikið“, segir stúlkan, færir sig í sætinu og horfir nú á piltinn úr fjar- lægð. „Hugsa sér. Ja, sá er þó svei mér góður“. „Ætli hann taki úr nokkrum ann- að en það sem skemmt er?“ svarar pilt- uriim ólundarlega en lætur þó niður hnífinn. „Hver getur svo sem vitað, hvað kann að vera skemmt. Sumir deyja bara á skurðarborðinu, og kannski er það vegna þess, að þegar læknirinn er búinn að kraka úr þeim alla skemmd er ekkert eftir“, segir stúlkan og er aftur orðin þreytt. Við þessu virðist hin afsteypan ekk- ert svar eiga. Og konan í horninu heldur áfram að prjóna. Rauður hnyk- ilpaufinn hennar veltist æ hraðar og er bráðum ekki neitt. Allir líta upp, þegar aðstoðarstúlk- an kom aftur í dyrnar. En hún nefnir alls ekki ákveðið nafn eins og vænzt var og bætir síðan við: Gerið þér svo vel. Nei, hún er alls ekki komin í þeim tilgangi. Hún seg- ir aðeins að læknirinn sé enn vant við látinn og tilkynnir, að sjúkling- arnir séu beðnir að bíða. Annað segir hún ekki og er farin. „Ja, ég á nú hreint ekkert orð til lengur“, segir konan í liominu og andvarpar. Rauði hnykilpaufinn hennar er rétt á þrotum. og ég sá augum hans, þegar hann sagði: „Fyrst lækn- irinn er í stofnuninni, þá kemur hann“. Síðan hélt hann áfram að fást við krossgátuna. En við höldum áfram að bíða, afsteypurnar, sem hallast hvor að annarri eins og göngustafir að vegg, konan í hominu, sem prjónar, sjómaðurinn og við hin. En fótatak fólksins bergmálar á gangstéttinni, og ljóskerin varpa birtu á það um stund meðan bílarnir mála formlaus og flýj- andi andlit í malbikinu. En mitt í þessu öllu glímir dreng- urinn við krossgátuna. Blinduð af snjóbirtu Framhald af bls. 9. að Jóhönnu, svo boðberanum var vel fagnað. Þess má geta, að daginn sem faðir minn fór upp að Þuríðarstöðum var komin hlý suðvestan gola. Rann því snjór mjög og vötn uxu til muna. Var þá kominn krapavaðall yfir alla Eski- fjarðarheiði. Hafði faðir minn aðeins heimagerða leðurskó á fótum sér, eins og algengt var í þá daga og þurfti hann þannig að vaða krepjuna mest alla leið. Var hann því orðinn hart leikinn af fótakulda, þegar hann komst á áfangastað. Talið var, að hefði Jóhanna ekki komizt niður af heiðinni morguninn, sem hún kom að Veturhús- um, hefði verið úti um hana, vegna þess hve umferðin versnaði og vötn ultu fram. Jóhanna dvaldi sér til hress- ingar í hálfan mánuð að Veturhúsum, en fór þá til Mjóafjarðar, en þar var heimili hennar. Ekki veit ég með vissu, hverra manna stúlka þessi var. Þykir mér þó mjög fyrir því að geta ekki kynnt liana betur fyrir lesendum, svo frábæran dugnað og hreysti, sem hún sýndi í þessu ferðalagi. Skrifað eftir minni og frásögn móð- ur minnar, Þorbjargar Kjartansdóttur, að Eskifjarðarseli 5. desember 1956. Bergþóra Pálsdóttir frá Veturhúsum. Jóhanna þessi átti )>á heima að Fjarðar- koti í Mjóalirði, systir Matthildar Þorvalds- dóttur, konu hóndans þar sem Bjarni hét. Bjuggu þau hjón þar aðeins nokkur ár, en fluttu þaðan til Vopnafjarðar og siðan til Ameríku. Stefanía Þorvarðsdóttir, kona Ólafs Davíðssonar, verzlunarmanns á Vopnafirði, var ein þessara systra og voru þær systur hins afar þrekmikla manns G ísla Þorvarðs- sonar 1 Papey. Þorvarður Gíslason, faðir þeirra systkina, bjó að Pagurhólsmýri i Ör- æfum, og kona hans var Ingibjörg Jónsdótt- ir, frá Hrauni 1 jLandbroti. Sögn Katrinar Ólafsdóttur frá Firði i Mjóa- firði. p. p# Rússneski geimfarinn Júrí Gagarín var í góðu skapi um síðustu áramót og fannst hann geta verið dálítið örlátur: „Við skulum bara láta önnur ríki keppa við okkur. Það er nóg rúm úti í geimnum handa okkur öllum.“ „Hú, ég er hrædid við hmf“, segir Btúlkan og hryllir sig í herðunum. „En Sú andstyggð að vita lækninn fara að Þa leit drengurinn upp, kraka innan i sér með hníf, hoj bara“.aftur vorblámann í ungum ■LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.