Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1962, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1962, Blaðsíða 2
rs vi lMVNDj HINN nýi forseti Indlands tók við embaetti sínu í vor. Mað- urinn sem kjörinn var í embættið er fyrrverandi varaforseti landsins, sir Sarvepalli Radhakrishnan, kunnasti heimspekingur Indlands. Fráfarandi for seti, dr. Rajendra Prasad, er hlédrægur maður og hafði sig lítt í frammi með- an hann hafði embættið á hendi, en margir gera sér vonir um að hinn nýi forseti verði einn af atkvæðamönnum heimsins á næstu árum. Eins og forsetar margra annarra landa er forseti Indlands fyrst og fremst einingartákn ríkisins og hefur lítil sem engin pólitisk völd ,enda segir í stjórnarskránni að ríkisstjórnin eigi að „hjálpa og leiðbeina forsetanum við að marka og framkvæma stefnu sína“, en ýmsir telja að þessu muni verða öfugt farið um sir Sarvepalli Radhakrishnan. Meðan hann var varaforseti studd- ist Nehru forsætisráðherra mjög við hann og leitaði til hans, bæði sem vin- ar og ráðgjafa, þegar erfið vandamál steðjuðu að — og ekki er ólíklegt að hann geri það nú í enn ríkara mæli en áður, ekki sízt með tilliti til hinna myrku skýja sem grúfa yfir landamær- um Tíbets og gætu leitt til alvarlegra átaka, jafnvel styrjaldar, ef út af ber. E n hinn nýi 73 ára gamli forseti nýtur einnig mikils og óvenjulegs trausts á þjóðþinginu. Má meðal annars marka það af því, að hann var kjörinn til forseta með 2938 atkvæðum, en tveir keppinautar hans fengu aðeins 41 og 17 atkvæði hvor. Þegar talað er um Radhakrishnan sem væntanlegan atkvæðamann í heims málunum, byggist það meðfram á því, að hann hefur árum saman látið mjög til sín taka í heiminum, að vísu ekki á sviði stjórnmála, heldur á vettvangi vísinda. Það eru engar ýkjur að segja, að Radhakrishnan sé mesti núlifandi heimspekingur og trúarbragðasagnfræð- ingur Indlands — og að áhrifa hans gæti langt út fyrir landamæri föður- landsins. Hann hefur haldið fyrirlestra við flesta háskóla á Vesturlöndum og vakti mikla athygli þegar hann heim- sótti Kaupmannahöfn í fyrra. Hann var um langt skeið prófessor við háskólann í Oxford. Bækur hans hafa verið þýdd- ar á fjölmörg tungumál og þykja merkilegar heimildir um indversk trú- arbrögð og hugsunarhátt Þ að var Rudyard Kipling sem sagði í hinu fræga ljóði sínu „Ballad of East and West“: — East is East, and West is West, and never the twain shall meet“ (Austrið er Austrið, og Vestrið er Vestrið, og þetta tvennt mun aldrei eiga samleið). Þennan hugsunarhátt neitar sir Sarvepalli Radhakrishnan einfaldlega að viðurkenna. Eftir víðtækar rannsóknir á sögu trúarbragðanna komst hann að niður- Stöðu sem hann lét í ljós í frægum fyr- irlestri við Harvard-háskóla í fyrra- haust: „Það er einn af hinum beizku harm- leikum veraldarsögunnar að hin miklu trúarbrögð hafa ekki sameinað mann- kynið í gagnkvæmu trausti heldur þvert á móti sundrað því með valda- fíkn sinni og fordómum.“ Að sjálfsögðu hefur Radhakrishnan eins og flestir fullorðnir Indverjar ver- ið lærisveinn Mahatma Gandhis, en hann hefur sérstakar mætur á beng- alska skáldinu og spekingnum Rabin- dranath Tagore, sem hann hefur skrif- að nokkrar bækur um. Tagore er kunn- ur hér á landi af þremur bókum, „Ljóðfórnir“ (1919), „Farfuglar" (1922), báðar þýddar af Magnúsi A. Árnasyni, og „Skáld ástarinnar“ (1961), þýdd af Sveini Víkingi. L ífsferill Radhakrishnans hef- ur verið óslitin viðleitni í þá átt að sameina Austrið og Vestrið. Hann er kominn af brahmina-ætt, en hún var hvorki auðug né glæsileg í ytra til- liti. Faðir hans hafði lítilmótlegt em- bætti við skattheimtuna í Madras og mjög litlar tekjur. En fjölskyldan var sparsöm og safn- aði nægilegu fé til að gera hinum gáf- aða unga manni kleift að stunda nám við Christian College í Madras. Hann hafði brátt vald á mörgum tungumál- um Indlands auk ensku, og árið 1911 hóf hann glæsilegan feril sinn sem pró- fessor í heimspeki og trúarbragðavís- indum við háskólann í Madras. Síðan kenndi hann við háskóla í Mysore, Kalkútta og öðrum indverskum háskóla borgum — og að lokum var hann kvaddur til kennslu við vestræna há- skóla. Hann gat sér fyrst verúlegt orð þeg- ar hann hélt fyrirlestra við háskólann í Chicago, en alþjóðafrægð öðlaðist hann fyrst meðan hann var prófessor í austrænum trúarbrögðum við háskól- ann í Oxford. Því embætti gegndi hann árum saman, en ferðaðist jafnframt mikið og hélt fyrirlestra við aðra há- Þegar árið 1931 var Radhakrishnan aðlaður af brezku stjórninni. Það hafði þó engan veginn í för með sér að hann léti af baráttu sinni fyrir sjálf- stæði Indlands. f ræðu og riti var hann óþreytandi baráttumaður fyrir frelsi föðurlandsins. Hann stóð jafnan í fremstu röð, og þegar stund frelsisina rann upp, var hann einn af leiðtogum þjóðar sinnar. S ir Sarvepalli Radhakrishnan hef- ur yfirbragð meinlætamannsins, hann er horaður, andlitið markað djúpum dráttum mikillar reynslu, augun hvöss og neistandi bak við þykk gleraugu. f þessum grannvaxna manni búa miklir andlegir og líkamlegir kraftar. Það er með ólíkindum hve hart hann hefur lagt að sér síðustu fimmtán árin, og hve miklu hann afkastar enn, þó hann sé kominn yfir sjötugt. Hann hef- ur árum saman verið fulltrúi Indlands hjá UNESCO (Menningar- og vísinda- stofnun Sameinuðu þjóðanna). Hann hefur verið sendiherra Indlands í Moskvu. Hann hefur talað fyrir hönd Indlands á einni alþjóðaráðstefnunni eftir aðra — og hvar sem hannhefur kom ið fram hefur hann ævinlega haft í huga meginreglu sem hann orðaði eitt sinn þannig: „Meðal hinna miklu og torveldu vandamála, sem nú skipta veröldinni í tvær heildir, er ekkert, sem ekki megi leysa með umræðum og samningum.“ Mr að var árið 1952 sem hann var kjörinn varaforseti Indlands, einnig með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Þá hófst hin nána samvinna hans við Nehru forsætisráðherra. Það var næst- um óhjákvæmilegt að þeir fengju sam- úð hvor með öðrum, þar sem báðir „höfðu mætur á sams konar sósíal- isma“, eins og Radhakrishnan komst eitt sinn að orði. Þar við bættist að Nehru er að eðlisfari dulur og hlédrægur og á erfitt með að opna hjarta sitt fyrir öðr- um, en í varaforsetanum hafði hann fundið mann sem hann gat talað við án nokkurrar feimni og hlustað á sér til mikils gagns. mt að er víst alkunnugt að Nehru á annan trúnaðarmann, landvarnaráðherr an Krishna Menon, sem að margra dómi er allt annað en æskilegur til hins á- byrgðarmikla hlutverks, er honum hef- irr verið falið. Skyldu ekki hinar al- mennu vinsældir nýja forsetans að nokkru leyti stafa af því, að hinn mikli fjöldi Indverja, sem hefur horn í síðu Menons og á bágt með að umbera hann, telji að Radhakrishnan sé mjög æskilegt mótvægi gegn landvarnaráðherranum í æðstu stjórn ríkisins? Sir Sarvepalli Radhakrishnan, sem er ekkjumaður, hefur árum saman lifað mjög óbrotnu lífi í Nýju Delhi hjá syni sínum og tengdadóttur, en dætur hans fimm eru tíðir gestir á heimilinu. Nú er hann fluttur inn í hina glæsilegu for- setahöll, „Rashtrapati Bhavan", þar sem brezki varakonungurinn bjó áður fyrr. Nú er hann umkringdur skrauti, iburði og opinberu tilhaldi — og má það telj- ast einkennilegt fyrir mann sem ævin- lega hefur gert sig ánægðan með brauð- skorpu, vatnskrús og hermannabedda. Utgefandi: H.f. Arvakur, Beykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Bitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Áml Garðar Kristinsson. Bitstjóm: Aðalstræti 6. Sími 22480. 2 LESBÓK MOR GUNBLAÐSINS 19. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.