Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1962, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1962, Blaðsíða 8
Ákærður AÐ mun hafa verið um 1897 sem það atvik kom fyrir, er hér segir frá. I>að var gamall þing- staður á næsta bæ við, þar sem ég ólst upp. Lágu tún bæjanna saman, svo örstutt var á milli þeirra. Þinghúsið var orðið gamalt, þegar hér kemur sögu. Það var torfhús, grjóthlaðnir veggir með torflagi í milli laga og árefti með torfþaki. Loft var í húsinu.. Á neðri hæð hússins var borð undir glugga, sem sneri fram á hlaðið. Tveir stólar voru við borðið, og bekkir til beggja handa. Hreppsfundir voru haldn ir þarna í húsinu — hreppaskil haust og vor. Komu þar fram ýmis þau mál sem hreppinn vörðuðu, svo sem ráð- stöfun sveitarómaga, framfærsluhjálp til þeirra sem þess þurftu, ruðningur vega, sem jafnað var niður á búendur í dagsverkum, og ýmislegt fleira. Þennan dag, sem hér um ræðir, var manntalsþing sem haldið var hvert ár í öllum hreppum sýslunnar af við- komandi sýslumanni. Þetta var um miðjan júni. Veðrið var dásamlegt, heiðríkja og sólskin, hafgola fram á firðinum, smáandvari upp við landið. Á þessum árum var útræði, verstöðvar beggja megin fjarðarins, sem byggð sveitarinnar var við. Það var gaman að sjá sexæringana koma með háfermi af harðfiski, sigla inn fjörðinn í haf- golunni með snjóhvít þanin seglin. Voru það hátíðisdagar á bæjunum, þeg- ar vermennirnir komu heim um ver- tíðarlokin. Hittist svo á þennan dag, að bónd- inn, sem bjó á þingstaðnum, flutti heim úr verinu þennan dag. Hafði verið morgunflæði, svo það var búið að bera upp úr bátnum fyrir hádegi. Mikið höfðum við krakkarnir að snúast þenn- an dag. Við vorum mörg innan við fermingu. Menn komu ríðandi á þing- staðinn, og fórum við börnin með hestana í haga. Við stelpurnar vorum ekki síður en strákarnir spenntar að koma á hestbak, þó það væri berbakt. Allir áttu að vera komnir á þingstað id. 12. Upp úr því var þingið sett. Menn stóðu í smáhópum á hlaðinu fyrir framan þinghúsið og töluðu um landsins gagn og nauðsynjar, svo sem aflabrögðin, hvernig útlit væri með fiskverðið og grassprettuna, og hvað hlutirnir á bátunum mundu verða há- ir hjá þessum eða hinum. Nú tilkynnti sýslumaðurinn, að þingið yrði sett. Flykktust þá allir inn í þinghúsið. Var þá ekki eftir á hlað- inu nema við börnin. Við vorum að koma frá því að flytja hestana í haga. Sjáum við þá að einhver stendur undir vegg sunnanvert við þinghúsið. Þekkj- um strax,-að það er drengur af næsta bæ, sem Guðmundur hét. Líklega hefur hann verið 11—12 ára gamall. Var hann tökubarn hjá bóndanum sem hann var hjá. En kona bóndans var hálfsystir hans. Við heilsuðum upp á hann, en hann tók því ekki. Sáum við þá á honum, að eitthvað amaði að honum. Við spurðum hann, hvort hann væri lasinn, því hann var náfölur og niðurbeygður. En hann var ófáanlegur til að svara okkur. Ég sárkenndi í brjósti um drenginn og hugsaði, hvað getum við gjört fyrir hann? Hann stóð þarna upp við vegginn og sneri sér frá okkur. Hann var í gráum vaðmáls- buxum og mórauðri prjónapeysu, með roðskó á fótunum, sem á þeim tíma var algengt að nota á Vesturlandi. „Komdu með okkur heim,“ sagði bróðir minn við hann. En hann svaraði þvi ekki, heldur færði sig fjær okkur. Við litum hvert á annað, börnin sem vorum þarna og þóttumst viss um, að eitthvað sérstakt gengi að drengnum. Rétt í þessu kemur gamall maður út úr bænum. Hann sér okkur börnin standa þarna, þögul og alvarleg. „Á hvað eruð þið að horfa?“ segir hann. Bróðir minn, sem var einn af drengj- unum, er voru þarna, segir: „Ég veit ekki hvað gengur að honum Gumma. Hann stendur þarna við vegginn og vill ekkert tala við okkur. Ætli hann sé ekki lasinn.“ f þessum svifum kem- ur húsbóndi Guðmundar litla út úr þinghúsinu, gengur að drengnum, tekur í handlegginn á honum og segir harka- lega: „Komdu strákur.“ Gummi litli kipptist við og stritaði á móti og tárin streymdu niður kinnar hans. Bóndinn dró hann með sér inn í þinghúsið og .leiddi hann upp að borðinu, sem sýslu- maðurinn sat við. Við börnin ruddumst inn í dyrn- ar, yfirkomin af ótta og skelfingu. „Hvað eruð þér þarna með?“ sagði sýslumaðurinn við bóndann þungur á svip. „Svo er mál með vexti,“ sagði bóndinn, „að þetta kjötlæri" — og hann tók upp úr gamalli hnakktösku sem hann var með samanhangandi bein af kjötlæri — „hékk upp í eldhúsrafti heima hjá mér og átti að geymast þar. En þegar átti að taka það og matreiða, kom í ljós að allt kjöt hafði verið skorið af því, og eins og þér sjáið lítið eftir nema beinin. Á heimilinu hjá mér eru ekki nema börnin okkar, sem eru ekki orðin það þroskuð, að til mála geti komið, að þau séu völd að verknaðinum." Ég skalf af geðshrær- ingu og leit á mennina í kringum mig og hugsaði: „Ætlar enginn að hjálpa Gumma litla? Sjá þeir ekki hvað hann á bágt?“ Sýslumaðurinn snýr sér þá acj bónd- anum og segir: „Ætlizt þér til að ég fái hann til að meðganga þjófnaðinn?1* Framh. á bls. 11. , Hugboð „ElNU SINNI VAR“, þannig byrjuðu margar sögur í gamla daga. Það, sem hér verður frá Skýrt, gerð- ist árið 1916. Við heilsuihælið á Vífils- stöðum starfaði þá dönsk yfirhjúkrun arkona, Maria Sörensen frá Hobro í Danmörku, sama bæ og frú Georgia kona Sveins Björnssonar, þá hæsta- réttarmálaflutningsmanns í Reykja- vík, var ættuð frá. Voru þær, frú Georgía og yfirhjúkrunarkonan, jafn aldrar, fermingarsystur og vinkonur. — Um þessar mundir kom á hælið á Vífilsstöðum fjögurra ára gamall drengur, vestan af Snæfellsnesi. Var hann með bólgna kirtla og auk þess með illa gróin brunasár á andliti, hálsi og höndum, sem hann hafði fengið, er hann var á öðru ári. Hafði hann þá fallið ofan í pott, með sjóð- andi mjólk, sem staðið hafði á eldhús gólfinu og skaðbrunnið á höfði og höndum. Ollu þessi brunasár miklum lýtum á andliti barnsins. Frú Georgia Björnsson hafði innilega samúð með þessu afmyndaða barni. Leitaði hún til margra lækna, með tilraunir að bæta honum, en með litlum árangri. — Vorið 1916 átti Maria Sörensen 10 ára hjúkrunarafmæli. Þann dag kom frú Georgia, eftir hádegi, með stöðv- arbíl úr Hafnarfirði, að vegamótun- um til Vífilsstaða og greiddi um leið far með sama bíl, kl. 6. um kvöldið, til Reykjavíkur. Færði hún þá þjáða barninu á heilsuhælinu myndabækur og leikföng. Áður hafði hún gefið því mi’kið af fötum, kodda og dúnteppi. — Það var sameiginlegt áhugamál dönsku fermingarsystranna að hjálpa hinum lýtta dreng og gleðja, sem mest. Þennan dag var læknirinn á Vífilsstöðum ekki heima. Yfirhjúkr- unarkonan varð því að fara í eftir- lit hans á sjúkrastofurnar klukkan sex um kvöldið og gat því ekki fylgt vinkonu sinni, frú Georgiu, á leið, er hún fór um kvöldið. — En þá þótti óviðeigandi að fylgja ekki góð- um gestum úr garði. Ég hafði skrifstofu og gjaldikera- störf á Vífilsstöðum þetta ár. Skrif- stofan var opin til afgreiðslu 10—12 og 3—5 daglega. Aðra tíma dagsins vann ég þar eftir eigin geðþótta. Ég fylgdi því frú Georgiu niður á vega- mótin, þar sem bíllinn ætlaði að taka hana. — Það var indælt veður, mari í lofti og hlýtt. Bíllinn kom ekki strax að vegamótunum. Þar var enginn bekkur að sitjá á, svo við gengum spölkorn riiður eftir veginum unz við komum að grasivaxinni brekku. Þar settumst við niður, til að bíða bíls- ins. — Sem við höfðum setið þar litla stund, segir frú Georgia undr- andi og hrifin: „Hér hef ég fundið hamingjuþúfu, mikla tign og vellíð- an.“ Um þessar mundir stóðu kosn- ingar til Alþingis fyrir dyrum, svo ég svaraði frú Georgiu: „Frjálslyndi flokkurinn sigrar í kosningunum í vor og maðurinn þinn, frú Georgia, verður kjörinn ráðherra á næsta Al- þingi.“ Þessu þverneitaði frúin og sagði, að það væri þarna við sjóinn, sem hún yrði í tignarstöðu og benti um leið út á Álftanes, eða réttara sagt að Bessastöðum. — En þá voru Bessastaðir í mikilli niðumíðslu, eftir að Skúli Thoroddsen flutti þaðan til Reykjavíkur, með íbúðarhús sitt og prentsmiðju. — Og Ijóð Þorsteins Erlingssonar var á hvers manns vör- um: „Því var nú aldrei um Álftanes spáð, að ættjörðin frels. :t þar.“ T IÐ heyrðum bílinn koma og gengum að vegamótunum. En þetta var þá flutningabíll úr Hafnarfirði, með líkkistur að Vífilsstöðum. Það dóu þá margir sjúklingar á heilsuhæl- inu. Frú Georgía var hin rólegasta, þó þetta væri ekki sá b£U, sem við vænt- um og þó hún yrði því að bíða lengur. Hún virtist vera með alian hugann við vitrunina um mikla vegsemd, en lét orð falla að því, að verst væri að hún skyldi vera dönsk, taldi ófært að útlendingur hlyti tignarstöðu hér á íslandi. Ég svaraði því ákveðin að um konu Sveins Björnssonar skipti slíkt engu máli, hún væri fslending- ur, hverrar þjóðar sem ætt hennar væri. Að stundu liðinni kom hinn rétti bíll. Bifreiðarstjórinn bað frú Georg- iu afsökunar á, hve seint hann kæmi, hefði hann orðið fyrir óvæntum töf- um. — Georgia svaraði því brosandi, að slíkt gerði ekki til, sér hefði liðið svo vel að bíða í þessu dásamiega veðri og umlhverfi. Tíminn leið. Frjálslyndi flokkur- inn sigraði ekki í kosningunum og Sveinn Björnsson, sem áður hafði verið kosinn á þing með yfirburð- um atkvæða, hlaut nú ekki kosningu. — í kringum 20 ár var frú Geopgia búsett í Kaupmannahöfn, sem sendi herrafrú íslands. — En að 28 árum liðnum, vorið 1944, flytur hún að Bessastöðum, sem tignasta frú ís- lands, fyrsta forsetafiú hinnar is- lenzlku þjóðar. — Þar rættist hugboð hennar, er við vorið 1916 sátum í brekkunni við Vífilsstaðaveginn. —. Það er mikið deilt um drauma og vitranir, en er hægt að neita gildi þess, er það rættist svo greinilega, sem þessi atiburður og ótal — ótal fleiri svo áþreifanlega sanna. Sigurborg Jónsdóttir. i 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.